Lesbók Morgunblaðsins - 14.07.1957, Blaðsíða 14

Lesbók Morgunblaðsins - 14.07.1957, Blaðsíða 14
378 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS Kslvin Lindimann: Nei, hann hafði ekki sterka skapgerð PATRICK SAVILLE og ég sátum og snæddum morgunverð á Hótel Ritz. Skammt írá okkur sat maður við borð. Ég hafði setið sem í leiðslu og horft á hann á meðan ég beið eftir Patrick. — Maðurinn var ungur, að því er bezt varð séð, en óvenjulega feitur. Einu sinni hafði hann verið fallegur maður og kannski var það einmitt þess vegna, að manni fannst hann eitthvað rauna- legur að sjá. Augu hans ljómuðu af gleði í hvert skipti, sem þjónninn færði honum nýjan rétt. Matarlyst hans var algerlega óháð fæðunni, sem hvarf stanzlaust inn á milli vara hans. Það var einmitt vegna þessa feita manns, sem við Patrick fórum að rök- ræða um sterka skapgerð. Patrick mat meira sterka skapgerð en almennar gáfur. „En hvað er hún svo, þessi svo kall- aða skapgerð?“, spurði ég. „Einu sinni hélt ég að það væri ein- hver meðfæddur eiginleiki", sagði Pat- rick. — „Þegar maður stendur and- spænis viljaföstum manni, finnur mað- ur til einhvers alveg sérstaks. Ég hefi áður sagt þér frá Jerry Joel-Sass. Hann var maður með sterka skapgerð og hver sem til hans þekkti viðurkenndi það og umgekkst hann samkvæmt því. Ég var settur í herdeildina mjög snemma í stríðinu, og Jerry Joel-Sass var minn æðsti yfirboðari. Brátt varð það alvanalegt, að hópur ungra manna var sendur yfir sundið í hraðbót til þess að gera innrás á yfirráðasvæði óvinanna, en í fyrstu virtist okkur það dálítið undarlegt. Jerry hafði valið mig til fylgdar, þegar tilgangurinn var að myrða Gör- ing, sem var einmitt í rannsóknar- ferð um frönsku strandvirkin. Við vorum tuttugu, sem settir voru á land úr kafbát. Síðasta spölinn rérum við sjálfir í gúmmíbát, svartir í fram- an og á höndum, og allir fundum við til undarlegs einstæðingsskapar, er við stigum á land á strönd hins hertekna og víggirta Frakklands. Við höfðum r...allt skjól og alla vernd að baki okkar. var þetta hið mesta vandamál, eins og þú sjálfur veizt, og ekki voru liðnar meira en fimm mínútur frá landtökunni, þegar við vorum baðaðir í sterku, hvítu ljósi, frá öflugum ljós- kösturum Þjóðverjanna. Þeir höfðu vænt okkar og biðu komu okkar. Ein- hversstaðar uppi í hálendinu þrumaði vélbyssa og spýtti blýi sínu í allar átt- ir, eins og um lífið væri að tefla. Við vorum ofurliði bornir. Þeir gerðu aðeins eina stórárás og biðu þess eins að aðaláhlaupið hæfist. Við særðumst 7 eða 8, þar af Hitabylgja hefir undanfarið gengið yfir Evrópu. Hér sjást tvær blómarósir kaela sig í sjóbaði.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.