Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 06.12.1964, Qupperneq 2

Lesbók Morgunblaðsins - 06.12.1964, Qupperneq 2
•Z- Pakistan hefur á undan- förnum vikum verið háð hörð og að mörgu leyti athyglisverð kosningabarátta í sambandi við for- setakjörið, sem endanlega fer fram í marz. En fyrstu tvær vikurnar í síðasta mánuði fór fram kosning 80.000 kjörmanna, sem síðan velja hinn nýja forseta í marz. Þó ekki sé enn endanlega ljóst, hvernig meiri- hluti hinna 80.000 kjörmanna muni kjósa að ári, eru samt flestir þeirrar skoðunar, að núverandi forseti landsins, Ayub Khan hershöfðingi (sjá Lesbók nr. 24, 1963), sem verið hefur eiginlegur einræðisherra síðan herinn gerði byltingu án blóðsúthell- ingar 1958, verði endurkjörinn. En að þessu sinni verður kosninga- sigur hans ekki jafn auðveldlega unninn og áður, því hann hefur eignazt skæðan og áhrifamikinn keppinaut, þar sem er Fatíma Jinnah, 72 ára gömul systir hins þekkta og dáða „föður Pakistans“, Mohammeds Alis Jinnahs, ofstækis- mannsins sem á sínum tíma kom því til leiðar við Breta, að Indlandi var skipt í tvö sjálfstæð ríki, Indland og Pakistan, og olli með því einhverjum átakanlegasta harmleik í sögu þess- arar aldar, þar sem milljónir manna létu lífið, tugir milljóna misstu aleigu sína og ástvini, og hefur aldrei síðan gróið um heilt milli þessara tveggja ríkja, sem áður mynduðu íina þjóð. F atíma Jinnah er lítil og veikluleg í útliti, alúðleg í viðmóti, en undir þessu yfirborði er harður og sterkur persónu- leiki. Hún er mikil baráttumanneskja, eldlegur ræðuskörungur og á mikilli hylli að fagna meðal þjóðarinnar. Hún er ekki frambjóðandi neins tiltekins stjórnmálaflokks, heldur allra stjórnar- andstöðuflokka í landinu, fimm að tölu. Þegar fyrst var tilkynnt um útnefningu hennar, urðu Ayub Khan og stuðnings- menn hans harla glaðir, því þeir töldu útilokað að kona, sem auk þess væri komin til ára sinna, gæti unnið sér fylgi sem leiðtogi í ríki Múhameðstrúar- manna. En í byrjun síðasta mánaðar var komið annað hljóð í strokkinn. Milljónir manna flykktust um Fatímu Jinnah, hvar sem hún fór, bæði í Vestur-Pakist- an, þar sem Ayub Khan á mestu fylgi að fagna, og í Austur-Pakistan (1500 kíló- metra frá Vestur-Pakistan), þar sem Ayub Khan er mjög óvinsæll. Uvar sem Fatíma Jinnah kom, var henni fagnað með orðunum „mather i millat“ (móðir þjóðarinnar), og á sú nafngift að sjálfsögðu rætur að rekja til þess, að hún er systir hins látna Jinnahs. Hún hefur ekki síðustu 17 árin gegnt neinu áberandi hlutverki í stjórnmálum Pakistans, þó hún að vísu tæki mikinn og árangursríkan þátt í kosningabaráttu Bandalags Múhatfteðstrúarmanna árið 1954, en þann flokk hafði bróðir hennar stofnað. í næstu kosningum þar á eftir missti flokkurinn hins vegar bókstaflega öll þingsæti sín. Pólitisk hlédrægni Fatímu og fram- taksleysi á liðnum árum hefur verið not- að gegn henni í kosningabaráttunni í haust, en hún átti samt öruggt traust og fylgi stjórnarandstöðuflokkanna. Á bak við hana stóðu jafnólíkir flokkar eins og Bandalag Múhameðstrúarmanna, hinn á- hrifamikli Nizam-e-Islam-flokkur, þjóð- ernislegi Awamí-flokkurinn, Maulana Bhashani sem daðrar við kínverska kommúnista og Awamí-bandalagið sem hallar sér að Vesturveldunum og lýtur stjórn fyrrverandi forsætisráðherra, Súhrawardýs. Ekki spillti það heldur fyrir Fatimu Jinnah, að einn af virtustu stjórnmálamönnum Pakistans, Azam Khan, hét henni fulltingi sínu. Hann var á sínum tíma einn þeirra fjögurra hátt- settu herforingja, sem gerðu stjórnar- byltinguna árið 1958 ásamt Ayub Khan. Hann var síðan skipaður landstjóri í Austur-Pakistan, þar sem tekið var á móti honum af fullum fjandskap í fyrstu, bæði vegna þess að hann var Paþani og meðlimur herforingjaklíkunnar, en á skömmum tíma ávann hann sér mikla hylli íbúanna fyrir afburðagóða stjórn og aga. TT veir stjórnarandstöðuflokkanna