Lesbók Morgunblaðsins - 25.04.1965, Side 10
SVIPMYND
Eramhald af bls. 2.
ómerkilegum spurningum ein-s og þess-
í annað sinn dirfðist Sir Alec að
apyrja hann, hvenær þessi síðborna
ráðstöfun verkamannaflokksins að end-
urþjóðnýta stáliðnaðinn, ætti að koma
fcam í dagsljósið.
„Til þess að losa háttvirtan þingmann
úr þessari vesöld", svaraði Wilson, ,,þá
lami honum kannski vel að fá að vita,
«ð við munum bráðlega gefa út hvíta
bók um málið.....“
Swna glósur hljóta jafnan gleðigól
frá bekkjum verkamannaflokksins. Og
það er lika aðaltilgangurinn með þeim,
að hressa upp huga flokksmannanna á
aftari bekkjunum, og lála þeim finnast
þeir vera hluti af stjórninni, sem standi
fig svona vel. Eins og þarna háttar, er
góð frammistaða í þinginu afar mikil-
væg til að viðhalda samheldni í flokkn-
'um.
>vi er það misskilningur að haida,
að þessar fimleikasýningar Wilsons í
þinginu séu bara flugeldar, flugeldanna
vegna. Oftast hafa þær einhvern póli-
tiskan tilgang, enda. þótt ekki sé alltaf
til að þóknast flokksmönnunum.
Ástandið í Vietnam hefur reynt mest
alira móla á þingleikni Wilsons. Hann
hefur orðið að hafa hemil á þéttskipuð-
tim hóp vinstrisinnaðra flokksmanna,
ee . voru andvígir stuðningi hans við
etefnu Bandarikjanna. Lagni hans að
framkvæma þetta án þess að gera þá
sér að óvinum, og jafnframt gefa and-
stöðunni engan höggstað á sér, hefur
verið glæsilegt afrek.
Vinstri vængurinn kom fram með
fjöldann allan af tillögum, þar sem
xeynt var að gagnrýna framferði Banda
rikjamanna í Vietnam, eða að minnsta
ikosti að fá Breta frá stefnu Bandarikj-
anna. Þeir stóðu líka upp, hvað eftir
annað í spurningatímum til að hnýta
j Wilson. Og menn skyldu nú halda, að
(þetta væri því erfiðara viðureignar fyr-
ir hann, þar sem hann var meðan hann
var í andstöðu, mjög nærri vinstri heim-
ingnum, og mjög meinlaus í utanríkis-
málum. En honum sást aldrei bregða.
í>egar gamall verkamannaþingmaður
úi vinstra hópnum, Konni Ziliacus
minntist á það, að það væri ekki lengra
síðan en í fyrra, að hr. Wilson hefði tal-
að gegn útbreiðslu ófriðarins í Vietnam,
svaraði forsætisráðberrann, að ástandið
hefði nú breytzt síðan — að nú vissum
við Norður-Vietnammenn hefðu verið í
•ófriði, sem virtist vera borgarastríð.
Þetta svar kynni nú ekki að standast
nánari rannsókn, en það nægði pólitískt.
I haldsmaður einn, sem reyndi að
kljúfa verkamannaflokkinn enn frekar
stióð þá upp og spurði forsætisráðherr-
ann, hvort hann vildi ekki muna, að
„linka væri ekki rétta aðferðin til að
fá iausrr í Vietnam". Wiison bvæstí á
n.ióti:
— Ég hef sannarlega enga þörf á hrós
yrðum frá háttvirtúm þingmanni. Mér
finnst þetta mál, sem hér er til meðferð-
ar of alvariegt fyrir ómerkilegt þvað-
ur, eins og hann virðist hafa ánægju af.
Auðvitað vakti þetta einróma fagn-
aðaróp frá verkamannaþingmönnum.
Það hafði náð þeim tilgangi sínum að
fá hina órólegu fylgismenn til að gleyma
sinni eigin sundrung, með því að sneypa
stjórnarandstöðuna.
