Lesbók Morgunblaðsins - 28.02.1965, Page 14

Lesbók Morgunblaðsins - 28.02.1965, Page 14
I>egar við svo komum tii mannabyggða, voru engir ofnar í herbergjunum. Okk- ur var sagt, að dönsku embættismenn- irnir, sem til landsins fluttust forðum daga, hafi oftast legið í rúminu. f>eir lögðust fyrir á haustin, en fóru svo á fætur á vorin, þegar sólskinið kom. ísland hefur verið áður fyrr sikógi vaxið. Nú er því lokið, því miður. Enn eru til nokkrir smávaxnir skógar, sem íslendingar sýndu með mikilli hreykni, t>g vitanlega voru þeir fallegir. Á Egiisstöðum skildi ég við fylgdar- manninn. Við vorum orðnir mestu mát- ar. Að útliti var hann eins og ræningi og á Akureyri var mér sagt, að ég mætti ekki gefa honum brennivín, því að þá yrði hann til einskis nýtur. Sama hafði fylgdarmanninum verið sagt; að Svanöe yrði alveg vitlaus ef hann fengi brenni- vín. Nú, ég var nú líklega heldur ekki traustvekjandi útlits. Þessvegna földum við báðir flöskurnar okkar alia ferðina. Ég var nú annars alveg búinn að gleyma mínum, en áður en við skild um, fengum við okkur nokkra snafsa saman og sögð'um hvor öðrum reyfara- sögurnar, sem okkur höfðu verið sagð- ar, hvorum um annan. Ég kom fyrst við á Reyðartfirði og hélt svo áfram ríðandi til Seyðisfjarð- ar. Nú langaði mig að fá mér heitt bað. Víða á Islandi eru heitar laugar. í Reykjahlíð eru tvær tjarnir með heitu vatni, á jörðinni. Aðra notaði kven- fólkið en karlmennirnir hina. En slíkt var ekki til á Seyðisfirði: eina heita baðið, sem þar fyrirfannst, var í sjúkra- húsinu. Ég fékk leyfi hjá lækninum til að fara þar í bað. Einnig fékk ég hjá honum reseft, nákvæmlega eins og gerðist í Noregi meðan bannið var þar. í apótekinu fékk ég einlhvern fjólub'á- leitan vökva og á miðanum stóð, að hann skyldi taka — eina matókeið á tveggja klukkustunda fresti. Um kvöldið hitti ég ritstjóra staðar- ins, Guðmund G. Hagalín. Hann hafði verið smailadrengur á Vestfjörðum og hafði sjálfur kostað sig til mennta. Hann kvaðst ætla að gefa út fyrstu kvæðabókina sína þá um haustið og yrkja um vetrarnætur. Hann er nú bóka safnsráðunautur á íslandi, og hefur skrifað 40 skálidsögur, sm'ásögur og ævi sögur. ísland kvatt ar riðjudaginn 30. júlí fór ég kring um land og til Reykjavík'Ur, á íslenzka skipinu Sterling. Ég fékk ekkert sól- skin, en gat samt eéð land, alla leið, blátinduð fjölil og skinandi hvíta jökla á milli. í Reykjavík hitti ég meðal annarra Hlíðdal verkfræðing. Hann varð síðar landsímastjóri og er enn á lífi. Frá Reykjavík fór ég til London og gaf þar enska félaginu skýrslu mína. Þetta enska félag fór síðar yfrum, svo að því miður varð enginn árangur af þessu í þetta sinn. Ég kom til Noregs 21. ágúst, eftir næstum tveggja mánaða útivist. A skip- inu til Noregs hitti ég skipsdreng, sem gekk alltaf með húfuna undir hendinni. Éig spurði hann, hversvegna hann legði Ihana ekki frá sér. Nei, hann hafði ver- ið skotinn í kaf þrisvar og þá misst al- eigu sína, og nú átti hann ekki eftir annað en húfuna. Þessvegna gætti hann hennar svona veil. . SMÁSAGAN Framhald af bls. 7. hugsa til þess, að þetta, grænt og rautt, voru einu litimir, sem hún hafði veitt athygli á ferðum sínum um heiminn. Og‘ svo hafði það alls ekki verið grænt og rautt þegar til kom. Að minnsta kosti ekki árum saman. Hún tók eftir, að i augnaráði hans brá fyrir ánægjugiampa, og þegar hún gerði sér grein fyrir því, varð hún grip- in sínum gamalkunna taugaæsingi. „Já, hér er ég“, skrækti hún, „náðu nú bara í byssuna. Þú skalt fá að skjóta mig alveg eftir listarinnar reglum, stand andi, sitjandi, eða liggjandi, framan frá, aftan frá eða á hlið, höfiuðið eða hjart- að. Ef þú vilt skjóta mig á flótta, þá er velkomið að ég klifri upp á þakið og fleygi mér niður. En þú neyðist víst til að hjálpa mér að komast upp á þak- ið.