vildu bjóða fram Azam Khan, en hann lagði til að Fatíma Jinnah yrði heldur höfð í fylkingarbrjósti. Síðan tóku þau upp sameiginlega baráttu og varð mikið ágengt. Þó enginn viti með vissu, hvernig atkvæði kjörmannanna 80.000 falla í marz, er talið sennilegt að Ayub Khan eigi fylgi meirihlutans, þó vitað sé um marga kjörmerm, sem sóru við Kóraninn að greiða Fatímu atkvæði sín. Hins veg- ar er Fatíma Jinnah og stuðningsmenn hennar ekki í nokkrum vafa um, að hún hefði unnið glæsilegan sigur í kosning- unum, ef þær hefðu verið beinar og allir fengið að greiða atkvæði, eins og tíðkast í Indlandi. Það var Ayub Khan sjálfur sem kom því til leiðar, að í stjórnar- skrána var sett þetta ákvæði urn 80.000 kjörmenn, sem ráða skyidu úrslitum um K .setakjörið. Nefnir hann þetta kerfi „grundvallarlýðræði" og telur það bezt henta þjóðum sem eru á lágu menntun- arstigi. mt ví neitar víst enginn, sem til þekkir, að stjórn Ayubs Khans er þess konar „upplýst einræði", sem skapað hefur þjóðinni ákveðna velmegun og. flýtt fyrir framförum. Hann hefur tekið upp hlutleysisstefnu, sem tryggt hefur honum aðstoð bæði frá Bandaríkjunum og Sovétríkjunum, og auk þess bætt sam- búðina við Kína. En þessar framfarir hafa allar orðið á kostnað almenns frelsis, mannréttinda og þingræðis. Blöðin hafa lengi verið ritskoðuð, and- stöðuflokkunum hefur á ýmsan hátt ver- ið gert erfitt fyrir, og sumir þeirra hafa hreinlega verið bannaðir. Svo var t.d. um rétttrúnaðarflokkinn Jamaat-i-Is- lami, og var þó bannið lýst ólöglegt af Hæstarétti Pakistans. Ayub Khan hafði þann dóm að engu. ■Khan heldur því fram, að Pakist- anar séu ekki enn orðnir nægilega þrosk- aðir fyrir algert lýðræði, og því sé enn þörf á sterkri „forsetastjórn“ til að halda áfram umbótum og endurreisn í landinu. Fatíma Jinnah kveðst hins vegar stefna að því að fá stjórnarskránni breytt og lýðræði aftur tekið upp í Pakistaru Stjórnarskrárbreytingin krefst tveggja þriðju hluta allra atkvæða á þingL Fatíma leggur áherzlu á að hún sé ekki fyrst og fremst að berjast gegn Ayub Khan persónulega, heldur gegn kerfinu sem hann hefur komið á. Hana langar ekki að taka við embætti hans, helaur vill hún einungis útrýma „forsetastjórn- inni“ sem hann hefur þvingað þegnana til að samþykkja. Fáir virðast vera þeirrar skoðunar að Ayub Khan velti úr valdasessi, og þar sem enginn efast um að hann sé þjóð- hollur og duglegur leiðtogi, sætta menn sig í sjálfu sér við forustu hans. Hins vegar er enginn vafi á því, að Fatíma Jinnah hefur skapað svo mikla ólgu og óánægju í landinu, að „forsetinn" og ráð- gjafar hans hafa um nóg að hugsa á næstunni, bæði að því er snertir sjálft kerfið og kröfur fólksins um aukið frelsL Þó Fatíma bíði kannski formlegan ósigur í marz vegna hins óréttláta kosninga- kerfis, kann barátta hennar eigi að siður að verða til blessunar landinu, m.a. með því að þvinga valdhaf'ana til að milda stjórnina, gera hana lýðræðislegri og réttlátari. Ayub Khan hefur sennilega ekki gert sér ljóst fyrr en í þessari kosn- ingabaráttu, hve óvinsæl stjórn hans er. Hann er slægur og raunsær stjórnmála- maður og mun eflaust draga þarfa lær- dóma af þessari reynslu. Hver veit nema Fatíma eigi þá eft- ir að koma því til leiðar, sem hún hefur alla tíð lagt áherzlu á í kosningabarátt- unni. „Ég er ekki sólgin í völd eða í for- setaembættið“, segir hún. „Ég berst gegn herra Ayub Khan (hún nefndi hann aldrei forseta) til að fá ykkur aftur lýð- ræði. ... Ég vil skila þjóðinni aftur öll- um þeim réttindum, sem hafa verið hrifsuð frá henni“. Utgeíandl: Jri.l. Arvakur, Beykjavflu Framkv.stJ.: Sigfús Jónsson. Ritstjórar: Stgurður Bjarnason frá Vlaur. Matthías Johannessen. Eyjólfur Konráð Jónsson. Auglýsingar: Aml Garðar Kristlnsson. Ritstjórn: Aðalstræti S. Sími 22480. 2 LESBOK MORGUNBLAÐSIJNS 37. tbi. 1964.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.