Lesbók Morgunblaðsins - 15.03.1959, Side 14
142
LES.bOK. MUKu■ví'.ídÍjALöííNS
Endurskoðendur ríkisreikninga voru
kosnir Jón Pálmason, Björn Jóhannes
son og Jörundur Byrnjólfsson (21.)
Fimm menn voru kosnir í nýbýla-
stjórn: Jón Pálmason, Jón Sigurðsson,
Benedikt Gröndal, Steingrímur Stein-
þórsson og Ásmundur Sigurðsson (21.)
Þrír menn voru kosnir í stjórn
Áburðarverksmiðjunnar: Pétur Gunn-
arsson, Kjartan Ólafsson og Vilhjálm-
ur Þór (21.)
Fimm menn voru kosnir í stjórn
Síldarverksmiðjanna: Sveinn Bene-
diktsson, Sigurður Ágústsson, Jóhann
Möller, Eysteinn Jónsson og Þóroddur
Guðmundsson. — í síldarútvegsnefnd
voru kosnir: Jón L. Þórðarson, Erlend-
ur Þorsteinsson og Björn Kristjánsson
(21.)
Nýr bátur, Gu-llver, 75 smál., smíð-
aður í Danmörk, kom til Seyðisfjarðar
(25.)
MENN OG MALtFNl
Fundur menntamálaráðherra Norð-
urlanda haldinn í Ósló 2.—4. febr.
Birgir Thorlacíus ráðuneytisstjóri sótti
fundinn fyrir íslands hönd (1.)
Fiðluleikarinn Tossy Spirakovski
kom hingað á vegum Tónlistarfélags-
ins (1.)
Þórey Sigurjónsdóttir hlaut fyrst ís-
lenzkra kvenna ágætiseinkunn við
embættispróf í læknisfræði (4.)
Sendiherra Finna, frú Tyyne Leivo
Larsen, afhenti forseta trúnaðarbréf
(4.)
Frú Auður Auðuns var endurkjörin
forseti bæarstjórnar Reykjavíkur (6.)
Frú Gróa Pétursdóttir var kosin for-
maður Kvennadeildar Slysavarnafé-
lagsins í Reykjavík (7.)
Tíu íslenzkum námsmönnum er boð-
inn styrkur til framhaldsnáms í Banda-
ríkjunum 1959—60 (8.)
Stjórnarkosning fór fram í Iðju, fé-
lagi verksmiðjufólks í Reykjavík og
sigruðu lýðræðissinnar glæsilega (10.)
Baldur Eiríksson var kosinn forseti
bæarstjórnar Siglufjarðar (10.)
Dr. Sigurður Þórarinsson fór til Nor-
zö halda íyrirlestra þar í hé kólum
og visinúaíélagi (10.)
Vladimir Polevic, sendiherra Júgó-
slafíu, afhenti forseta trúnaðarbréf sitt
(12.)
Árni Jónsson var endurkjörinn for-
maður Sjálfstæðisfélags Akureyrar
(12.)
Tamas Aczel, ungversKur rithöfund-
ur, kom hingað á vegum Frjálsrar
menningar og flutti fyrirlestra (14.)
Stjórnarkosning fór fram í Múrara-
félagi Reykjavíkur og sigruðu lýðræðis
sinnar glæsilega (17.)
Jón ísleifsson verslunarmaður var
endurkjörinn formaður Sjálfstæðisfé-
lagsins Skjaldar í Stykkishólmi (18.)
Leifur Tómasson var kosinn formað-
ur Varðar, félags ungra Sjálfstæðis-
manna á Akureyri (18.)
Dr. Sigurður Sigurðsson hefur verið
skipaður landlæknlr frá 1. janúar 1960
(18.)
Búnaðarþing hófst í Reykjavík þann
20.
Björn Björnsson sýslumaður tók
sæti á Alþingi í stað Sveinbjarnar
Högnasonar (21.)
Karlakór 'Reykjavíkur hefir verið
boðið í tveggja mánaða söngför um
Bandaríkin og Kanada haustið 1960
(24.)
Dr. Gunnlaugur Þórðarson tók sæti
á Alþingi í stað Péturs Péturssonar
(24.)
Ferðafélag var stofnað í Keflavík og
verður deild úr Ferðafélagi Islands
(25.)
Guðmundur H. Garðarsson var end-
urkjörinn formaður Verslunarmanna-
félags Reykjavíkur (25.)
Sýning var haldin á málverkum, sem
eiga að sendast til Rússlands og sýnast
þar (27.)
Konur skipstjórnarmanna á fiski-
skipum stofnuðu félag með sér í
Reykjavík og heitir það Aldan. For-
maður er frú Laufey Halldórsdóttir
(27.)