Lesbók Morgunblaðsins - 02.02.1958, Blaðsíða 8
40
LESBÓK MORGUNBLAÐSIN S
Onnur grein:
Fornleifarannsóknir staðfesta
frásagnir Gamlatestamentisins
Eftir daga Jósúa hefst járnöldin.
er fornfræðingar kalla svo. Á 12.
öld f. K. fóru menn smám saman
að nota þennan dýrmæta málm i
alls konar verkfæri og vopn, í stað-
in fyrir kopar og stein. Upphaflega
munu menn hafa fundið járnið í
brotum úr loftsteinum, en þegar
hér var komið, á 12. öld f. K., hafði
mönnum tekizt að bræða það úr
málmgrýti, og er talið að sú upp-
götvun hafi fyrst verið gerð í Ana-
tolíu, sem nú er hluti af Tyrklandi.
Konungar Hittíta heldu þessari
uppgötvun vandlega leyndri og
höfðu því einkaleyfi á járnfram-
leiðslu, enda var járnið þá álíka
dýrmætt og gull og silfur.
Arfsagnir herma, að á dögum
dómaranna hafi ísraelsmenn átt
fullt í fangi að verjast árásum ná-
granna sinna, sem höfðu járnvopr.
Það er nú sannað, að þetta muii
rétt vera.
Um 1175 f. K. réðust hinir svo
kölluðu „sæfarendur“ á Palestínu-
strönd. Þetta voru menn, sem
höfðu orðið að flýa grísk lönd, er:
ætluðu sér nú að ráðast á Egypta-
land og setjast að þar. Egyptai
ráku þá af höndum sér og settusi
þeir þá að á strönd Palestínu.
Meðal þeirra voru Filistear, eða
Philistínar. Við þá hefir landið síö-
an verið kennt og kallað Palestína.
Þeir urðu skjótt hættulegusú.
óvinir ísraelsmanna, og um eiti
skeið (eftir 1050 f. K.) réðu þeú'
öllu landinu. Þá var það að ísraels-
menu sáu sig nauðbeygða til þess
að skipta um stjórnarfar og taka
yfir sig konur^g, til þess að geta
unnið sigur á Filisteum. (Sál og
Davíð 1020—960 f. K.)
Rannsóknir á fornminjum Fil-
istea frá þessum tíma, sýna að þeir
hafa haft vopn úr járni, og allt
bendir til þess að þeir hafi farið
að dæmi Hittíta um að einoka járn-
framleiðsluna. Til þessa bendir frá-
sögnin í I. bók Samúels, 13, 19—
22: „En enginn járnsmiður var til
í öllu ísraelslandi — því að Filiste-
ar hugsuðu: ella kynnu Hebrear að
smíða sverð eða spjót — heldur
urðu allir menn í ísrael að fara
ofan til Filistea, ef þeir vildu láta
hvessa plógjárn sín, gref, axir og
brodda, þegar skörð komu í eggja;
á plógjárnum, grefum, þríforkun
og öxum, og til þess að rétta brodd
inn“. Menn hafa löngum átt bág
bagt með að átta sig á þessari fra
sógn Hún er þó ljós. Hún sýnir a
Filistear höfuð fullkomna einoku
á járni um þær mundir er Sál tó
við konungdómi. Þeir hafa eigi að
eins kunnað að bræða járnið ú
málmgrýti og vakað yfir þeirri lis1
sem hernaðarleyndarmáli, heldi
hafi þeir bannað ísraelsmönnu
að fást við járnsmíði, af ótta v
Rústirnar af Megiildo sýna að þarna hefir veriff víggirt borg.