Lesbók Morgunblaðsins - 02.02.1958, Blaðsíða 1

Lesbók Morgunblaðsins - 02.02.1958, Blaðsíða 1
3. tbl. Sunnudagur 2. febr. 1958 XXXIII. árg. Ur sogu Reykjavíkur Þegar torfbyggingar voru bannaðar í Miðbœnum HÖFUÐBORGIN var upphaflega byggð sem iðnaðarborg. Þó var ekki hátt á henni risið, og um langt skeið mátti hún kallast torfbæa- borg. Þann svip fekk hún þegar i upphafi, eins og sjá má á skrá um hús verksmiðjanna. Þar eru talin rúmlega 20 hús byggð úr torfi og grjóti. Sum voru gömul, eins og Suðurbær, Ullarstofan, Skálinn og fjósið, en hin voru nýreist. Sum af þessum húsum voru við Aðalstræti eitt þar sem nú er Morgunblaðs húsið og annað þar sem Aðalstræti 8 stendur. Fjósið stóð þar sem nú er verslun B. H. Bjarnason, en Ull- arstofan þar sem Uppsalir eru Flest torfhúsin voru sunnan við Aðalstræti, milli Suðurgötu og Tjarnargötu og fyrir austan Tjarn- argötu. Þar voru meðal annars þessi hús: Smiðja (á horninu á Tjarnargötu og Kirkjustræti) íbúf reipslagara, íbúð lóskera, íbúð vef arasveina og beykisbúðin. Litunar- húsið, sem fyrst var hjá Elliðaán- um, var einnig flutt þangað og stóð þar sem nú er Herkastalinn, eða lítið eitt sunnar. Þegar verksmiðjurnar lögðust niður, átti að selja húsin, en eng- inn vildi kaupa þau öll í einu lagi. Var þá ákveðið að þau skyldi selj- ast á uppboðum smám saman. Og 1. ágúst 1791 voru fjögur fyrstu húsin boðin upp, þar á meðal Smiðjan. Hana keypti Jóhannes Zoéga eldri fyrir 40 rdl. 24 sk. Eftir það var þetta hús ekki kallað Suggersbær (timburnasið) snýr stafni að golu.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.