Lesbók Morgunblaðsins - 15.03.1959, Blaðsíða 2

Lesbók Morgunblaðsins - 15.03.1959, Blaðsíða 2
130 LESBÓK MORGUWBLAÐSINS pakka. Hún barst um allt héraðið. Efnið var um friðun fugla, út af auglýsingu í útvarpinu. Öðru sinni var gamanvísa ort um mann, sem bjargaði kartöflupoka frá að falla í sjóinn við uppskipun. En inn í vísuna var felld biblíuskýring, sem gaf henni vængi. Verkamaður féll a hálu gólfi 1 sláturhúsinu á Húsa- vík. Þá fæddist vísa með kirkju- legri aðvörun. Ofar vísum og kvæðum augnabliksins fæddust á Húsavík ljóð Huldu, Guðfinnu frá Hömrum og þýðingar Helga Hálf- d|narsonar. Ferskeytlan er útvörður skáld- menntar í landinu. í skjóli hennar ganga stórskáldin fram og freista gæfu sinnar. íþrótt skáldanna hef- ur vekjandi áhrif á allt andlegt líf í umhverfinu. Sum af ljóðunum verða ævarandi menningareign. Hér á landi hefur því verið veitt allt of lítil eftirtekt að ljóðgáfa er fremur sjaldgæfur eiginleiki. Það er ekki nóg til að verða ljóðskáld, að hafa til að bera miklar gáfur, mikinn lærdóm og mikla ást á ljóðagerð. Tveir frægir Norður- landamenn, Dani og íslendingur, hafa sannað þessa kenningu mjög áþreifanlega. Georg Brandes var á sinni tíð athafnamesti og frægasti bókmenntafræðingur á Norður- löndum. Samt gat hann ekki ort kvæði, sem hafa bókmenntagildi en í verkum hans er örlítið sýnis- horn af hversdagslegri ljóðagerð, sem aldrei er getið í sambandi við afrek hans. Dr. Guðmundur Finn- bogason var afburðamaður í bók- menntafræðum, fjölgáfaður, lærð- ur svo að af bar, unni skáldskap flestum fremur og kunni utan- bókar snilldarljóð á mörgum tungumálum. Þessi ljóðaauður var Guðmundi handbær þannig, að þar fékk hann, hvenær sem með þurfti, skáldlegar líkingar í ræður og rit- gerðir. Samt var dr. Guðmundur Finnbogason ekki skáld. Það vissi hann vel og reyndi aldrei í alvöru að yrkja íslenzk ljóð. En hann hafði mætur á sléttuböndum og lék sér stundum að því að yrkja sléttubandavísur, til að heiðra það erfiða og sjaldgæfa Ijóðaform. Sú staðreynd, að Georg Brandes og Guðmundur Finnbogason urðu ekki ljóðskáld, þrátt fyrir óvenju- legar gáfur, lærdóm og bókmennta- hneigð, styður þá kenningu, að menn verða ekki skáld nema þeir séu gæddir meðfæddri Ijóðgáfu. Það er kostur ljóðformsins að mannleg hugsun virðist verða skýrari ef hún er framborin í ljóð- formi, heldur en í lausu máli. Hef- ur þetta nýlega komið fram í góð- látlegri bókmenntaþraut hér í bænum. Atómhöfundur reyndi að gera kvæði án þess að fylgja hefð- bundnum háttum íslenzkrar ljóð- listar, en varð fyrir því óhappi, að ljóðrænn tollvörður úr Húnaþingi breytti atómiðjunni í laglegt og vel rímað ljóð. Tollvörðurinn bjargaði neistum atómmannsins frá glötun með því að fella fátæk- legt efni í þrautreynt ljóðform. Við það varð atómiðjan frambærilegt gamankvæði. Hafa þessi sannindi um ágæti ljóðformsins lengi verið kunn í sambandi við stærri verk- efni, heldur en hér var um að ræða. o—_0------o Nú verður vikið að Kjartani Ólafssyni, brunaverði, þeim rithöf- undi, sem hefur gefið tilefni til að hér er minnst á aðstöðu reyk- vískra skálda. Kjartan er Borg- firðingur og tryggur sonur þess fagra héraðs. Ungur dvaldi hann nokkra stund á Akranesi, en þaðan hallaði undan fæti til Reykjavíkur og þangað fór Kjartan í landnáms- hug, áður en hann náði miðjum aldri. í Reykjavík hefur Kjartan unnið að brunavö’rnum um langt skeið. Fyrir skömmu stóð hann fyrir brunavarnadeild, sem bjarg- aði Landakotsspítala frá að verða eldi að bráð. Brunastöðin er á bökkum Tjarnarinnar. Brunaverð- irnir eru verndarar fuglanna, sem heyja þar lífsbaráttu sína við breytileg skilyrði. Kjartan er ein- lægur dýravinur og hefur ort all- mikið bæði um Tjörnina og fugla- líf hennar og gerst leiðtogi í að- hlynningarstörfum fuglavinanna í Reykjavík. Þannig er saga Kjart- ans Ólafssonar brunavarðar. Hann er sonur og fóstursonur Borgar- fjarðar, Akraness og Reykjavíkur, gætir vel sinna borgaralegu starfa, yrkir Ijóð um alla þessa staði og mörg önnur viðfangsefni. Yrkis- efnin koma í fang ljóðrænna manna, sem fylgjast af áhuga með straum atburða hins daglega lífs. Kjartan minnist vina sinna í ljóð- um sínum, ættjarðarinnar, frelsis- hátíðanna 1918, 1930 og 1944. Hann yrkir um vaska flugmenn, eftirmæli um gömul og góð fyrir- tæki í bænum, eins og Steinbryggj- una og Báruna, sem var fyrsta höll íslenzkra sjómanna. Hann minnist oftlega bjartra vordaga og heitra sumarkvölda. Hann yrkir hlýlega um flokkinn sinn, Sjálfstæðis- mennina, og hinn dána foringja hans, Jón Þorláksson. Annars hafa söguhetjur hans átt heima í mörg- um herbúðum: Sr. Friðrik Frið- riksson, Haraldur Níelsson, Sigfús EinarsSon, ævintýraskáldið Nonni, Vilhjálmur Stefánsson landkönn- uður, Jakobína Johnson, skáld- kona í Ameríku o. fl. Kjartan hef- ur gefið út tvær ljóðabækur og kallað þær Óskastundir. Sennilega bætir hann við .innan tíðar þeirri þriðju, því að stöðugt gætir frá hans hendi nýrra ljóða í blöðum og tímaritum. Þannig kveður Kjartan Ólafsson: Landið kæra, landið góða, landið mitt og fósturjörð. Foldin sagna, söngs og ljóða særinn um þig heldur vörð. «

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.