Lesbók Morgunblaðsins - 28.11.1965, Side 3

Lesbók Morgunblaðsins - 28.11.1965, Side 3
Maðurinn með hjólbörurnar Eftir Kristmann Guðmundsson H, Lann bjó í Frogner-garðinum — sem naumast var hsegt að kalla lystigarð í þá daga, þetta var áður en höggmynd- um Vigelands var komið þar fyrir. Þá var garðurinn óræktarsvaeði, vaxið trjám og runnum, og víða fallegt, en ekki talið heppilegt að vera þar einn á ferð eftir að rökkva tók. Alls konar lausafólk hafði komið sér þar upp skúrum, er það svaf í um nætur, og tjöld voru þar einnig nokkur. Maðurinn með hjólbör- urnar átti þarna aðsetur. Hann svaf í klettaskúta og hafði hlaðið fyrir opið. En aleigu sína geymdi hann í hjólbör- unum, sem hann ók jafnan á undan sér, þegar hann fór til fanga í bæinn. Hann var oftast nokkuð snemma á ferli, ég heyrði venjulega skrönglið í börunum hans um níuleytið, þegar ég var að klæða mig. Ég bjó við steinlagða götu, á neðri hæð timburhúss, sem komið var til ára sinna, og hann var vanur að nema staðar fyrir framan gluggann minn, rétta úr sér og skyggnast um. Það var bannað að betla í Osló, og hann bað aldrei neinn um neitt, en tók kurteislega við því sem að honum var rétt. Þetta var hæglátur maður, í meðal- lagi hár og mjög grannur, toginleitur, fremur illa búinn, að vonum, en alltaf sæmilega hreinn, hárið dökkt, en skegg- ið nokkru ljósara, hvorttveggja vel greitt. Það var mikil ró í fasi hans og framkomu, og augnasvipurinn áberandi mildur. Erfitt var að gizka á aldur hans, ég býst þó við að hann hafi verið kom- inn yfir fimmtugt. Ég gaf honum alltaf gætur, meðan hann staldraði við úti á gangstéttinni. Hann vakti forvitni mína, kyrrðin í yfirbragði hans var svo sjaldgæft fyrir- bæri á öld hraðans, en auk þess var yfir allri persónu hans látlaus virðu- leiki, sem kom á óvart og vakti furðu. Ég var vanur að iétta honum nokkra aura út um gluggann, og heilsa honum vingjarnlega um leið. Hann tók kveðju minni með hoffmannlegri hæversku, sem er fremur óvenjuleg í fari betlara. Allt þetta jók löngun mína til að kynn- ast honum nánar, og þar kom að ég bauð honum inn til min. En hann hristi höfuðið afsakandi, kvaðst ekki vilja tefja mig frá störfum, og gæti auk þess ekki farið frá hjólbörunum sínum, það kynni einhver að hirða þær á meðan. Ég bauð honum að aka þeim inn í garð- inn, þar sem þær væru óhultar, en eigi Séra Bjarni Eftir Matthias Johannessen „Ég hef unað vel hag rnínum i Reykjavík og við hjónin og fjölskylda mín og getum sagt með orðum Ritningarinnar: „Mér féllu að erfðáhlut indœlir staðir, og arfleifð min likar mér vel“.“ Sr. Bjarni Jónsson. Þú kenndir oss öllum að krjúpa svo glaðir við krossinn og óttast ei hei. Og hlýlegt var bros þitt: Ó blessaði Faðir, ég börnin í hendur þér fel, þeim féllu að erfðahlut indælir staðir og arfleifðin líkar þeim vel. Og síðar er fullorðnir sungum vér glaðir sálma um ljós gegnum él þá sögðum vér með þér: Ó mildinnar Faðir þín miskunn er perla í skel. Oss féllu að erfðahlut indælir staðir og arfleifðin líkar oss vel. Þú leiddir oss stundum um lággrónar traðir, vér lærðum á dauðans vél því ávallt í brjósti þér brosti Guð faðir og bæn þín var sterkari en hel: „Mér féllu að erfðahlut indælir staðir og arfleifð mín líkar mér vel“. Nú liggja’ ei á sál þinni samtímans kvaðir eða sorgir sem ýfa þitt þel og englarnir syngja sálma svo glaðir því sál þín var sterkari’ en hel: Þár falla að erfðahlut eilífir staðir og arfleifð þín líkar þér vel. að síður afiþakkaði hann. — „Það er sama og þegið,“ sagði hann brosandi, og rödd hans var mjög þægileg, bein- línis fáguð. „Þetta er svo fallegur dag- vu',“ hélt hann áfram. „Ég vil helzt ekki vera innan dyra, þegar blessuð sólin skín, ef hægt er að komast hjá því.