Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 15.03.1959, Qupperneq 6

Lesbók Morgunblaðsins - 15.03.1959, Qupperneq 6
134 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS Halldór Steídnsson: Fyrsta alþingiskosningin í Norður-Múlasýslu og fyrsti þingmaðurinn ÞAÐ hefir ítrekað verið á orði haft í sögufræðum, að Norðmýl- ingum hafi hraparlega mistekizt fyrsta þingkosningin og að sá, sem kosinn var, Þorsteinn Gunnarsson bóndi á Hreimstöðum í Hjalta- staðaþinghá, hafi verið lítt fær til þingsetu, enda notið lítils álits á þinginu, og það fært til sanninda- merkis, að hann hafi í enga þing- nefnd verið kosinn. Þessi söguritun gefur tilefni til athugunar á því sem kunnugt má vera um kosninguna og fulltrúann, sem kosinn var. Við þessa fyrstu þingmannskosn- ingu Norðmýlinga höfðu ekki kosn- ingarétt aðrir en jarðeigendur. Aðrir sem til greina gátu komið voru þar engir. Kosningarétt áttu 33 menn; að- eins 22 sóttu kjörfundinn. Kosningin fór fram á Fossvöll- um 10. maí 1844 undir forsæti J. C. Voight sýslumanns. Kjörvottar voru séra Benedikt Þórarinsson á Ási og Guttormur stúd. og bóndi Vigfússon á Arneiðarstöðum. Kjósa skyldi tvo menn í einu lagi, þingmann og varaþingmann. Kjósandi hver skyldi því greiða tveimur mönnum atkvæði, og þeir tveir menn hljóta kosningu, sem flest atkvæði fengi, aðalmaður að sjálfsögðu sá þeirra, sem fleiri fengi atkvæði. Kosið var í heyr- anda hljóði. Meginhluti atkvæðanna féll á fimm menn og skiptust þannig: Þorsteinn Gunnarsson sátta- nefndarmaður og bóndi á Hreim- stöðum hlaut 14 atkvæði, Gutt- ormur Vigfússon stud. og bóndi á Arneiðarstöðum 8, Þorsteinn Bjarnason bóndi á Höfn við Bakka- ijörð 7, séra Einar Hjörleifsson á Dvergasteini og Jóhannes hrepp- stjóri Magnússon á Hallgeirsstöð- um í Jökulsárhlíð 5 hvor. — Þau fáu atkvæði, sem ekki komu hér fram, féllu á fjóra menn. Ætla verður að þeir fimm menn, sem meginhluta atkvæðanna fengu, hafi lýst framboðum sínum á kjörfundinum með ræðum, og gjört grein fyrir afstöðu sinni til mála, sem á dagskrá voru. Ágrein- ingsmál voru engin innanhéraðs, að kunnugt sé. Og allir voru á einu máli um fylgi við stefnu Jóns Sig- urðssonar í sjálfstjórnarmálinu. Augljóst er að álit Þorsteins Gunn- arssonar hefur ekki verið lítið í héraðinu jafn álitsmiklir menn sem á móti voru. Á þinginu komu fram fimm til- lögur (,,uppástungur“) úr N-Múla- sýslu studdar af fjölmörgum und- irskriftum sýslubúa. Tillögur sama efnis komu úr öðrum kjördæmum. Öllum tillögum úr kjördæmum, sama efnis, var vísað til einnar og sömu nefndar. Nefndir um mál frá kjördæmunum voru því ekki marg- ar. Það vottar því harla lítið um álit Þorsteins á þinginu, þótt hann væri í enga nefnd kosinn. Og af setu hans á fyrsta og eina þinginu, sem hann sat, verður harla lítið ráðið um álit hans á þinginu né færni til þingsetu. Hitt ber aug- ljósara vitni um færni hans og álit, að í héraði sínu hafði hann al- mennast traust kjósendanna af þeim mætu hæfileikamönnum, sem um var að velja. Hvað svo til þess kom að Þor- steinn sótti ekki síðara þingið, sem hann var kosinn til, er ekki kunn- ugt. Líkast að sjúkleiki hafi vald- ið, þegar þingför þurfti að hefjast. Ekki er annað kunnugt en að hann hafi haldið áliti sínu og vinsæld- um í héraðinu til dauðadags. Af keppendunum um þingsætið eru séra Einar og Guttormur svo kunnir menn, að ekki þarf að gjöra frekari grein fyrir þeim. Þorsteinn á Bakka var gildur bóndi, sem kom einn síns liðs til kosningarinnar langa vegu. Hann var utanhéraðs- maður að ætt og uppruna. Álit á honum hefur ekki verið lítið, svo nærri sem lét, að hann fengi sæti varaþingmanns. Jóhannes á Hall- geirsstöðum var vel metinn og vin- sæll bóndi og forráðamaður í sveit sinni. Nú er á það að líta nánar, hver hann var og hvernig gerður þessi maður, sem eindregnast fylgi hlaut við kosninguna. Þorsteinn á Hreimsstöðum var þingeyskur að ætt, sonur Skíða- Gunnars Þorsteinssonar bónda á Ási í Kelduhverfi, og því föður- bróðir séra Sigurðar á Desjamýri og Hallormsstað. Er sú ætt al- kunn. Tæplega hálf þrítugur að aldri réðst hann vorið 1824 í vist hjá rosknum barnlausum hjónum á Hreimstöðum, Halli Jónssyni og Guðrúnu Björnsdóttur. Þau voru vel við efni og áttu m. a. bújörð sína. Áður hafði Þorsteinn vistast

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.