Lesbók Morgunblaðsins - 20.10.1957, Blaðsíða 3

Lesbók Morgunblaðsins - 20.10.1957, Blaðsíða 3
LESBÓK MÓRGUNBLAÐSINS 535 stjörnuturninn, heldur að stjarnan hafi aldrei náð því að fullskapast, héldur hafi hún verið hálfsköpuð frá öndverðu. Hann heldur að fyr- ir 4—5000 milljónum ára hafi þarna verið hópur smástjarna, er ekki hafi verið stærri en 50—800 km í Þvermál, og þær hafi myndazt af geimryki milli Marz og Júpíters. En innri rafhleðsla hafi valdið því að þær hitnuðu og bráðnuðu; síðan hafi þær kólnað aftur og við það hafi komið fram grýtt jarðskorpa og málmkjarni. Smám saman hafi þær svo rekizt hver á aðra og sundrazt og úr þeim hafi orðið smástirni, loftsteinar og hala- stjörnur. Aðrir fræðimenn halda því fram, að þarna hafi hlotið að vera ein stjarna á stærð við jörðina, að minnsta kosti. Draga þeir það af því, að Marz, sem er 6500 km að þvermáli, en það er rúmlega helm- ingur af þvermáli jarðar, virðist ekki hafa neinn kjarna og efnið í honum álíka þungt alls staðar. Af því draga menn þá ályktun, að þurfa muni hnött á borð við jörð- ina til þess að þar sé svo sterkt aðdráttarafl, að það geti aðskilið efnið í grjótskorpu og málmkjarna. Mörg loftsteinabrotin benda til þess, að þannig hafi verið um þá stjörnu, sem þau eru úr. Sum eru blendingar af nikkel og járni, eins og vér höldum að sé í kjarna jarð- arinnar. Sum eru af grjóti, svipuðu og hér er á yfirborði. En sum eru glerungur, og hann er léttastur. Sterkastar líkur mæla þess vegna með því, að hér hafi verið um allstóra jarðstjörnu að ræða. En ein stjarna er ekki nóg. Það þarf að minnkta kosti tvær stjörn- ur til þess að árekstur verði, en þær þurfa ekki að vera jafnstórar. HUGSUM oss að tvær stjörnur, önnur álíka stór og jörðin, hin ef til vill ekki mikið stærri en tungl- Loítsteinar sundrast venjulega í smáagnir þegar þeir rekast á jörð- ina. Hér eru nokkur loftsteinabrot, sem geymd eru i háskólanum í Iowa. Þau eru stækkuð eins og sjá má á samanburði við mannshár, sem liggur miili þeirra. ið, hafi verið á svæðinu milli Marz og Júpiters. Hvers vegna hefði þær átt að rekast á, nema því að- eins að áhrifa gætti frá þeirri þriðju? Og hér kemur þá skýring- in. Hinn mikli hnöttur, Júpiter, hef -ir togað í þær eins og segull. Hann hefir valdið því með aðdráttarafli sínu, að þær hafa orðið reikular í rásinni og farið sitt á hvað. Þess vegna hlaut að því að reka, að spor- brautir þeirra skærust, og gerðist það ekki vonum fyrr. í rúmlega 4000 milljónir ára ferðuðust þessar stjörnur saman, sín á hvorri braut, og veit enginn hve oft hefir legið nærri að þær rækist saman. En fyrir tiltölulega stuttum tíma varð svo árekstur milli þeirra. Ef vér gerum nú ráð fyrir því, að þannig sé sagan rétt $ögð, þá er eftir sú spurning: Hvernig var hnöttur sá, er þarna sundraðist? Brotin úr honum eru ýmist járn, járnblandið grjót, eða grjót, allt meira og minna blandað saman og inn á milli agnir af efni, sem ekki hefir fundizt á jörðinni. Allar lík- ur benda til þess að loftsteinabrot- in sé öll komin úr sama stað, enda þótt þau sé mismunandi. Ef jörðin skyldi springa eða leysast sundur einhvern veginn, mundi hún skilja eftir á braut sinni sams konar loft- steina, úr járni, járnblöndnu grjóti og grjóti. Þess vegna benda allar líkur til þess, að jarðstjarnan sem sprakk, hafi verið svipuð jörðinni, ineð grjótskorpu yzt, málmkjarna innst og blending efna þar á milli. Það þarf nokkuð stóran hnött til þess að efnin skiptist þar þannig. Jörðin er nógu stór og hefir nægi- legt aðdráttarafl til þessa. Marz er ekki nógu stór. Vísindamenn hafa reiknað hve þungur hann er, og hann var léttvægur fundinn. Af þessu má ráða að hin týnda stjarna hefir verið talsvert stærri en Marz, en þó líklega heldur minni en jörðin, því að ekki hafa verið hreinir málmar í kjarnanum, heldur blandaðir grjóti. Um yfir- borð hennar vitum vér einnig nokkuð. í fyrsta lagi er þá að nefna, að málmsölt í loftsteina- brotunum eru önnur en finnast hér á jörð, og það er vegna þess, að hér á jörðinni hefir vatn og ildi breytt þeim, í önnur efni. Á því má svo aftur sjá, að hvorki hefir verið vatn né ildi á þeirri stjörnu. Auk flísa úr grjóti og járni, er þriðja tegundin dreifð víðsvegar um jörðina. Það eru hinar örsmáu glerungsflísar, sem fundizt hafa á rúmiega 2000 fermílna (enskra) svæði í Ástralíu, þar sem engin eldfjöll eru nærri, svo að frá eld- gosum er glerungurinn ekki kom- inn. Um uppruna þeirra er engin önnur skýring en sú, að þær séu komnar utan úr geimnum, og pá sennilega úr sama stað og önnur loftsteinabrot. Og þær ætti þá að vera úr yztu skorpu hinnar sprungnu stjörnu. Eins og málmar leita miðbiks hnattar vegna þunga síns, en grjót- ið myndar jarðskorpuna, svo leita og léttustu efnin út á yfirborðió.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.