Lesbók Morgunblaðsins - 28.02.1965, Side 2

Lesbók Morgunblaðsins - 28.02.1965, Side 2
Brezki íhaldsflokkurinn á það sammerkt við Júlíus Sesar, að hann vill sjá feii a menn í kring- um sig, ekki í holdlegum heldur í andlegum skilningi, veraldarvana menn sem hafa etið af aðskiljanleg- xim ávöxtum lífsins og átt auðuga ævi — riddara fremur en „kringlu- höfða“ (háðsheiti á púrítönum á dögum Cromwells). Það er af þess- ari ástæðu fremur en af smekk- lausu snobbi sem flokkurinn velur leiðtoga sína tíðum úr röðum há- stéttanna, þar sem áðurgreindir eig- inleikar þykja helzt vera fyrir hendi. Neville Chamberlain var að sjálfsögðu eftirminnileg undantekning frá þessari reglu, enda hefur pólitískur ferill hans orðið til að staðfesta flokkinn í trúnni á hina óskráðu reglu, og þar við bætist, að fyrir andstöðuflokknium er nú áber- andi fulltrúi þeirrar litlaus-u, óróman- tísku nytsemdar-hefðar, sem er eitur í beinum íhaldsmanna, Harold Wilson forsætisráðherra. Um einkalíf hans er tæplega annað í frásögur fært en að hann hefur mætur á flöskusósum og burstar skóna sína sjálfur. fhaldsfiokkurinn brezki hefur líka á- kaflega sterka tilhneigingu til að halda völdum í iandinu, sem er kannski eðli- legt þegar haft er í huga, að hann legg- ur mikla áherzlu á gæði iífsins, og þeirra verður miklu betur notið í á- vaxtagarði ríkisstjórnarinnar held- ur en á eyðimörk stjórnarand- stöðunnar. Flokkurinn hefur með öðrum orðum fullan hug á að vinna næstu kosningar, og enda þótt flokksmenn — eða a.m.k. mikill meirihluti þeirra — séu hæstánægðir með jarlinn sinn, Sir Alec Douglas Home, í broddi fylkingar (enda eru fá- ir betri fulltrúar nddara-hefðarinnar en hann), þá hefur sú tilfinning mjög grip ið um sig meðal forustumanna flokks- ins, að þjóðin mundi veita honum öfl- ugra brautargengi, ef fyrir honum færi maður sem væri nútímalegri en hinn ágæti jarl. X rauninni er íhaldsflokkurinn að leita sér foringja, sem hæfi þessari öld. Auðvitað verður hann að vera trúr hinni gömlu riddaralegu hefð, en hann verður líka að standa föstum fótum í nútímanum, vera barn tæknialdarinnar, án þess þó að hafa „magran svip og soltinn". Þegar þessar þarfir eru hafðar í huga, kemur það mönnum sízt á óvart, að augu íhaldsmanna skuli hafa beinzt að Reginald Maudling, hinum 47 ára gamla, holduga fyrrverandi fjármálaráðherra, því hann uppfyllir kröfurnar í ríkara mæli en nokkur keppinauta hans. Þó Maudling sé ekki af háum stigum — faðir hans var bókari — né hafi geng- ið í fræga skóla, þá hefur hann í mörg- um greinum smekk hástéttanna: dýr veitingahús, næturklúbbar, Suður- Frakkland, þurrir martini-drykkir. Þó hann búi yfir miklum hæfileikum og menntun, einkum á sviði efnahagsmála (en þar er Sir Alec mjög aumur, verð- ur að nota eldspýtur til að reíkna), þá Reginald líkist hann miklu fremur bónda en menntamanni og talar jafnan eins og alþýðumaður. Þó Maud'ling sé töluvert framsækinn í efnahagsmálum (styður jafnvel tak- markaðan áætlunarbúskap) og vilji koma nútímaskipulagi á iðnaðinn, þá er hann ,,rétttrúaður“ og ihaldssamur, ef ekki beinlinis afturhaldssamur, í fé- lagsmálum, t.d. í sambandi við dauða- refsingu og endurbætur á refsilöggjöf- inni. Hann var ef satt skal segja einn af fáum leiðtogum íhaldsflokksins sem greiddu atkvæði gegn afnámi henginga. í utanríkis- og varnarmálum er hann líka „heilbrigður“ (á flokksvísu), því hann var eldheitur stuðningsmaður