Lesbók Morgunblaðsins - 20.10.1957, Blaðsíða 8

Lesbók Morgunblaðsins - 20.10.1957, Blaðsíða 8
LESBÖK MORGUNBLAÐSINS Hgfús M. Johnsan fyrv. batjarfágeti: Brúðkaupssiðir í Vestmannaeyjum í VESTMANNAEYUM munu brúðkaupsveizlur hafa verið ein- hver helzti mannfagnaður ársins lengi sem víðar hér á landi, og metnaðarsök hjá þeim sem efndu til slíkra hátíðabrigða, er stórveizl- urnar voru, að vel væri til þeirra vandað, svo að eftir yrði munað. Þegar mest var viðhaft mun hafa verið boðið auk virðingarmanna, flestum bændum og konum þeirra og í eftirveizluna, svokallaða börn- um boðsgestanna og fleirum, sem ekki komust að í aðalveizluna. Eins og gefur að skilja var það eigi á annara færi en embættis- manna og efnabetri bænda að halda uppi slíkum tilkostnaði, en stundum slógu fleiri sér saman. Hér er miðað við miðbik 19. aldar eða nokkru síðar, en þá voru fornu bráðkaupssiðirnir horfnir að mestu fyrir löngu. Upp úr fyrsta áratug síðari helmings aldarinnar, sem leið, meðan vegur Herfylking- ar Vestmannaeyja, sem hið vinsæia og mikilhæfa yfirvald Vestmanna- eyinga, kapteinn Kohl (von Kohl- en) stofnaði, var sem mestur, færð- ist mikið fjör í hið fábreytta skemmtanalíf eyjanna, með t ölu- verðum glæsibrag. Viðhafnarmikl- ir brúðkaupssiðir voru þá í hefð og genginn brúðargangur til kirkj- unnar og boðsfólkinu raðað niður til brúðargöngunnar. í broddi fylkingar leiddist brúð- gumi og brúður og á undan þeim gengu tveir brúðarsveinar. Þegar brúðarfylkingin nálgaðist kirkjuna var kirkjuklukkunum samhringt og bruðhjónin hringd inn og eigi dreg- ið nl klukknahringingunum, og barst ómurinn langar leiðir svo bergmálaði í fjöllunum, en gömiu kirkjuklukkurnar í Landakirkju voru stærstu kirkjuklukkur hér á landi en misstu loks metið fyrir kirkjuklukkum hinnar nýju Krists- kirkju í Landakoti. Brúðarsveinar staðnæmdust utan kirkjudyra og gengu bráðhjónin fyrst inn kirkjugólfið og settust i innstu kirkjustólana fram af kórn- um, og svaramennirnir við hlið þeirra. Hófst síðan vígsl- an og brúðhjónin leidd upp að altari. Að lokinni njónavígslu var kirkjuklukkunum aftur samhringt og brúðhjónin hringd út og ofan á kirkjuhljóminn dundu við, til virðingar við brúðhjónin, skoí úr gömlu fallbyssunum á skansinum. Þær voru frá lokum 16. aldar oe. leifar frá gömlu ófriðarástandi, er ríkti í Vestmannaeyum á þeirri reifaraöld og næstu þar á eftir. Úti fyrir kirkjudyrum skipaði fólkið sér aftur í fylkingu og var genginn brúðargangur heim á veizlustaðinn og skipað niður í sæti, og fór nú allt fram eftir sett- um reglum og virðingarsemi og ekkert flausturverk á, sem vel gat hent sig í flýtinum, er boðsgestirn- ir settust undir borð og snæddu morgunverðinn áður gengið var til kirkju, brauð og kjöt, og drukku þann þá sjaldgæfa kaffidrykk, er snemma þótti hnossgæti mikið. Við háborðið sátu brúðhjónin fyrir miðju og presturinn næst brúðurinni, síðan aðrir virðingar- menn og nánir ættingjar. Háborð- ið var sporöskjulagað borð og bekklr til beggja hliða út frá því, tvísett eða fjórsett eftir fólksfjölda. Veizlurnar voru oftast haldnar í hinu nýja þinghúsi eyjanna, og þinghúsborðið notað fyrir háborð og væri veizlan haldin annar3 staðar var borðið flutt þangað. Yfir háborðinu hékk hinn stóri silkifáni Herfylkingar Vestmannaeyja með gullnum stöfum. Veggir voru tjald- aðir fánum og dúkum Háborðið var dúklagt vönduðum dúki. Á neðri borðin voru léreft látin nægja. Þegar allir voru seztir las annar frammistöðumaðurinn faðirvorið og hóf að syngja borðsálminn og nokkrir aðrir með honum, er véku úr sæti og stóðu frammi við dyr meðan þeir sungu. Að loknum borðsálmi báðu frammistöðumenn í nafni brúðhjónanna gesti að taka til matar í herrans nafni. Frammistöðustarfinu fylgdi virð- ing svo slagaði upp í háleita þjón- ustu meðhjálpara, sem að vísu gat þeim útvöldu einum hlotnazt. enda höfðu frammistöðumennirnir maxg -víslegum skyldum að gegna, vox\i í senn þjónar, veizlustjórar og siða- meistarar, er höfðu veg og vanda af öllu brúðhjónanna vegna og unnu þeim ókeypis. Val þeirra var sízt af handahófi, en hreppstjórar og aðrir, sem verulegur veigur þótti að í sjálfu sveitarfélaginu, sjálfkjörnir. Eldakonur steiktu, mölluðu og suðu stórsuðu í útieldhúsi og höfðu mikið annríki við að matbúa í eina fyrir allan þorra eyamanna. Vatns- kall bar vatn að og katla með sjóð- andi vatni, frá útieldhúsi, í kaffi og púns. Búrkonur vox’u við fram-

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.