Almennt hefur aðferð Wilsons í Viet-
r.ammálinu verið sú að gefa í skyn, að
hann hafi með höndum leynilegar dipló
matiskar aðgerðir í áttina að friðsam-
legri lausn — aðgerðir, sem gæti farið
út um þúfur, ef þær kæmust til eyrna
almennings. Þetta hefur þær heppilegu
afleiðingar, að gagnrýnendur hans frá
vinstri sýnast grimmir ef þeir, þrátt fyr
ir þetta, gera málið að opinberu um-
ræðuefni.
Hámarki náði þessi snilli hans, 9.
marz þegar hann svaraði þingmanni
yzt til vinstri, sem hafði komið fram
með fjölda tillagna um Vietnam, með
þessum orðum:
„Það ætti aldrei að taka það sem
gefinn hlut, að þegar hv. þingmenn fara
að sofa með kinnarnar rjóðar af dyggð-
inni, sem grípur okkur alla, þegar við
böfum undirritað tillögu — og sjálfur
hef ég undirritað margar — það ætti
ekki að taka það sem gefinn hlut, segi
ég, að ekki séu einhverjir enn á fótum
og við símann að reyna einmitt að fá
því framgengt, sem í tillögunni fólst
írá þeirra hendi, sem undirrituðu hana.
Þetta svar var auðvitað mjög áhrifa-
mikið til þess að benda á hinn mikla
þunga, er hvílir á þeim, sem ábyrgðina
bera á ríkisstjórninni. Hinsvegar kom
það alls ekki í ljós, hvern — ef þá
nokkurn — Wilson hafði verið að tala
við í sima um Vietnam.
Áhrif hr. Wilsons í þinginu stafa að
r.okkru leyti af einfaldri framsetningu
bans á málum. Hann stamar ekki, eins
og hann hafi gengið í höfðingjaskóla,
vitnar aldrei í bókmenntir, og vandar
ekki mál sitt veruiega. Ræða hans er
millistéttatal, hreimurinn flatur og minn
ir ofurlítið á Yorkshire, þar sem hann
ólst upp. Einn útsmoginn fréttaritari úr
innsta hóp slíkra háværra blaðamanna,
sem eru kunningjar stjórnmálamann-
anna, sló honum hámarks-gulihamra
um daginn, er hann sagði: — ,.Hann er
fyrsti forsætisráð/herrann, sem hefði get-
að orðið þingfréttaritari“.
Hann virðist kræfur að stjórna flokkn
um utan þings, ekki síður en innan.
Verkamannaflckkurinn slagar hátt upp
í Demókrata og Repúblíkana í Banda-
ríkjunum um að vera innbyrðis sundur-
leitur hópur, þar sem eru bæði ekki-
sósíalistar og kommúnistar og allt þar
í milli, og persónuleg óvild getur kom-
ið fyrir á furðu háu stigi.
„Stjórnarmyndunin hans í haust sem
leið var eitt fjandans mikið listaverk1*,
stigði einn gramur áhorfandi nýlega.
Wiison veíttí flókksforinigjum úr hægra
arminum, sem höfðu verið óvinir hafis,
meiriháttar ábyrgðarstöður, og setti
ýmsa væntanlega uppivöðsluseggi úr
vinstri arminum í stöður, þar sem þeir
gátu lítið aðhafzt til skaða en gagn-
rýni þeirra þagnaði hinsvegar.
ÍÍvað snertir flokksstjórn verð-
skuldar hr. Wilson vissulega góða eink-
unn. Hann hefur verið maður til að halda
sundurieitum flokki saman og gefa hon-
um áþreifanlega reynslu, sem hann hef-
ur ekki orðið aðnjótandi í þrettán ár,
en þarfnast mjög — ábyrgðartilfinningu
ríkisstjórnar.
En þá er spurningin bara, hvort hann
sé annað og meira en laginn flokksfor-
ingi. Getur ríkisstjórn hans gert þau
miklu átök, sem þarf til þess að draga
Bretland upp úr þessari hnignun, sem
orðin er að efnahagslegu öngþveiti? Get
ur hr. Wilson komið verkamannaflokkn
um burt frá þessum útjöskuðu kenning-
um sínum frá fortíðinni og í nútíma-
horf, sem eitthvert gagn er í?
