Lesbók Morgunblaðsins - 10.06.1962, Blaðsíða 6
Alinin vgr mælikvarði Nóa við
byggingu arkarinnar. Alin er vega-
lengdin frá handarkrika til fingur-
góms löngutangar. • Örkin hans Nóa
flaut fyrst og fremst vegna þess,
að ailir smiðir hans voru jafn arm-
langir.
Áður en metrakerfið var tekið I
notkun voru til mörg og furðuleg
mælikerfi. Frakkar höfðu flatar-
mælieiningar, sem þeir köiluðu
„journal“. Hún samsvaraði þeim
fleti. er bóndi gat plægt á einum
degi.
JAFNVEL þótt hinum íhalds
sömu Bretum finnist það
ósattngirni að þeir skuli þurfa að
taka upp metrakerfið — en aðrar
þjóðir taki ekki upp tommukerfi
þeirra — sjá þeir þó fram_ á það
ásamt Bandaríkjamönnum,'að um
annað er ekki að ræða, þar eð þeir
mundu dragast aftur úr í hinni
geysihörðu samkeppni í vísindum
og tækni.
Það er erfitt að dæma um það, hvorir
séu fremri í geimvísindum: Rússar eða
Bandaríkj amenn. Rússar hafa yfirleitt
verið „á undan“ í geimskc-tum, hingað
til, en Bandaríkjamenn hafa sýnt meiri
„’breidd" eins og kemur fram í þeirri
staðreynd, að hinir fjölmörgu gervi-
hnettir, sem nú sveima umhverfis jörð-
ina, eru flestir merktir USA.
Kapphlaupið út í geiminn er í fullum
gangi og er erfitt á milli að sjá, hvor
hefur betur. Báðir aðilar spara ekkert
til þess að ná í gullverðlaunin og þeir
kasta af sér öllum byrðum til þess að
ná settu marki. Bandaríkjamenn vita,
að þeir hafa eina mjög þunga og óþægi-
lega byrði að bera, sem þeir verða að
OrðiS míla er dregið af latneska
orðinu mille, sem þýSir þúsund.
Milan var þúsund tvöföld skref
rómverska hermannsins. f SvíþjóS
er milan tíu kílómetrar, en í Eng-
landi og Bandaríkjunum 1609 m;
Upphaflcga var þumlungurinn
(tomman), dreginn af þumlungi
manns. Edward II. Englandskon-
ungi fannst þaS þó fuil sveigjan-
legt, svo hann ákvaS aS þumlung-
urinn væri jafnlangur og þrjú
kringlótt og þurr sæöiskorn lögS í
eina röS.
Nútrmaskil^'eining á metranum var
ákveðin á sérstöku þingi í París 1960 og
hljóðar þannig: Metrinn er lengdin á
1 650 763,73 öldum af geislum í tóma-
rúmi, sem samsvarar stökki milli hvet-
anna 2 plO og 5 d5 í krypton atómi með
massatöluna 86. Nokkuð miklu flóknara
en gamli metrinn, satt að segja, en að
minnsta kosti hárnákvæmt.
Tugakerfið er hentugt
að finnst ekkert mælikerfi nú á
tímum, sem er eins einfalt, auðskilið og
eðlilegt og tugakerfið. Rússar tóku það
upp árið 1927 og gerðu um leið hreint
fyrir sínum dyrum. Mælieiningar eins
og t. d. „verst“ hurfu, en þær voru jafn
erfiðar fyrir umheiminn og ensk-banda
rísku miælieiningarnar eru 1 dag. —
Metrinn hefur sigrað í Japan og Kína,
og Indland talar nú um að taka hann
upp. Fet, tommur og pund notast nú
eingöngu í brezka samveldinu, írlandi
og USA.
Enska og bandaríska lengdarein-
ingin, jardinn, er 91,4 cm og var
ákveðinn af Henrik I. Sagan segir,
að það hafi orðið mcð þeim hætti,
að konungurinn rétti út arminn, og
siðan hafi vegaiendin frá nefbroddi
hans til fingurgóms löngutangar
verið mæld nákvæmlega.
losa sig við, ef þeir eigi að fagna sigri.
Hér er átt við hið óhagkvæma og þung-
lamalega mælikerfi þeirra. Bretar ætla
einnig að létta á sér, þótt þeir viti, að
þeir komj varla til að ná í verðlaun í
hinu mikla kapphlaupi (ef til vill þó
sem aðili í hinni víðtæku samvinnu, sem
Evrópulönd eru nú að leggja í á geim-
sviðinu).
Mælitæki
F ljótt á litið virðist mælikerfi
varla skipta svona miklu máli. í USA
og Englandi er lengd mæld í mdlum,
flatarmál í ekrum og rúmmál í gallon-
um. Þessar mælieiningar er ekki hægt
að bera saman á nokkurn einfaldan hátt
eins ’og í metrakerfinu, þar sem metr-
inn er grundvöllurinn fyrir lengdina,
flatarmálið og rúmrnálið.
