Lesbók Morgunblaðsins - 08.12.1963, Blaðsíða 3
L
-A. ætlunarbílinn nam staðar.
„Hamrahlíð", kallaði bílstjórinn. Ég
rei? úr sætinu, þar sem ég hafði setið
Ihálfsofandi síðustu klukkustundina.
Hiáfboginn og stirður í hnjáliðunum
klöngraðist ég fram eftir bílnum milli
sætaraðanna. Þegar ég loks komst út
úr bílnum og á veginn, var bílstjórinn
fyrir löngu kominn út og þotinn aftur
fyrir bílinn. Ég hökti á eftir.
„Var það nokkuð annað en þessi
taska?“ spurði bílstjórinn, þegar ég
kom til hans, og um leið skákaði hann
minni heljarmiklu handtösku á veginn.
„Nei, og þetta þykir mér alveg nóg“,
svaraði ég. Svo kvöddumst við, ég og
bílstjórinn, og ég þakkaði honum fyrir
samveruna. Innan stuttrar stundar var
bíllinn kominn á ferð og smáfjarlægð-
íst. Hann þyrlaði upp nokkru ryki af
þurrum veginum, og það hvarflaði ofur-
iítið út af veginum, en féll svo til jarð-
ar og hvarf.
Ég stóð nú þarna einn með stóru
ferðatöskuna í hendinni og horfði á eft-
ir bílnum. Svo lagði ég af stað í áttina
til myndarlegs bæjar, sem stóð skammt
frá. Það hlaut að vera Hamrahlíð. Þeg-
ar ég kom að hliði á túngirðingunni,
lagði ég frá mér töskuna og ætlaði að
fara að opna hliðið. En þá kom telpa
hlaupandi að hliðinu. Hraðinn á henni
var svo mikill, að síðir, ljósir lokkarn-
ír á litla 'höfðinu, þyrluðust og köstuð-
ust til. Hún var rjóð og sælleg, augun
ljómandi. „Góðan dag“, sagði hún og
var auðheyrt á mæli hennar, að hún
var móð eftir hlaupin. „Ég skal opna
hliðið", bætti hún við.
Ég tók brosandi undir kveðju henn-
ar og virti hana fyrir mér á meðan
hún opnaði hliðið. Hún var há og grönn,
andlitsfríð og björt yfirlitum. Svipur-
mn bar vott um hýra glettni skynsamr-
ar telpu. Það var sannast að segja
vorgleði í þessu fallega barnsandliti.
„Ég heiti Sveinn Karlsson, en hvað
heitir þú?“ sagði ég um leið og hún
opnaði hliðið og við tókumst í hendur.
Hendi hennar var smá, samanborið við
annnan líkamsvöxt og handtakið snöggt,
en þó hlýlegt.
„Ég heiti Sigríður Jóhannsdóttir",
eagði hún frjálsmannlega og var rödd-
in skýr og björt.
„Nú, svo að þú ert dóttir bóndans
hérna í Hamrahlíð".
„Já. Pabbi bað mig að fara á móti
þér og fylgja þér heim. Svo átti ég að
segja þér að vera velkominn".
„Nei, þeim þykir það bara gott“, svar-
aði hún samstundis.
En nú vorum við komin heim að bæn-
um og Sigríður litla bauð mér kurteis-
lega inn.
sá hann
Eftir séra Jón Kr. ísfeld
Ég brosti. „Þakka þér kærlega fyrir.
Þetta þykir mér vænt um að heyra. Þá
veit ég, að ég get kunnað við mig þessa
aaga, sem ég ætla að vera hérna“.
Við gengum þögul um stund, meðan
ég virti íyrir mér umhverfið. Bærinn
stóð í brekkuhalla, skammt fyrir neð-
an háa hamra, sem hann auðsjáanlega
bar heiti af. íbúðarhúsið var allstórt,
einlyft, með háu risi og var kvistur á
risinu. En úti um túnið stóðu gripahúsin,
líkt og þeim hefði verið dreift þar í
flýti og af handahófi. Heim að bæn-
um var kerruvegur, svo að við Sigríður
litla gengum samhliða.
I* egar ég hafði virt umhverfið fyrir
mér. spurði ég hana um ýmislegt, bæði
af heimili hennar og úr sveitinni. En
einkum spurði ég hana þó um hana
sjálfa. Úr spurningum mínum leysti hún
óþvingað. Það var ekkert hik í svör-
unum, en þau voru stundum varfærnis-
lega orðuð. Hún ætlaði sannarlega ekki
að lala af sér. Skyndilega spurði ég:
„Heldurðu nú að pabba þínUm og
mömmu þyki ekki skrýtnar þessar jarð-
vegsrannsóknir mínar?“ Ég sá það ekki
fyrr en ég hafði skellt' spurningunni
fram, að hún gat komið þessu saklausa,
sannleikselskandi barni óþægilega, ef
foreldrar hennar litu smáum augum á
starf mitt, eins og ýmsir, sem ekki vissu
í hverju það var raunverulega fólgið og
kunnu þar af leiðandi ekki að meta það.
