Lesbók Morgunblaðsins - 15.11.1959, Blaðsíða 7
LESBÖK MORGUNBLAÐSINS
527
stærsta mældist 17 þuml. í um-
mál og vóg 1% pund. Hér var ekki
um samvaxin högl að ræða, menn
gengu úr skugga um það er þeir
klufu þau sundur til þess að rann-
saka hve mörg lögin væri.
Eftir haglstorm í Pensylvaníu
safnaði bóndi nokkur fullri körfu
af höglum, sem voru 8% þuml. í
ummál. Þar sem þessi högl höfðu
komið niður á steinstéttar, var
kastið svo mikið að þau hentust
sem boltar 10 fet í loft upp, án
þess að brotna né tvístrast. Sagt
er að í Indlandi hafi komið hagl,
sem líkt var við mylnusteina, og
hafi sum kornin vegið 7% pund,
en þar hefir áreiðanlega verið um
samvaxin haglkorn að ræða.
Það er þó enginn efi á því, að
stærra hagl hefir fallið til jarðar,
en það sem vegið var í Nebraska.
En mönnum kemur ekki saman um
hve stór höglin geta orðið. í Heid-
graben í Þýzkalandi fór hagl í
gegnum húsþak og vóg það um 4
pund. Og í Cazorla á Spáni hafa
fallið haglkorn, sem vógu 4%
pund.
Næst stærsta hagl, sem sögur
fara af, fell í Texas. Þar gerði
ógurlegt haglel í Dallas hinn 8.
maí 1926, og voru höglin 4—12
þumlungar að ummáli. Kastið á
þeím var svo mikið, að þau fóru
í gegnum húsaþök, brutu glugga og
þök á bílum og strætisvögnum.
Fjöldi manns varð fyrir meiðslum,
mörg húsdýr drápust og akrar
eyðilögðust.
— o —
Ef haglið felli beint niður,
mundi það ekki valda jafn miklu
tjóni og raun er á. En því fylgir
oftast æðiveður líkast fellibyl, og
þess vegna verður tjónið svo mik-
ið. Ekkert stenzt við. Rúður fara
í mjöl, hús, bílar og annað tætist
í sundur. Stórkostlegar skemmdir
verða því jafnan á gróðurhúsum.
Þar er ekki ein rúða heil eftir,
og allur gróðurinn er laminn og
sundur tættur. Eftir einn slíkan
haglstorm, sem gerði í Denver í
Colorado 1948, þurfti fullfermi 20
járnbrautarvagna af gleri til þess
að gera við þök á gróður-
húsum. En stundum verður
tjónið svo mikið, að það verð-
ur ekki metið til fjár.
Þegar haglstormur er í aðsigi,
forða menn sér altaf og leita skjóls
þar sem öruggt er. En einu sinni
var 39 ára gamall bóndi í Texas
á ferð þegar haglstormur reið yf-
ir. Haglið lamdi hann svo, að
hann dó fáum klukkustundum
seinna. í Klausenberg í Rúmeníu
fell eitt sinn hagl, sem var á stærð
við hænuegg. Þar biðu sex börn
bana, en tíu meiddust stórlega.
í Rostov í Rússlandi var hagl-
stormur í aðsigi. Fólk flýtti sér
eins og það gat að reyna að bjarga
skepnum sínum í hús, en haglið
kom á það og drap 23 menn. Árið
1936 drap haglið um 20 svertingja
í Afríku og fundust líkin undir 3
feta djúpum haglskafli. En mest
manntjón af hagli varð í Morada-
bad í Indlandi 1888. Þar fórust
rúmlega 200 menn.
Stundum ná haglelin yfir stórt
svæði. Árið 1939 fór haglstormur
yfir Hyderabad í Indlandi og
stórskemmdi 17 þorp á 30 enskra
fermílna svæði. Veðrið var óskap-
legt. Haglið tætti gjörsamlega lauf
af trjám og braut 700 helluþök í
mola, eyðilagðri 400 stráþakin hús
og þúsundir ekra af ræktuðu landi,
drap 200 nautgripi og 1000 kindur.
En slíkar hamfarir eru svo sem
engin nýung. í 10. kapítula Jósúa-
bókar í gamla testamentinu, segir
frá því, að þegar óvinir ísraels-
manna voru á flótta „niður frá
Bet-Hóron, þá lét drottinn stóra
steina falla yfir þá af himni alla
leið til Aseka, svo að þeir dóu;
voru þeir fleiri er fellu fyrir hagl-
steinunum, en þeir, er ísraelsmenn
drápu með sverðseggjum".
Sagt er að haglstormur hafi ráð-
ið úrslitum í orustu milli Frakka
og Breta árið 1360.
Aristoteles minnist á haglel í
skrifum sínum fjórum öldum fyr-
ir Krists fæðingu. Og Forn-Grikk-
ir höfðu þann sið að fórna lömb-
um til þess að afstýra haglstorm-
um.
En nú þekkja menn varla annað
ráð, en leita skjóls í húsum inni.
Það verður að fara um akrana
eins og verða vill. Mannslífin eru
dýrmætari. Og þótt helluþök
standist ekki haglelin, þá eru
málmþök örugg og steypt þök þó
bezt.
— o —
Er hægt að spá fyrir um hagl-
storma? Það er undir hælinn lagt.
Með því að senda loftbelgi með
mælingatæki upp í háloftin, geta
menn að vísu komist eftir því
hvar öflugt uppstreymi er, en þar
eru mestar líkur til þess að hagl
myndist. Þó er erfitt að segja fyrir
um það hvar haglið muni koma
niður, né hvenær það muni koma
niður. Með ratsjám er hægt að
uppgötva haglel, og mörgum sinn-
um hefir flugvélum verið forðað
frá því að lenda í haglstormunum.
Með síauknum veðurathugunum
og bættum rannsóknartækjum,
komast menn ef til vill að því hvers
vegna hagl myndast og stormar
í sambandi við það. Og þá finnast
ef til vill öruggari ráð gegn hagl-
stormunum heldur en að skjóta á
þá- —*
Lögreglustjóri: Hafið þið náð i inn-
brotsþjófinn?
Lögregluþjónn: Nei, en við höfum
gert hann svo hræddan, að hann þorir
ekki að láta sjá sig ef við erum eln-
hvers staðar nærri