Lesbók Morgunblaðsins - 20.10.1957, Page 14

Lesbók Morgunblaðsins - 20.10.1957, Page 14
546 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS heldur, en breytt lifnaðarháttum sínum smám saman eftir því sem kringumstæður breyttust. Merki- legt er, að þær þola illa hita og sterkt sólskin enn. Var einu sinni gerð tilraun með þetta, Gila-eðla var sett mót $ól á heitum degi í eyðimörkinni, og eftir 13 mínútur var hún lömuð af hitanum. En hefði hún fengið að vera sjálfráð, hefði hitinn ekki amað henni, því að þá hefði hún skriðið niður í einhverja raka holu. Gila liggur í fylgsni alkn daginn þegar heitt er, en þegar náttar fer hún á kreik til að bjarga sér, og stundum einnig á daginn ef þykkt loft er. Köldu vormánuðina er hún þó alltaf á ferli á daginn. Meðan hún hefir nóg æti, safnar hún fitu á halann og notar þá fitu sem forða, þegar hún verður að halda kyrru fyrir vegna hita eða storma. Fer þá stundum svo, ef hún er lengi í svelti, að halinn er orðinn helm- ingi grennri en hann áður var. Það er þýðingarlaust fyrir Gila að ætla að flýa ef hættu ber að höndum, því að hún er ekki fótfrá. En hún hefir önnur ráð til að verj- ast. Á bakinu, fótunum og höfðinu eru beinskeljar hver við aðra, sam- grónar húðinni og eru eins og brynja. En auk þess er hún vel tennt og sterk í kjaftinum, og bit hennar eitrað. Hún er eina eðlan, sem gædd er því vopni, líkt og eit- urslöngur. En sá er munurinn, að í slöngunum eru eiturkirtlarnir í efri góm, en hjá Gila í neðri góm. Þeir eru tveir, sinn við hvorn kjálka og liggja frá þeim pípur fram í holar tennur með egghvöss- um brúnum. Þegar Gila bítur, hangir hún á bitinu með ótrúlegu afli. Það er þó ekki aflið, sem knýr eitrið fram í tennurnar. Hún hvæsir ákaflega og menn halda að það sé æsingin, sem kemur eitrinu á stað. Og það er sterkara en í flestum eiturslöngum. Örlítill dropi nægir til þess að bana fullorðnum hundi. Margir menn hafa dáið skjótlega af Gila- biti, en aðrir hafa tekið út óþolandi kvalir, og verða varla jafngóðir aftur, því að eitrið leggst á tauga- kerfið. Flestar eiturslöngur hringa sig upp áður en þær gera árás, en koma svo eins og elding og höggva með eiturtönnunum. Af því er kom -ið nafnið höggormur. En Gila bít- ur. Hún bítur þó ekki menn nema í sjálfsvörn. Hún er ekki hættuleg, fremur en aðrar eðlur, ef hún er látin óáreitt. Eiturbit hennar hefir þó gert hana illræmda. Francisco Hernand- ez, fyrsti náttúrufræðingurinn í Mexikó, kallaði hana hræðilegt kvikindi. Og í Mexikó hefir það verið trú manna, að ef eitur drýpur fram úr eðlu, þá muni allur gróður deya á stóru svæði þar umhverfis. Vegna þess hvernig Gila hvæsir, sögðu menn hana spúa eldi og eitri. Maður nokkur hélt því blátt áfram fram, að hann hefði með eigin aug- um séð hænuunga og hvolp stein- drepast þegar Gila hvæsti á þá! í Arizona hefir það verið trú manna, að Gila hefði engin meltingarfæri og hún hefir verið kölluð þar „skríðandi eiturbelgur". Gömul þjóðtrú segir að Gila sé kynblendingur, komin af eðlu og krókódíl (alligator). Ýmsar kynja- sögur um hana eru efiaust komnar frá Indíánum, því að þeir voru ákaflega hræddir við hana. Sagt er um hraustan Apache-Indíána, sem var allra manna hugdjarfastur, að hann hafi alls ekki þorað að koma nærri Gila-eðlu. Út af þessu fékk hún svo skrímslisnafnið. Hver er snillingur? Sá maður, sem getur talið konunni sinni trú um að minkaskinnfeldur geri hana gamal- lega. » Grusk Skeggbroddaþeyting ILLUGI Sigurðsson varð kirkjuprestur á Hólum og prófastur 1 Hegranesþingi 1755. Var honum í fyrstu illa tekið af sóknarmönnum sínum, vegna þess að hann hafði ásamt öðrum lent í óknytta- máli meðan hann var í skóla. Hann svaraði með því að kæra þá fyrir helgi- dagabrot. Þó komust sættir á, að til- stilli Gísla biskups Magnússonar og segir hann í bréfi til Magnúsar amt- manns Gíslasonar 1758: „Við síra Illuga er margt gott“. En um haustið, þetta sama ár, var hann dæmdur í prófasts- dómi frá embætti og í sektir fyrir ill- mæli um Svein lögmann Sölvason. (tsl æviskrár) Um Illuga kváðu þeir, er þeir ætluðu til Hóla í máli hans, Sveinn lögmaður og Hallgrímur prófastur Eldjárnsson, og með þeim Eggert djákni, sonur Eiríks Eggertssonar frá Ökrum, og sá maður er Benedikt hét, ólærður og fað- ir Helga prests, er síðar var í Stærra Árskógi. Þeir höfðu vind og hregg á móti. Sveinn lögmaður kvað: Illuga ýrur skella einatt framan í Sveini. Hallgrimur prófastur kvað: Hállgrími hlutur fellur hvergi rýr af þeim ýrum. Eggert kvað: Eggert má einatt hryggja eitruð skeggbroddaþeyting. Benedikt kvað: Benedikt varla vonar vingustar fremur hinum. Og létu þeir þetta vera gamán. (Ar- bækur Espólíns) En með þessu gamni vændu þeir séra Illuga berum orðum að því að hafa gert gerningaveður á móti sér. Sést það á því er þeir Sveinn og Eggert kváðu. Eitruð skeggbroddaþeyting þýð- j ir helkalt gerningaveður. Skýringa á þessu er að leita í galdratrúnni og seg- ir Eggert Ólafsson svo frá í Ferðabók- inni: „Gerningaveður var það kallað er menn vöktu vind og illviðri .... Upprimi þessa er sá, að ti) forna not- uðu menn „höfuð“ Þórs sem annað- hvort var skorið út, rist eða málað. A sá siður rót sína að rekja til þess, að sagt var, að Þór sjalfur hefði hléypt af stað veðri með því að blása svo úr skoltum sér, að skeggbroddarnir stóðu I )

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.