Ed- ens í Súez-ævintýrinu og berst fyrir því, að Bretland eigi áfram óháðan varn arstyik kjarnorkuvopna. E f gerð væri tilraun til að búa til samsetta mynd af manninum sem íhalds flokkinn dreymir um — þ.e.a.s. leið- toga sem hefði viðhorf, smekk, upp- runa og uppeldi, ei félli bæði eldri og yngri mönnum flokksins í geð, þá mundi koma fram nákvæm eftirlíking Reginalds Maudlings. Framaferill Maudlings hófst snemma í seinni heimsstyrjöld, þegar hann var fluttur úr njósnadeild flughersins og gerður að einkaritara í flugmálaráðu- neytinu. Bretar höfðu þá brýna þörf fyrir fleiri flugvélar, og það sem hann sá frá skrifborði sínu sannfærði hann um hið veigamikla hlutverk sem rikis- stjórnir gætu gegnt i nútímaefnahags- lífi til að örva og efla framleiðsluna. Stjórnmálin fóru þá þegar að laða hann til 9Ín, þannig að hann missti áhugann á lögfræðinni —hann varð málafærslu- maður rétt fyrir stríð — og sömuleiðis á háskólalifi, en hann hafði sótzt eftir að verða háskólakennari og næstum hreppt eftirsótta stöðu i Oxford. Árið 1945 bauð Maudling _sig fram til þings og féll. Hann valdi íhaldsflokk- inn ekki af neinni hugsjónafræðilegri sannfæringu, heldur vegna þess að reynsla hans í stríðinu hafði sannfært hann um, að hin kreddubundna afstaða Verkamannaflokksins til efnahagsmála væri ekki í neinu skynsamlegu sam- bandi við veruleikann og flókin vanda- mál iðnaðarþjóðfélags nútímans. Hann var að því leyti frábrugðinn mörgum jafnaldia sinna, að eymd atvinnuleys- isáranna fyrir stríð hafði ekki fengið neitt verulega á hann. Þetta var ekki bara vegna þess að hann hafði ekki sjálfur lifað þessa eymd — margir ungir menn úr mið- stéttunum urðu fyrir sterkum og var- anlegum áhrifum af eymdinni sem þeir sáu. En Reggie Maudling var ekki þá fremur en nú tiltakanlega uppnæmur fyrir viðkvæmum tilfinningum. Hann var þeirrar skoðunar þá eins og nú, að sósíalisminn gæti ekki læknað efna- hagserfiðleika Bretlands, og það væri skortur á heilbrigðri dómgreind að ganga Verkamannaflokknum á vald bara vegna vondrar samvizku út af kreppuár unum. að var um þetta leyti sem R.A. Butier, gleggsti maður íhaldsflokksins á unga hæfileikamenn, fékk föðurlegan áhuga á Maudling og tadi hann á að gerast starfsmaður hjá rannsóknadeild flokksins. Maudling var þá 29 ára gam- all og frami hans var tryggður. Hann varð fljótlega persónulegur ráðgjafi Winstons Churchills um efnahagsmál, sem var veigamikið starf, og var kosinn á þing árið 1950. Hann fékk fyrsta minniháttar ráðherraembættið árið 1952, eftir að íhaldsflokkurinn var a,ft- ur setztur að völdum, það var í fjár- málaráðuneytinu. Árið 1955 fékk hann fyrsta eiginlega ráðherraembættið, varð birgðamálaráðherra. Tveimur árum síð- ar var hann skipaður formaður nefnd- ar, sem átti að vinna að efnahagssam- vinnu Bretlands og meginlands Evrópu með 17-ríkja fríverzlunarsvæði. Þetta var fyrsta meiriháttar vanda- verk hans og reyndist verða fyrsti ó- sigur hans. Eins og málin horfa við nú, virðist augljóst að Maudling átti ekki sök á þvi, að samningsviðræðurnar strönduðu, þó honum væri kennt um það. (Andstaða Frakka var þá dulin, en kom síðar upp á yfirborðið). Sagt var, að hann hefði ekki lagt .sig nægi- lega fram, að hinn ljúfmannlegi en inni- legi leiðindasvipur, sem hann einatt setti upp við samningaborðið, hefði sannfært Evrópu um, að Bretum væri ekki fullkomin alvara — og fékk sú skoðun byr í vængi af sögum