Lesbók Morgunblaðsins - 23.10.1960, Síða 2
526
LESBÓK MORGlfNBLAÐSINS
Mælifell
víkurhreppi voru taldar 572 sálir
árið 1703 og hefir því rúmlega
þriðji hver maður þar andast úr
bólunni, og eftir því ætti um 27 að
hafa andast á Búðum. En staður-
inn réttir fljótt við, því að árið
1714 eru þar 108 menn búsettir.
En svo fer að fækka. 1762 er þar
70 manns, og 1801 ekki nema 50.
Svo fjölgar aftur og 1839 eiga 76
menn þar heima. Þá eru þar „í
kaupstaðnum“ 6 timburhús og 6
torfhús, þar af eitt fisktökuhús; en
á Hellnum átti verslunin þá stórt
saltfiskhús úr timbri, og lengi síð-
an.
— oOo —
Það var gaman á þessum sólríku
sumardögum að vera snemma á
ferli á Búðum. Þegar flóð var
sýndist ósinn eins og allstór fjörð-
ur og fyllti sjórinn hraunkrikana
beint fram undan, svo að þar vor.u
víkur og klettasker og eyar, þar
sem eru leirur og hraunranar þeg-
ar fjara er. Þar inn af eru svo síl-
grænar engjar. En á hina hlið er
úfið og grátt hraunið, en heiðgul-
ur vegur hlýkkjast í gegn um það.
Hraunhafnará kemur ofan al
Fróðárheiði og rennur eftir dal,
sem nefnist Hraunhafnardalur.
og Bjarnarfoss.
Beggja megin við hann standa há
og fögur fjöll, en sitt með hvoru
móti. Þar er Axlarhyrna og Mæli-
fell. Fegurst eru þau snemma
morguns, er sól skín beint á þau.
Axlarhyrnan sjálf er dökk og á-
búðarmikil, en öxlin út af henni
er í röndóttum litklæðum af gulu,
ljósrauðu og hvítu lípariti og
hverfa þessar rákir niður í græn-
an hjalla. Hinum megin stendur
svo Mælifell með tignarsvip. Það
er eins og regluleg keila að sjá frá
Búðum, stálgrátt og sýnast hlíð-
arnar svo sléttar að vel mætti
ímynda sér að það væri nýmálað.
Að vestanverðu ganga þessar stál-
gráu skriður niður í grænar hlíðar,
en niður á klettabelti að austan,
og þar skammt frá fellur Bjarnar-
foss þráðbeint niður af hámrinum
og er geisihár, en svo vatnslítill
oftast að stormur getur hrifið
hann í fang sér svo hann hverfur.
Mælifell er eflaust eitt af hinum
helgu fjöllum íslands, sem forn-
menn hafa haft átrúnað á. Mun
ekki svo vera um öll Mælifell, enda
þótt þess sé ekki getið í sögum? En
í þjóðtrúnni keppir þetta Mælifell
við Tindastól í Skagafirði. Ganga
skal á fellið á Jónsmessunótt og
líta aldrei aftur. Þegar upp á fellið
kemur, er þar tjörn og synda og
dansa í henni alls konar náttúru-
steinar, svo sem lausnarsteinar,
hulinhjálmssteinar og þó fyrst og
fremst óskasteinar. Þetta er eina
stundin á árinu að manni gefst
kostur á að ná í slíkan stein. En
ekki munu þeir vera margir, er
það happ hefir hent, enda munu
Öxlin og Kinnin. Bærinn Öxl á miðri mynd.