Lesbók Morgunblaðsins - 01.09.1957, Blaðsíða 11

Lesbók Morgunblaðsins - 01.09.1957, Blaðsíða 11
LESBOK MORGUNBLAÐSINS 481 KLAUSTURLIF er upprunnið á Austurlöndum. Hjá kristnum mönnum tók snemma að bera á til- hneigingum til heimsflótta og al- gjörs hreinlífis. Fyrirbæris þessa verður fyrst vart í Egyptalandi og Sýrlandi á 3. og í vaxandi mæli á 4. öld e. Kr. og þaðan barst það til Vesturlanda. Orsakir til þessa heimsflótta voru einkum þær að í fornöld og langt fram eftir öldum álitu kristnir menn að heimsendir væri í nánd og að Kristur kæmi þá og þegar aftur og kallaði til dóms yfir mönnunum. Þeir sem þannig trúðu töldu því hyggilegt að vera við öllu búnir og ýmsir tóku að leita út í eyðimerkurnar og dvelj- ast þar sem einsetumenn í stöð- ugu bænahaldi og trúargrubli. Nokkrir létu sér ekki nægja bæna- haldið, heldur tóku til við að pynda Jón R. Hjálmarsson: KLAUSTURLÍFIÐ sjálfa sig á margan hátt og töldu sig þannig ná lengra í hreinlífi. Einkennilegastir þessara mein- lætamanna voru þeir heilugu menn, sem settust upp á háar súl- ur og eyddu ævinni þar. Sumir þeirra lifðu meira að segja ekki á öðru en því, sem forvitnir áhorf- endur réttu að þeim. Frægastur þessara súludýrlinga var Símon Stylites í Sýrlandi, sem samfleytt sat á súlu í þrjátíu ár og andaðist þar. Menn sem lokuðu sig úti frá um- heiminum, voru snemma nefndir munkar, en orð það er komið úr grísku og þýðir einn. Ásamt bæna- haldi og meinlætalifnaði eyddu ein- setumennimir tímanum með tárum og kveinstöfum yfir syndum heims- ins. Sagan segir að í Egyptalandi hafi verið einsetumaður, sem svo ákaft grét yfir spillingu og löstum mannlífsins, að hann gat ekki einu sinni stöðvað flauminn meðan hann borðaði, svo að tárin blönduðust æ saman við matinn. Er tímar liðu tóku einsetumenn að ganga í félagsskap nokkrir sam- an og búa í einu húsi. Nefndist hús þeirra klaustur og er heitið komið frá latneska orðin claustrum, sem þýðir innilokað svæði. Klaustur- hreyfingin barst brátt til Vestur- landa, fyrst til Grikklands og á 5. öldinni e. Kr. er hún farin að láta að sér kveða á Ítalíu. Á Austur- löndum snerist klausturlíf fyrst og fremst um margs konar sjálfspynd- ingar og útilokun frá umheimin- um, en í löndum Evrópu fékk það allt annan svip, því að þar var ríkasta áherzlan jafnan lögð á skiplegt og lífrænt trúarsamfélag. Maður sá, sem teljast má frum- kvöðull og höfundur klausturlífs á Vesturlöndum framar öllum öðr- um, var Benedikt frá Núrsíu. Benedikt var ábóti í klaustrinu Monte Casino, sem stóð í fjalllend- inu skammt fyrir norðan Napólí á Ítalíu. Starf hans sem umbóta- manns innan munkareglunnar hófst árið 529 og má segja að með reglum hans hafi verið lagður grundvöllur að öllu klausturlífi á Vesturlöndum. Reglur hans voru smám saman teknar upp, hvar sem klaustur voru stofnuð, og munkar þeir, sem fylgdu þessum reglum, voru nefndir Benediktsmunkar. Síðar komu að vísu aðrar munka- reglur, sem störfuðu nokkru öðru vísi, en undirstaðan var sú sama og runnin frá reglum þeim, er heilagur Benedikt setti. Samkvæmt reglum Benedikts urðu þeir, sem í klaustur gengu, að vinna þrjú heit og skuldbinda sig til að halda þau til æviloka. Munkaheiti þessi voru: Að vera hreinlífur, vera fátækur og sýna yfirmanni sínum, ábótanum, skil- yrðislausa hlýðni. Benedikt skipu- lagði og, hvernig munkarnir ættu að nota tímann í klaustrunum. Hann lét þá ekki aðeins iðka bæna- hald, heldur urðu þeir einnig að stunda margvíelega vinnu. Þeir fengust við kennslu í skólum klaustranna og afskrifuðu bækur í stórum stíl. Þannig höfðu munk- arnir snemma mikla menningar- lega þýðingu ekki sízt á umbrota og róstusömum tímum eins og upp úr þjóðflutningunum miklu, þegar lítt var skeytt um andleg verð- mæti. Þá ráku munkarnir trúboð og unnu ötullega að útbreiðslu kristninnar. Á landeignum klaustr-

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.