Lesbók Morgunblaðsins - 17.05.1959, Blaðsíða 10

Lesbók Morgunblaðsins - 17.05.1959, Blaðsíða 10
258 LESBÓK MORGJMBLAÐSINS Jón Dúason dr Snœbjörn galti og landafundir íslendinga HVER var Snæbjörn galti? Hvar er hans getið í íslenzkum kennslu- bókum? Hvert var afrek hans og með hvaða atburðum gerðist það? Hvaða þýðingu hafði það fyrir sögu og lífsmöguleika íslenzku þjóðar- innar? Hvaða þýðingu hafði það fyrir veraldarsöguna og framvindu heimsmálanna? Hver hefir svörin á reiðum höndum? Og að lokum: Hvað er orðið allt vort starf í þús- und sumur, og höfum vér gengið til góðs götuna fram eftir veg? Þessar spurningar vekur mér í hug hin sannsögulega skáldsaga Sigurjóns Jónssonar um garpinn Snæbjörn galta og hina fögru og mikilúðugu dóttur goðans og stór- höfingjans Tungu-Odds. órjúfanlega heild. Þetta er þjóð- söngur, sem er í senn djarfur og viðkvæmur, laus við allt prjál og grobb, en þrunginn ættjarðarást og sjálfstæðiskennd. Árið eftir að kvæðið birtist í „Illustreret Nyhedsblað“, var það í fyrsta skipti sungið sem þjóðsöng- ur Norðmanna á 17. maí hátíða- höldum — réttum 50 árum eftir Eiðsvallarfundinn. Síðan hefir þessi söngur hljóm- að í blíðu og stríðu og eflt djörf- ung og þjóðerniskennd í brjóstum Norðmanna, og um leið vakið hjá þeim þakklæti til snillinganna Björnsons og Nordraak, sem gáfu þeim slíka hvöt í orðum og tón- um. Hin fáorða frásögn í Landnámu, sem er aðaluppistaðan í þessari skáldsögu, á án efa eftir að verða uppistaða í, og rómuð af mörgum fögrum og stórbrotnum kvæðum, óperum og harmleikum, sem fara sigurför um alla heimsbyggðina og mæra opnun hins nýja, vestræna heims. En þótt allt þetta eigi fyrir höndum að gerast, vænti eg, að frumherji þessara bókmennta, þessi af andríki og hugkvæmni og ást til íslenzku þjóðarinnar og allra fornra og ágætra erfða hennar inn- blásna skáldsaga Sigurjóns, fái haldið velli til jafns við þær, grundvölluð sem hún er á djúp- stæðri þekkingu. En skáldsaga Sigurjóns er eitt umfram það, sem búast má við um nokkrar hinna: Samvizkuspurning og eggjunaróð- ur til vor, sem nú lifum, eins og orð Jónasar voru til samtíðar- manna hans fyrir meira en hundr- að árum, þótt allt sé nú orðið breytt. En hvernig var eggjunum Jónasar tekið þá? „Dauft er 1 sveitum hnípin þjóð í vanda“. Þessar línur eiga ekki að vera ritdómur um „Snæbjörn galta“, en vegna þeirra, sem kynnu að vilja kynna sér boðskap bókarinnar, verð eg þó að segja þetta: „Snæbjörn galti“ er fögur og hrífandi skáldsaga, byggð á djúp- stæðri sögulegri og menningar- sögulegri þekkingu, eins raunsæ, öfgalaus og sannsöguleg og skáld- saga getur verið, en gædd frábæru skáldlegu ímyndunarafli. í sög- unni er brugðið upp sannri, en mjög fagurri mynd af lífi því, sem lifað var hér á landi á 10. öld. Kristnin og viðkynningin við menningu vestrænna þjóða er búin að sverfa verstu hornin og vankantana af heiðninni, en sjálf er sú kristni, sem hingað barst með landnámsmönnum frá Bret- landseyum nú alveg í andarslitrun- um. Það sýnist ekki fjarri því, að sú heiðni, sem nú ríkir á íslandi, sé orðin sérstök íslenzk trúarbrögð, frábrugðin hinni gömlu austrænu heiðni. Drengskapurinn og mann- gildishugsjónir heiðninnar eru í fullum heiðri hafðar, en kreddur, bábyljur og öfgar hennar hafa rokið burt. Sagan fjallar um at- burði, sem raunverulega hafa átt sér stað, og um karla og konur, sem raunverulega hafa lifað á 10. öld. Lýsing þeirra og atburðanna

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.