Lesbók Morgunblaðsins - 02.02.1958, Side 16
48
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
BRIDGE
Hvað á að segja?
Þetta dæmi er tekið frá Evrópu-
meistarakeppni. Báðir eru í hættu. Þú
srt S og hefir gefið og spilin eru þessi:
A K
V K D 10 4
♦ D G 10 8
* Á K D G
Hvað segirðu á þessi spil?
Réttast er að nefna miðlitinn af
þremur, sem sé tígul. Það gerðu bæði ’
Svissar og Sviar. Mótspilari sagði eitt
hjarta. Hvað segirðu svo?
Svíinn sagði 4 hjörtu og vann fimm
slagi. En Svissinn sagði tvö lauf Hinn
sagði pass og hafði á hendi þessi spil:
«832
V Á G 9 6 3
♦ K 3
* 9 5 4
?_^’t>®®®G'>*_J
FYRIR 300 ÁRUM
Var vetur mjög stórviðrasamur aí
suðri og suðaustri. Þann 5. jan. 1658
kom ógnarveður, gerði víða skaða. Þá
sló niður alla yfirbygging af klukkna
portinu á Hólum, brotnaði ein klukka.
Víða brotnuðu skip og hús í því veðri
Maður einn í Höfðahverfi vildi hjálpa
heyi sínu, og sonur hans og dóttir með
honum. Sló manninn ofan og dauð-
rotaðist, en í hinum brotnaði hand-
leggur. Fylgdu þessum stormi miklai
eldingar og skruggur. (Vatnsfjarðar
ann.)
FYRIR 200 ÁRUUM
Skiptapar skeðu á Suðurnesjum 30
janúar (1758), sem var mánudagur-
inn annar í Þorra, þ eða 10 að tölu
að bátum. Var sagt að á þeim hefði
verið 45 menn, sem drukknuðu. Laug
ardaginn næstan eftir páska (1. apríl)
forgengu tveir bátar í Eyrarsveit, ann-
ar við lendinguna á Höfða í Eyrar-
sveit, voru á 2 kvenmenn og 3 karl
menn, komst af einn karlmaður, en
fernt drukknaði, en hinn báturinn for-
gekk í rúmsjó; vissu menn ei hvar það
FRÁ AKUREYRI. — Flugvélin rennir sér inn yfir Pollinn og byggðin á Akur
eyri blasir vel við og húsin sjást betur en ella vegna þess að jörð er snævi þakin
Hér sér fyrst á Pollinn og byggðina undir brekkunni. Þá sést kirkjan, barnaskól
inn, sundhöllin, heimavist Menntaskólans og Húsmæðraskólinn. Ennfremur má
sjá hve byggðin uppi á brekkunni er farin að teygja sig langt
(Ljósm. Ól. K. Magnússon
skeð hefði; það var i norðan áhlaupa-
garði. — Reynistaðarklaustur uppbrann
um vorið milli þess 7. og 8. apríl, all-
ur staðurinn nema kirkjan: var sagt
út hefði náðst einn kistill, sem í voru
18 silfurskeiðar og fatakista húsfrú
Þóru Björnsdóttur (Grímsst.ann.)
FYRIR 100 ÁRUM
Þíðviðri og milt veður helzt til
þrettánda (1858). Þá gerði storku og
hagleysi fyrir fé. Gengu svo kaföld
og smáblotar. Kafaldásamt í miðþorra
og 6.—9. marz norðanhríð allmikil og
harðviðri; eftir það fjúkasamt með
hægu frosti, og aftur viku fyrir páska
hríð og harka á eftir. Eftir páska stillt
og gott vorveður, en 27. apríl skipti
um með snjógangi og frostum. Þó aft-
ur þíðviðri 6.—12. maí, en þaðan fram
yfir hvítasunnu stöðug harka og land-
norðanstormur. Frá 24. júlí—13.
ágúst aldrei regnlaus dagur. Haustið
mjög rigningasamt, og vikuhríð í byrj-
un október með ofsaveðri lengst og
stórfenni og hörku. I lok október kom
hláka mikil og fellu þá viða skriður
Þá fórst bærinn og mikið af túni og
engjum á Skriðulandi í Kolbeinsdal
(Úr Brandstaðaann.)
FYRIR 50 ÁRUM
Árferði var yfirleitt hið bezta allt
þetta ár (1908). Fyrstu þrjá mánuði
ársins mátti heita eymunagóð tíð.
marga daga var veður líkast sumar
dögum, logn, bjart og hlýtt. Frosl
aldrei yfir 5 st. á hádegi. Um sumar
mál gerði kuldakast nokkra daga. Vor
ið var eitt hið bezta, hver dagurim
að heita mátti öðrum betri. Haustið
var óvenjulega milt. Seinustu daga
ársins (28.—29. des.) gerði aftakaveð
ur á austan. Skip héðan, í vetrarlagi á
Eiðsvík, skemmdust og eitt sökk. —
(Árb. Rvíkur).
Milljónamæringur var á ferð í bíl sín
um í fjallaskarði nokkru. Þá kom bíll
á móti honum. Vegurinn var svo
þröngur, að hvorugur komst áfram
klettaveggur á aðra hönd en hengi
flug á hina. Milljónamæringurinn var
á hraðri ferð. Hann keypti því hinn
bílinn og lét velta honum út af hengi
fluginu.