E,
mér úti við, þegar hún gat komið þvl
við. Hafði ég óblandna ánægju af því
að tala við hana, svona skýra og skemmti
lega. Hún átti tvo bræður, sem báðir
voru eldri en hún, en ánægjulegt var að
sjá hversu innilega systkinin elskuðu
hvert annað. Stríðni, keskni eða annað
slíkt virtist óþekkt fyrirbæri hjá þess-
um sýstkinum. Einu sinni sagði Sigga
litla, — eins og hún var kölluð — að
hún ætlaði alltaf að vera í Hamrahlíð
með bræðrum sínum og foreldrum. Við
ræddum talsvert um þessa framtíðar-
áætlun hennar. Var undursamlegt að
heyra hversu fullorðinslega þessi 10
ára telpa talaði um’ framtíðina. Hún
gerði ráð fyrir því, að bræðurnir myndu
eignast konur, þegar þeir væru orðnir
alveg fullorðnir, eins og hún orðaði það. ,
Af því að Hamrahlíð var ekki nógu
stór jörð, myndu kannski bræðurnir
þurfa að byggja nýbýli. En þeir höfðu
sagt henni, að þeir ætluðu þá að byggja
í Hamrahlíðarlandi, svo að þau gætu
öll verið saman. Sigga litla ætlaði að
vera hjá foreldrum sínum, því að þau
myndu þurfa sín svo mikils með. Ég
skaut því þá að henni, hvort hún ætl-
aði ekki að giftast. Jú, hún var ákveð-
in í því að giftast. En maðurinn henn-
ar átti að vera góður og vilja vera hjá
foreldrum hennar eins lengi og þau
þyrftu þess með. Út frá þessu fórum
við að tala um framtíðaráætlanir henn-
ar, þegar hún væri farjn að búa. Það
var einkennilega bjart og fagurt yfir
framtíðaráætlunum hennar, líkt og hinu
ljósa. bjarta yfirliti hennar hið ytra.
Ég varð ekki var við neitt, sem gat varp-
að skugga á eina einustu hugsun þessa
yndislega barns. Heimilið hennar átti
að vera fyrirmyndarheimili, ekki bara
að húsbúnaði, heldur allt hvítt og fágað.
Bióm ætlaði hún að hafa úti og inni.
Blómin voru vinir hennar. Hún sagðist
oft tala við þau og þau hlustuðu, sagði
hún. Hún sagði, að blómin væru alltaf
góð og þess vegna væri það ljótt að
vera ekki góður við þau. Já, það var
margt, sem hún sagði við mig.
Hún fylgdi mér niður að bílnum,
ásamt föður sínum. Þegar ég kvaddi
hana, laut ég niður að henni og kyssti
hana á rósrauðan vangann.
Þetta voru fyrstu kynni mín .af þessu
elskulega barni.
I g dvaldi rúmlega fjóra daga í
Hamrahlíð. Sigriður litla var alltaf með
dag hefir verið yndisfagur sum-
ardagur. En það eru liðin nærri 6 ár
síðan ég dvaldi í Hamrahlíð.
Rétt eftir hádegið í dag hringdi Jónas
læknir, gamall skólabróðir minn, til
mín. Ég heyrði undir eins, að honum
var talsvert mikið niðri fyrir. Það var
Framhald á bls. 13.
Séra Sigurður Einarsson i Holti
Bergmál gamalla stefja
Mæltu fátt, en segðu satt,
sæktu hátt, þótt títt sé latt.
Æðrast smátt, þótt bjóðist bratt
bjóddu sátt, ef fólsku er att.
Horfðu inn um hjartans svið,
herði stinnan málaklið.
— Ef þú finnur engan frið
í eigin sinni, er fátt um grið.
Brostu hljótt þótt hlæi dátt
hávær drótt og staupasátt.
Næsta skjótt í ýmsa átt
er á flótta gaman kátt.
Einn að vera var og ör,
voga að bera svipul kjör,
þorðu að gera glæfraför
glyms yfir sker með bros á vör.
Skíni sól um sund og ál,
sunnangjóla yndismál
þíði bál, en þagni stál,
þá eru jól í vorri sál.
33. tölublað 1963.
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 3