Lesbók Morgunblaðsins - 25.03.1959, Page 3

Lesbók Morgunblaðsins - 25.03.1959, Page 3
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 147 við þetta, að ekki sé minnzt á Guð- mund Ólafsson frá Eyarhólum. Hjörleifur í Sandaseli keypti smákassa með flöskum. Það voru víst á þeim létt vín. Nú reið á miklu að fá trúverðugan mann til þess að gæta fengins fjár, og fyrir val- inu varð Guðmundur. Eg man hvað Guðmundur var ánægður í þessu ábyrgðarmikla starfi. Það leið ekki langur tími, þar til hann var búinn að dreypa á öllum flöskunum. Eg tók eftir því að hann gretti sig við eina. Svo kom á hann glettnissvipur og harin lagði flöskuna til hliðar. Margir litu til Guðmundar og gáfu um leið flöskunum hýrt auga. Svo vatt sér einn að honum og segir: „Gef þú mér öl“. Þá umlaði í karli: „Eg má það ekki, beiddu hann Hjörleif, hann á það“. Manngreyið fer til Hjörleifs og fær leyfi, kemur svo til Guðmundar og er heldur kátur. Karl var ekki lengi að hugsa sig um, tekur flöskuna, sem hann hafði lagt afsíðis og réttir honum: „Vertu nú fljótur, svo að hinir sjái það ekki“. Það var ekki að sökum að spyrja, maðurinn tekur gúlsopa og rennir þegar niður. En þá varð Guðmundur dálítið alvarlegur á svipinn, því að maðurinn ætlaði ekki að ná andanum. Þó lagaðist þetta bráðum og þá segir hann: „Þetta er ekki öl, þetta er andsk.. eitur!“ Þegar Guðmundur sá, að þetta ætlaði ekki að verða alvarlegt, glotti hann og tók flöskuna í sína vörslu, og var sýnilega að hugsa um að nota hana, ef annað tækifæri byðist. Um kvöldið er hann var kominn heim að Sandaseli, og þá góðglaður, lagði hann sig upp í rúm og stakk flöskunni undir koddann hjá sér. Seinna um kvöldið kemur annar maður, sem líka hafði verið á uppboðinu. Hann hét Högni, mig minnir frá Sólheimum. Guðmund- ur var ekki lengi að bjóða í staup- inu, hellir á glas og réttir Högna. Máske hefir Högni grunað Guð- mund um græsku, því hann dreypti aðeins á og líkaði ekki bragðið. Hinn segir að það sé ekki að marka, hann skyldi súpa meira. En ekki vildi bragðið batna. Þá sýpur gamli maðurinn í botn og segir: „Það er gott þegar maður fer að venjast því“. Á þessu skipi var ein koníaks- tunna. Hún fór á 101 krónu og þótti óheyrilega dýr, því að venja var að bjóða í þær 20—30 krónur. Sá, sem keypti, var í þann veginn að gifta sig. Ekki mun það þó hafa ráðið verðinu, heldur hljóp einhver stífni í tvo menn, og buðu þeir hvor í kapp við annan, þangað til Guð- laugi þótti nóg komið og sló tunn- una þegar 101 króna var boðin. «£• ik Þetta, sem eg hefi nú sagt í sam- bandi við uppboðið, er ekki sér- staklega merkilegt. Eg vildi aðeins sýna með því, að það var margt sem skeði í sambandi við skip- strönd í Meðallandi og víðar, og margt af því spaugilegt og gaman að rifja það upp. Því ber ekki að neita, að skip- strönd voru nokkurskonar hval- reki. Menn fengu þá margt, sem þá vanhugaði um. Þeir fengu efni í selanætur og nótavaði (troll- tvinna), sömuleiðis efni í reipi, og þá var ekki amalegt að fá segla- striga í ullarpoka og yfirklæðningu á melreiðing. Væri um tréskip að ræða, þá voru þau rifin að mestu. Þar fekkst ágætur viður til húsbygginga. Svo komu nokkrar krónur fyrir vinnu og hestalán. Eg skal nú lýsa baðstofunni í Sandaseli 1908. Veggir voru að sjálfsögðu hlaðn- ir úr kekkjum og lítilsháttar úr grjóti. Stoðir og bitar úr skipsbönd- um (sem menn kölluðu þar „inn- holt“), móleður og sperrur úr rám og svo súðin niðursöguð möstur. Það var erfitt verk að saga þennan harða við, og þá ekki sízt fyrir unglinga. Svipað mun hafa verið á fleiri bæum. Þrátt fyrir það þótt mönnum áskotnaðist ýmislegt í sambandi við skipströnd, þá hygg eg óhætt að fullyrða, að enginn hafi óskað eftir strandi. Það var oft brimasamt við sandana og landtaka ekki góð og mátti því búast við manntjóni í hvert sinn sem skip fór þar upp, en eg tel undravert hvað það kom þó sjaldan fyrir. Einar Jónsson málari, bróðir Hjalta skipstjóra, var hagyrðingur góður. Eg set hér eitt erindi úr kvæði eftir hann: Leiði sýslu á lukkubraut ljóssins góðu andar; grænki hæðir, grund og laut, grói hraun og sandar. Hvalirnir þar hlaupi á land og höfrungarnir trylltir, en enskir upp í svartan sand sigli ei áttavilltir. Þannig hygg eg að Skaftfelling- ar hafi yfirleitt hugsað og hugsi enn. Meðo/ v/ð lömunarveiki SALK-BÓLUEFNIÐ hefir reynzt ágæt- lega gegn lömunarveikinni, en nú er komið nýtt meðal, sem þykir öllu betra og handhægara. Eru það töflur, sem menn taka inn og er talið óhætt að gefa þær börnum á fyrsta ári. Meðalið hefir í tilraunaskyni verið reynt á 75.000 börnum, og virðast þau öll hafa orðið ónæm fyrir lömunarveiki, því að ekkert þeirra hefir sýkzt af henni. En aðallega hefir það verið notað suður í Kóngó, því að Svertingjar eru hrædd- ir við nálar, en hika ekki við að gleypa meðöl. Þar hefir þetta nýa lyf verið reynt á 275.000 börnum og fullorðnum, og hefir ekki orðið vart lömunar i neinum, sem meðalið hefir fengið.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.