“ Hann hristi höfuðið. „Það stendur ekkert í reglunum um það að skjóta manneskjur", sagði hann. „Þvert á móti, er mér víst óhætt að segja. Og ég er ekki hermaður, ég er veiðimaður. Hún heyrði, að enn var hans gamla drembilæti í röddinni, þegar hann sagði orðið. „Veiðimaður .... “ „En,“ hélt hann áfram, „ég vildi nú samt gjarnan gefa þér þessa.“ Hann tók lítinn hlut upp úr brjóst- vasanum og lagði hann á borðið. Hún heyrði lágt málmhljóð, en varð að rýna á hlutinn til að sjá hvað það var. Veiðimaðurinn leit á armbandsúrið sitt og sagði: „Það fer flugvél héðan eftir klukkutíma, ég get ennþá komizt heim í tæka tíð fyrir vorveiðarnar." Hún glápti, sá að veiðimaðurinn hneigði sig og fór. Á borðinu fyrir framan hana lá byssu kúla. V eiðimaðurinn hlýtur að hafa heyrt dimrnan, vitfirringslegan hlátur hennar, en hann leit ekki við. Hann var á leið til hinna stóru, víðáttumiklu skóga. Ragnhildur Jónsdóttir þýddi. Beita vél með tungunni T veir Ameríkumenn innan við tvítugt, sem stunda vélfræðinám, hafa fundið upp hjálpartæki fyrir lamaða, sem geta sig ekki hreyft vegna þess að allur líkaminn upp að hálsi er máttiaus. Þeir hafa fundið upp nýja rafmagnsvél, sem gerir mikið lömuðu fólki fært að nota rit- vél, segulband, grammófón, útvarp, og lestæki fyrir míkrófilmur. Einnig að kveikja og slökkva ljós, tala í síma og nota innanhússíma til áð tala við fólk í öðru herbergi. Allt þetta er gert með því að beita vél með tungunni. Sjúklingurinn not- ar höfuðútbúnað, svipaðan þeim sem símaverðir nota, með munnstykki sem er þannig stillt, að það bregður við ef það er snert með tungunni. Þessi snerting sendir straum í magn- ara og hinn aukni straumur er því næst sendur inn í vél, líka að gerð og rafreiknivél. S júklingurinn getur svo valið þá vélina, sem hann óskar, með tungusnertingu og haft stjórn á henni. Þessi uppfinning var gerð af William Abikeff og Arnold Stein- mann, sem eru báðir 18 ára að aldri. Þeir unnu undir stjórn Williams B. Blessers í verkfræðiskólanum í Brooklyn, N.Y. Snemma á síðastliðnu ári fengu piltarnir áhuga á ástandi 12-ára stúlku, sem hafði verið máttlaus fyr- ir neðan háls frá sex ára aldri. Þeir gerðu sér ljósa hina óskaplegu erfið- leika svona sjúklinga og hófu út- reikninga í tómstundum sínum, til þess að komast að því, hvort elek- William Abikeff tv. og Arnold Steinmann sýna, hvernig kerfi þeirra verkar, þegar það er snert með tungunni. tróniskur útbúnaður mætti hér að gagni koma. Me'ð aðstoð dr. Blessers fengu stúdentarnir 600 dala rannsóknastyrk frá vísindasjóði ríkisins, svo að í sum ar sem leið gátu þeir unnið fut'llan vinnutíma að uppfinningu sinni í rannsóknastofu skólans. Einnig leit- uðu þeir hjálpar hjá ýmsum raf- magnsfyrirtækjum, sem gáfu þeim efni. Rafmagnsútbúnaðurinn að innan. T il þess að vél þessi gæti orðið svona mikið lömuðu fólki að notum, vaúð að vera hægt að beita henni með vöðvum höfuðsins. Þeir reyndu ljósgeisla, sem bemt var að slökkvur um, svo og kristals-hljóðnema, sem voru næmir fyrir blæstri, blístri og mannsrödd, en að lokum ákváðu þeir að nota slökkvara, sem væru snertir. Lyklarnir sem notaðir voru í til- raunavél þeirra voru settir í raðir, 7 x 7, og sýnilegir þeim, sem notar þá. Með því að snerta með tungunni fyrsta snertilinn af þremur á munn- stykkinu, velur sjúklingurinn tiltekna röð af merkjunum. Með því að snerta annan, velur hann vissan dálk af hnöppum og lýsir upp bóikstafinn, sem valinn var. Þegar sá þriðji er snertur, prentas-t stafurinn og kerfið fer í samt lag aftur. 14 LESBÓK MOEGUNBLAÐSINS 8. tbl. 1965.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.