Lesbók Morgunblaðsins - 15.03.1959, Síða 10
íst
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
Þannig var ísingin
á togurum í of-
viðrinu hjá Ný-
fundnalandi.
arins voru bátar byrjaðir á netjaveið-
um. — Togararnir voru flestir á karfa-
veiðum vestur hjá Nýfundnalandi í
byrjun mánaðarins, og var þar sami
uppgripaaflinn og áður. En eftir að
togarinn Júlí fórst þar, var karfaveið-
unum hætt, og voru togararnir á
heimamiðum eftir það. Afli þeirra var
nokkuð að glæðast undir mánaðarlok-
in. Sjö togarar seldu afla sinn í Eng-
landi í mánuðinum og fengu frá 4000—
12000 Sterlingspund fyrir farminn, en
voru yfirleitt með lítinn fisk. í Þýzka-
landi seldu fjórir togarar og fengu
48.000—139.000 mörk fyrir aflann. —
Silungsveiðar hófust í Mývatni 1.
febr. og var þar uppgripaafli allan
mánuðinn, bæði í net og á dorg. Var
aflinn meiri en markaður var fyrir
innan lands, svo nokkuð af veiðinni
átti að senda á erlendan markað.
LANDHELGISDEILAN
Varðskipið Þór stöðvaði enskan tog-
ara, Valafell, sem var að veiðum innan
4 mílna út af Loðmundarfirði. Ensku
herskipin vörnuðu Þór þess að fara
með togarann til hafnar, en sendu
skeyti til Englands með fyrirspurn um
hvað gera ætti. (3.). Síðan lágu skipin
þarna þrjú í fjóra daga, togarinn, Þór
og brezkt herskip, og biðu eftir skeyti.
En er það kom, var það á þá leið, að
togarinn skyldi hlýðnast íslenzkum
lögum. Þá ætlaði hann að strjúka og
stefndi á haf út, en herskipið skipaði
honum að hlýða. Sigldu svo öll skipin
inn til Seyðisfjarðar (6.). Það kom í
Ijós, að togari þessi hafði verið kærður
10 sinnum áður fyrir veiðar innan 12
mílna landhelgi, en nú var nýr skip-
stjóri á honum og taldist þetta því
fyrsta brot hans. Hann var dæmdur i
74.000 kr. sekt og afli og veiðarfæri
gert upptækt. Skipstjórinn hafði feng-
ið taugaáfall út af öllu þessu, og var
lagður í sjúkrahús í Seyðisfirði (8.)
Þaðan fór hann fyrir mánaðamót og
helt heim til Englands.
í lok mánaðarins lögðu Bretar niður
verndarsvæði sín hjá Austurlandi, en
tóku upp tvö ný verndarsvæði á aðal-
fiskimiðum íslendinga á Selvogs-