Lesbók Morgunblaðsins - 15.03.1959, Blaðsíða 8
1S6
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
VitaskipiS
Hermóður.
gerðist
febrúarmánuði
Þetta
ÞESSI mánuður mun lengi hafður
i minnum vegna stórviðra og stór-
slysa.
Sunnudaginn 8. febr. brast á of-
vlðri með miklu frosti á Nýfundna-
landsmiðum, þar sem íslenzku tog-
ararnir hafa verið á karfaveiðum.
1 þessu veðri hvarf togarinn Júlí frá
Hafnarfirði og er talið að hann
muni hafa farizt um nóttina með
30 manna áhöfn. Annað skip hafði
samband við hann seint á sunnu-
dagskvöld og lét Júlí þess þá ekki
getið að neitt væri að hjá sér. En
eftir það heyrðist ekkert í honum.
— Leit var þegar hafin og leituðu
flugvélar að vestan, flugvélar af
Keflavíkurflugvelli og mörg skip.
Stóð þessi leit í viku, en bar engan
árangur. — Virðuleg minningarat-
höfn um skipshöfnina fór fram í
Hafnarfjarðarkirkju laugardaginn
28. —
1 þessu sama veðri var togarinn
Þorkell máni mjög hætt kominn
vegna ísingar. Tók skipstjóri það til
bragðs að höggva bátana frá skip-
Inu og bátauglur, og við það létti
•vo á skipinu, að það fór betur i
sjó. — Togarinn Pétur Halldórsson,
sem var á heimleið, fekk á sig áfall
og brotnaði nokkuð. — Togarinn
Gerpir fekk áfall á útleið fyrir
sunnan Grænland og urðu á honum
talsverðar skemmdir. —
Um sama leyti og leitinni að Júlí
var hætt varð annað sjóslys. Þá fórst
vitaskipið Hermóður í stórviðri og
stórsjó vestan við Reykjanes. Á hon-
um var 12 manna áhöfn, og höfðu
þannig 42 sjómenn drukknað á
skömmum tíma. Svo virðist sem
bæði sjóslysin hafi borið svo brátt
að, að hvorugt skipið gæti sent út
neyðarkall. — Leit var þegar hafin
meðfram ströndinni frá Reykjanesi
að Garðskaga, og fundust bátar
skipsins reknir skammt frá Kal-
mannstjörn. Síðan leituðu skip og
flugvélar úti fyrir ströndinni og
komust helzt að þeirri niðurstöðu
að Hermóður muni liggja á marar-
botni 4,5 sjómílur út af Höfnum. —
Samskot voru hafin víðs vegar
um land vegn aðstandenda þeirra,
sem fórust með báðum skipunum.
Um mánaðamót höfðu safnazt rúm-
lega IMJMIO kr. i Reykjavík og
Hafnarfirði og 36 þús. kr. á Akur-
eyri.
VEÐRÁTTAN
Stórviðrasamt var venju fremur í
þessum mánuði. Ofsarok með þrumum
og eldingum fór yfir landið aðfaranótt
10. og olli þar víða tjóni. Eldingum
laust víða niður. Skammhlaup varð á
Sogslínunni vegna eldingar og varð
rafmagnslaust um hríð í Reykjavík.
Eldingum laust niður á tveimur stöð-
um á Akranesi, kom önnur á íbúðar-
hús, hin á símstöðina og fóru 50 tal-
símar úr sambandi. Þá laust eldingu
niður í hina nýu kirkju í Borgarnesi
og kviknaði í henni, en eldinn tókst
bráðlega að slökkva. Víðar urðu eld-
ingar að tjóni. Þessu veðri fylgdi mikið
brim og sjávarflóð víða. 1 Grindavík
urðu mikil spjöll á hafnargarðinum, en
á Akranesi gekk flóð á land og komst
það meðal annars inn í Sementsverk-
smiðjuna. Báta sleit upp viða. Mikil
úrkoma fylgdi sums staðar og olli hún
skriðuhlaupum á Bíldudal og miklu
tjóni. Vb. Baldvin Þorvaldsson frá
Siglufirði komst í mikinn háska, bilaði
véi hans úti á hafi, en honum bjarg-