Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1959, Page 27
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
611
Hér sést munni 4. hellisins hátt í kletti. Ferðamenn standa í munnanum.
landi. Þarna eru líka leirbrennslu-
ofnarnir. í þeim fannst enn viðar-
aska og skörungurinn var þar á sín-
um stað. Geymsluskálar, smíðastof-
ur og járnsmiðjur bera vott um að
Essenar hafa stundað alls konar
handíðar.
Fjármál þeirra voru þannig, að
hver maður lagði fram aleigu sína,
og svo var kosinn sérstakur ráðs-
maður til þess að hafa umsjá með
eignunum. Þessi var líka siður
hinna fyrstu kristnu manna, eins og
sjá má á Postulasögunni (2, 44—45
og 4, 32—35).
Á einum stað fundu fornfræð-
ingarnir hús, sem hafði verið tví-
lyft, en hafði hrunið þegar Róm-
verjar hertóku staðinn. Sjá mátti
þó, enn, að skrifstofa hafði verið
á efri hæðinni. Þar fundust bekkir,
sem skrifararnir höfðu setið á og
borð, sem þeir höfðu skrifað við.
Þar fundust einnig blekbyttur
þeirra og handlaug, en þeir munu
hafa þvegið hendur sínar jafnan
áður en þeir byrjuðu að skrifa hið
heilaga orð, þar sem nafn guðs var
nefnt. Þarna var þá fundinn stað-
urinn, þar sem rituð höfðu verið
handrit þau, er fundust í hellunum.
Þarna hafa hinar helgu bækur ver-
ið afritaðar, þarna hafa bækur ver-
ið samdar. Þarna hafa þeirra eigin
lög og helgisiðabækur verið skráð-
ar. Þar hafa þeir skrifað um hin
miklu ragnarök, sem þeir töldu
vera skammt undan, og um komu
Messiasar. Með þessu þjónuðu þeir
guði og treystu því að verk sín
mundu síðar bera ávöxt
ALLIR höfðu sama rétt og allir
áttu allt í sameiningu. Allir
voru kennimenn og kenndu til
skiptis. En þrátt fyrir það þurfti
þó að vera einhver stjórn þar. Og
það er kunnugt að þarna stjórnuðu
12 dómarar og 3 prestar, og senni-
lega hefir einhver þeirra verið for-
seti.
Þessir menn hafa haldið leyni-
lega fundi, þar sem engir aðrir
máttu vera. Og fundarstaðurinn
hefir fundist. Það er tiltölulega
lítið herbergi, en meðfram öllum
veggjum eru bekkir til að sitja á.
Þar er í vegg brennt leirker, sem
sýnilega hefir verið vatnsþró, og
í hana hggur pípa utan frá. Hefir
því mátt fylla kerið utan frá. Menn
verða þorstlátir í hinum miklu hit-
um sem þarna eru, og þeir sem
héldu fundi þarna, hafa þurft á
svaladrykk að halda. En þar sem
enginn mátti koma inn á fundina,
ekki einu sinni til þess að færa þeim
vatn að drekka, hefir þessi umbún-
aður verið gerður. í einu horni
þessa herbergis var stór skápur og
er gizkað á að í honum hafi verið
geymd skjöl.
CKAMMT frá Qumran-rústunum
er grafreitur og hafa fundist
þar um 1000 grafir, allar í þráð-
beinum röðum. Um þær mundir er
Essenar bjuggu þarna, var það sið-
ur í Miðjarðarhafslöndum, jafnt
meðal heiðingja og Gyðinga, að fé
og ýmis áhöld voru borin í legstað
framliðinna, svo að þeir gætu notað
það í öðru lífi. En svo hefir ekki
verið hjá Essenum. Þar eru engir
gripir í gröfum, og sýnir þetta á-
samt öðru að Essenar hirtu ekkert
um eignarrétt einstaklinga.
Tveir aðrir grafreitir hafa fund-
ist þarna með nokkru millibili. Þar
fundust beinagrindur kvenna og
hjá þeim eirhringar og perlur. Sýn-
ir það að konur hafa verið skraut-
gjarnar þar sem annars staðar.
Sumir Essenar vildu ekki gift-
ast, en Josephus sagnaritari segir
svo frá: „Aðrir hópar Essena, sem
fylgja að vísu sömu siðum og lífs
reglum og hafa sömu lög, eru þó
frábrugðnir að því leyti, að þeir