Ef Bandaríkjamaður vill reikna út
nokkuð eins einfalt og fjarlægðir, verð-
ur hann að notast við flókin mælihlut-
löll eins og t. d„ að það eru tólf þuml-
ungar í fetinu, þrjú fet í jardinum og
5280 fet í mílunni. Ef hann ætlar sér
að mæla smáa hluti, verður allt miklu
Gamansöm saga segir, að tilviljun
hafi ráðið hitamæii Gabriels Fahr-
enheits. Eitt sinn, þcgar kalt var úti,
setti hann hitamæli sinn út í kuld-
ann og gerði núllstrikið. Síðan
mældi hann sitt eigið hitastig og
setti þar strik fyrir 100.
erfiðara. Það er auðskiljanlega miklu
meira þreytandi að leggja saman t. d.
3/64 tommu, 1/4 tommu, 13/32 tommu
og 3/8 tommu heldur en samsvarandi í
millimetrum, sem er 1,2 mm, 6,3 mm,
10,3 mm og 9,5 mm.
í raun og veru hafa Bandaríkjamenn
og Bretar verið nauðbeygðir að taka
upp tugakerfið í laumi, þegar um hefur
verið að ræða þrot úr tommum. Við önn
ur mæiliverkefni eins og t. d. þykkt. á
trjám eða járnplötum hefur tommu-
kerfinu einfaldlega verið kastað fyrir
borð og upp teknar mælieiningar, sem
eru nærri því óskiljanlegar fyrir út-
lendinga,
Hve langur er meterinn?
Flestar þjóðir í heiminum nota nú
tugakerfið. Frakkar innleiddu það árið
1791 og var metrinn talinn einn tíumillj
ónasti hluti fjarlægðarinnar frá pólnum
tii miðjarðarlinunnar. — Það hefur ver
íð erfitt að fá fjarlægðina alveg ná-
kvæma, svo smám saman hefur verið
fallið frá þeirri staðhæfingu, að metr-
inn væri náttúrumál. ... .......
Verri staða
K andaríkjamenn vita, að þeir eru
í verri aðstöðu en Rússar meðan þeir
hafa ekki tekið upp tugakerfið almennt.
I Rússlandi tala vísindamennirnir og
verkfræðingarnir sama mál, þegai um
mælingar er að ræða. Þannig er það
aftur á móti ekki í USA. Vísindamen.i-
irnir nota tugakerfið meðan verkfræð-
ingarnir nota tommukerfið. Þess vegna
kemur stundum fyrir, að það verður að
hætta við verkefni um stund meðars
verið er að reikna úr einni mælieiningu
í aðra.
Gjaldmiðill
En það er ekki aðeins þegar um
mál og vog er að ræða. í Bretlandi er
gjaldmiðillinn þannig, að umreikningur
yfir í gjaldmiðil annarra þjóða verður
oft æði torveldur. Það er satt að seg;a
stórfurðulegt að það skuli vera tórf
pence í einum shilling og tuttugu shili-
ings í einu pundi. — Það er í raun og
veru hlægilegt, að slík gjaldkerfi skuli
finnast enn þann dag 1 dag og það
meira að segja í einu háþróaðasta landi
heims.. Tugakerfið hlýtur að sigra að
lokum.
Nú hafa Bretar ákveðið, að taka upp
hitamælingakerfið Celsius { staðmn
fyrir Farenheit, og byrjað hefur verið á
því að leggja grundvöll að breytingu á
gjaldmiðilskerfinu. Reiknað er með. að
tomman og fetið fái að fljóta seinna
meir. Bandaríska öldungadeildin hefur
einnig tekið málið á dagskrá, og er kom
inn fullur skriður á allan undirbúniní
um framkvæmd málsins.
Breytingin tekur heila lcynslóð
H
iivernig sem breytingin verður,
þá er það víst, að henni verður ekki lok
ið á nökkrum dögum eða nokkrum ár-
um. Bandaríski atómfræðingurinn dr.
Edward Teller reiknar með heilli kyn-
slóð. Hann 'hefur skrifað tímatöflu fyrir
blaðið This Week, hvernig bezt væri að
framkvæma breytinguna.
Samkvæmt þessari tímatöflu er bezt
að byrja með því að innleiða tugakerfið
í skólum. Síðan eiga menn að byrja á
því að reikna allar landfræðilegar
vegalengdir í metrum eða kílómetrum.
Næsta stóra skrefið væri, að frá og með
tilteknum degi yrðu allar opinberar rit-
gerðir og teikningar að miðast við
metra. Þannig væri breytingin frain-
kvæmd stig af stigi, og reiknar dr. Ed-
ward Teller með því að hún taki heila
kynslóð. Þetta verður seinlegt og yfir-
•gripsmikið verk, en nauðsynlegt.
6 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
15. tölublað 1962