Áþreifanlegar framkvæmdir hans sem
forsætisráðherra, hvað löggjöf snertir,
cru heldur fyrirferðarlitlar. Hann kom
í gegn frumvarpi gegn féflettingu hús-
eigenda, og hefur í smíðum húsnæðis-
málafrumvarp, sem kunnugir seigja, að
sé svo strangt, að það muni hindra
éinkaeign manna á leiguhúsnæði. Meiri-
háttar lagabót mun langt komin, sem
stefnir að því að kveða niður samtök
iðnfyrirtækja.
Þessi upptalning líkist nú ekki mikið
þeirri endursköpun ,3retlands, sem Wil-
son lofaði. En til eru nokkur atriði, ut-
an löggjafar sem eru eftirtektarverð.
Skrifstofuvélin í Whitehall vinnur vafa-
laust betur, enda hefur það eitt orkað
hvetjandi að skipta um stjórn eftir þrett
án ár. Svo hefur orðið munnlegt sam-
komulag um að stemma stigu við verð-
bólguhækkun allra iauna, enda þótt efa-
blöndnum mönnum sé nokkur forvitni
á að sjá það koma til framkvæmda.
En það verður að segja Wilson til
afsökunar ,að hann hefur orðið að eyða
miklum tíma í að glíma við kreppu
á erlenda gjaldeyrissviðinu, sem hann
erfði eftir ihaldið og dró heldiur lengi
að fást við sjálfur. Og orsakir þeirrar
kreppu hafa varla enn verið kveðnar
niður.
Við tilraunirnar til að laga og efla
þjóðarhag Breta, geta pólitiskar aðgerð-
ir vel verið mikilvægari en bein laga-
setning. Því að einn dragbítur gegn
breytingu — og margir mundu segja
sá helzti — er afturhaldshreyfing hjá
verkamannaflokknum, sem óttast at-
vinnuleysi og hefur oft tilhneigingu til
að vera værukær.
Verkamannaflokkurinn gæti haft
miklu betri aðstöðu til að laða verka-
mannafélögin inn í 20. öldina, vegna
þess, að þar ríkir svo mikil stéttar-tor-
tryggni gagnvart íhaldsmönnum. Ef
flokkurinn sjálfur væri ekki alveg eins
samsafnaður fræðilegum sósialisma gæti
íylgi hans orðið breiðara og vald hans
til að endurskapa þjóðarhaginn því
rneira. Sumir klókir menn, sem eru að
meta hinn dularfulla hr. Wil-son, halda
því fram, að helzt af öllu mundi hann
vilja vera sá maður, sem losaði verka-
mannaflokkinn við þessar dauðu kenn-
ingar og gerði hann að raunhæfum nú-
tímaflokki.
í þinginu er hann svo mikill flokks-
niaður — og svo hranalegur við mein-
lausasta íhaldsmann — að það yrði erf-
itt að hugsa sér hann sem einhvern
Lyndon Johnson, leitandi eftir „sam-
komulagi“. Hinsvegar eru sjónvarpsræð
ur hans áberandi lausar við flokks-
mennsku, og hann getur haft gaman af
aðferðum sem „ganga í fólkið“ eins og
að tala við íþróttamenn og ferðast á
íund erlendra stórnmálamanna.
Wilsontæknin virðist bera góðan á-
iangur, eins og er, ef nokkuð er að
r.iarka skoðanakannanir. Þær sýna
verkamannaflokkinn með 9% meiri-
'hluta yfir íhaldsflokkinn og 68%, sem
eru ánægðir með Wilson sem forsætis-
ráðherra og má það mikið teljast. Þetta
eru raunverulega merkilegar tölur.
En það, sem margir efast um, er að
þessi velsældartími verði langur. Þeir
sjá Wilson vera að nálgast pólitisk
vandamál, sem um m.uni. Því að það er
alar erfitt fyrir stjórnmálamann að
vera stjórnvitring, með þrigigja atkvæða
meirihluta. Hann skortir sjálfa fullviss-
una um öryggið, sem þingræðisskipulag
inu er ætlað að veita.
Þannig hlýtur það að vera ætlun hans
að efna til kosninga, þegar henta þyki.
En að gera það of snemma, og aðeins
til að slá sér upp pólitískt, gæti farið
í taugarnar á kjósendum. Hann kann
að kjósa heldur að biða, og vona, að
íhaldsmenn gefi eitthvert tilefni til að
leita atkvæðis þjóðarinnar, en auðvitað
hafa þeir vit á að láta það ógert.