sem gengu í Briissel þess efnis, að brezki ráðherr- ann væri öli kvöld dansandi á nætur- klúbbum í stað þess að liggja yfir skjöl- um heirua á hótelinu. Þetta var ekki í síðasta skiptið sem léttlæti og skemmtanafíkn Maudlings gáfu mönnum tilefni til að efast um. foringjahæfileika hans. (Þegar umræð- ur voru teknar upp að nýju um efna- hagssamvinnu Bretlands og Evrópu, var sendur á vettvang maður, sem ævinlega virðist taka iífið alvarlega, Edward Heath, en niðurstaðan varð samt hin sama: enginn árangur). Segja má að viðbrögð Evrópu við Maudling hafi verið skiljanleg. Enda þótt hann gerði engar tæknilegar skyss- ur í samningsviðræðunum, einkenndist afstaða hans hvorki af sannfæringu né tilfinningahita. Hann skírskotaði til heil brigðrar sikynsemi, þegar Evrópumenn vildu fá Breta til að sameinast sér í ,.krossferð“. Þó hann væri sannfærður um það í höfðinu, að fríverzlunarsvæði væri góð hugmynd, virtist hjarta hans ekki slá örar við tilhugsunina. E n gagnrýnin á „geð'leysi" Maud- lings varð samt ekki til að hefta mark- vissan frarna hans. Árið 1959 fékk hann fyrsta embættið í sjálfu ríkisráðinu, þegar hann var skipaður viðskiptamála- ráðherra. Gagnstætt öllum hraksp'm jókst útflutningur .Breta til markaðs- bandalags Evrópu verulega og um leið efldist orðstír Maudlings. Síðan var hann gerður að nýiendumálaráðherra á örlagastundu, þegar viðræðurnar um sjálfstæði Kenýa stóðu sem hæst og voru komnar í ógöngur. Hér varð rj- lyndi Maudlings og ljúfmannlegt lélt- lyndi honum jafn drjúgt til árangurs og það hafði verið honum ódrjúgt í Briiss- el. Bæði hvítir menn og svartir málu hispursleysi hans og hreinskilni, og Ie;ð in til sjálfstæðis varð tiltölulega greið- fær. Það var um þetta leyti sem Maudling sýndi af sér meiri röggsemi en h~nn hefur gert fyrr eða síðar. fhaldsst' n Harolds Macmillans var komin í hálf- gerðar ógöngur. Mikill uppgangur, sem Macmillan gortaði mjög af, hafði leitt til hættulegrar dýrtíðar. Til að koma í veg fyrir, að brezkum vörum v ’ii bolað út af heim9markaðinum, ne; 1- ist þáverandi fjármálaráðherra, S n Lloyd, till að grípa til þeirrar m.’c : o óvinsælu ráðstöfunar að frysta öll un. Kjósendur voru í uppreisnarhug, r 3- stjórnin í hættu stödd og andxúm ’ 5 innan íhaldsflokksins vonlausara x það hafði niokkurn tíma verið síc . ,.- ez-ævintýrið bar að höndum R.eggie Maudling sá sér þá ' \ borði og lét sla.g standa. Hann s t niður kvöld eitt og samdi óver. r orðsnjallt bréf, sem hann sendi endum í kjördæmi sínu. Þett° > f kömst náttúrlega í blöðin og vakti . ; alþjóðarathygli. í bréfinu benti M ing á, að yfirstandandi tímar vr í senn hættulegri og æsilegri en m t annað skeið mannkynssö;;unnar. M, ’- írnir ættu völ á ótal möguleikum, • t frá kjarnorkustyrjöld til aldarfars ar sem vísindin gætu frelsað menn . á fátækt og eymd og orðið grundvu ir nýrrar sóknar í átt til betra og æöra mannlífs. Hann kvað tilgang framU a og allsnægta vera þann að tryggja rétt val á hverjum tíma. Frelsi án re iu væri tilgangslaust jafnt í efnahagslífinu Framhald á bls. 6. FraniKv.stj.: Sigtas Jónsson. Ritstjórar: Sigurður Bjarnason trá Vleur. Matthfas Johannessen. Eyjólfur Konráð Jónsson. Auglýsingar: Arni GarSar Krlstinsson. Ritstjórn: Aðalstræti S. Sími 22480 Utgefandl: h.t Arvakur Reykjavík. 2 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS- 8. tbl. 1965.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.