En ef Wilson lætur danka of lengi
ár þess að efna til kosninga, getur hann
komizt í aðra erfiðleika. Hverjar alvar-
legar tilraunir til að þrengja að efnahag
manna gæti vakið gremju margra kjós-
enda. Og þá mundi hann sæta enn
grimmari gagnrýni fyrir aðferð sína,
sem nú að minnsta kosti stafar af veik-
um meirihluta hans, sem sé þeirri að
r-ota meir orð en framkvæmdir. Þegar
ei tekið að bera á óánægju yfir drætti
hans á erfiðum ákvörðunum, tali hans
um „fórnir“, án þess að fórna neinu.
The New Statesman, sem er vikublað,
fremur til vinstri, hefur sagt: „Það er
ekki nóg að flytja stólræður í sjónvarp-
ið: hlutverk ríkisstjórnar er ekki að
hvetja heldur að ákvarða“.
T il eru þeir, sem efast um, að hr.
Wilson hafi mikið víðsýni til að bera, til
ag þora, til að hefja sig upp yfir þröng
f.’okksjónarmið, eins og allir miklir for-
sætisráðherrar hafa gert. En hann hef-
ur eins og stendur sér til afsökuríar
Framhald á bls. 13.
NÝJAR PLÖTUR. Það hef-
ur verið hljótt um Beatles
undanfarið, en fyrir fáein-
um dögum sendu þeir frá
sér nýja tveggja laga plötu,
sem vafalaust verður kom-
in í efsta sætið á vinsælda-
listanum hvar sem er viku
eftir að hún kemur út. Lög-
in heita „Ticket to ride“ og
„Yes it is“ og eru bæði eft-
Faul McCartney. Fyrra lag-
ið er öllu skemmtilegra, þó
bæði séu nokkuð góð. Til
gamans má geta þess að
plata þessi var komin í sölu
í Fálkanum góðri viku áður
en hún kom út í Englandi,
Þá hafa „Yardbirds“ -sent
frá sér tveggja laga plötu,
sem hefur náð þó nokkrum
vinsældum þar er „For your
love“ aðallagið, nokkuð gott
lag, en margar eru þær
orðnar brezku hljómsveit-
irnar í þessum sama stíl
flest allar og varla hægt að
ætlast til að unglingarnir
hér uppi á íslandi fylgist
með þeim öllum. Rolling
Stones eru reyndar allt
eins þekktir og Beatles, og
þeir voru með nýja plötu
fyrir nokkru. Þar er „The
last time“ aðallagið og er
þetta bráðskemmtilegt lag
og með því betra, sem þess-
ir piltar hafa gert síðustu
mánuðina. 3áðar þessar
plötur komu í Fálkann eins
og Beatles platan. í Hljóð-
færahúsið kom ný plata
með Searchers, en þeir hafa
vaxið mjög í áliti síðan þeir
voru hér á landi við hljóm-
leikahald fyrir nokkrum
vikum. Aðallagið á nýjustu
plötunni þeirra heitir „Good
bye my love“ og hefur það
þegar náð miklum vinsæld-
um í Englandi, ég efast þó
um að það geri svo hér, því
fyrri plötur þeirra eru all
miklu skemmtilegri en
þessi. Svo eru það Kinks
með nýja plötu og bæði lög-
in á henni eru góð, þetta er
hljómsveit, sem vinnur á.
Lögin heita „Everybody’s
gonna be happy“ og „Who’ll
be the next in line“. Einnig
kom í Hljóðfærahúsið fyr-
ir stuttu nýjasta sex laga
platan, með vinsælustu lög-
unum í Bretlandi í marz.
Það eru lögin „Ye/h, yeh“,
„Cast your fate to the wind“
„Girl don’t come“, „You’ve
lost that lovin’ feelin’1,
„Ferry cross the mersey“ og
„Terry“. Þetta er að sjálf-
sögðu hin eigulegasta plata,
þó heldur finnist mér þeim
hafa farið aftur í lagaval-
inu, því þarna eru nokkur
lög með, sem alls ekki voru
í hópi sex vinsælustu lag-
anna í marz, en allt eru
þetta samt ágæt lög.
essg.
10 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
15. tbl. 1965.