“ Þessi orðaskifti okkar gerðu mig enn forvitnari en áður, og satt að segja braut ég heilann um þennan náunga oftar og meira en góðu hófi gegndi. Hugsunin um hann tafði fyrir mér, þegar ég sat við skrifborðið og átti að vera að vinna. Einhver sem þekkti lítilsháttar til hans sagði mér hvar hann hefðist við, og einnig það, að ýmsar tröllasögur gengju um fyrri æfi hans. Sumir héldu því jafnvel fram að hann hefði, fyrir mörg- um árum síðan, verið kunnur lögfræð- ingur í Osió, en ekki vissi sögumaður minn neinar sönnur á þvi. l\S lokum var áhugi minn fyrir manninum kominn á það stig, að ég gat ekki á mér setið að reyna að veiða upp úr honum eitthvað um fortíð hans. Ég lagði fyrir hann lævísar spurningar, en hann varðist allra sagna og lét ekki á neinn hátt á- netjast. Hann var prúðmennsk an uppmáluð, kurteis og þýð- ur í viðmóti, en það var ekki nokkur leið að fá hann til að ræða um sjálfan sig, og hann var einstaklega laginn að . komast hjá því að svara spum ingum mínum beinlínis. — „Hvað er fortíð og framtíð?“ sagði hann eitt sinn. „Það sem máli skiftir er líðandi stund. Um framtíðina vitum við ekkert, og það liðna er eins og draumur. En núna, á þessu augnabliki, lifum við. Og lífið er dá- samlegt; það er svo mikil gjöf, að okk- ur endist ekki ævin til að læra að meta það réttilega.“ Ég starði orðlaus á tötrum klæddan manninn. Mér varð hugsað til okkar hinna, sem böslum í því ár og síð að búa okkur undir framtíðina. Við erum alltaf svo ör.num kafnir að við höfum engan tíma til að virða fyrir okkur fegurðina, sem á vegi okkar verður, njóta gleðistundanna, og íhuga tilveru okkar í ró og næði. Oftast önum við áfram, ósjaldan með pústrum og hrind- ingum, og reynum af alefli að hrifsa sem mest af því, sem við köllum þessa heims gæði, án tillits til hvað við höfum beina þörf fyrir. Ég minntist eins kunn- ingja míns, sem hafði verið forríkur kaupsýslumaður og þótt óprúttinn í við- skiftum. Hann unni sér aldrei hvíldar, og eina gleði hans var auðsöfnunin, en svo dó hann úr krabba hálf-fimmtugur, og á banasær.ginni lá hann og reiknaði, fyllti örk eftir örk af tölum. Og hvað um mig sjálfan? Var ég ekki líka að þræla fyrir orðstír og auði, sem fram- tíðin átti að færa mér? „Þetta er fallegur dagur,“ sagði mað- urinn með hjólbörurnar. „Það er unaðs- legt að lifa í dag, en enginn veit hvað verður á morgun.“ Svo hélt hann af stað niður í bæinn, Skröltið í hjólinu á götusteinunum hljómaði I eyrum mSr, þar sem ég stóð eftir á gangstéttinni, í sólskini morgunsins. Að vitum min- um barst gróðrarilmur úr görðunum í kring, og himinninn yfir mér var blár. Dag einn, nokkru síðar, gekk ég í humátt á eftir honum, og fylgdist með ferðum hans framundir hádegið. Hann fór sér hægt, staldraði oft við, setti nið- ur hjólbörurnar og litaðist um. Það kom fyrir að menn réttu honum aura, og hann þakkaði fyrir sig með fágaðri kurteisi, en án allrar auðmýktar. Hon- um virtist standa á sama hvort hann íékk nokkuð, eða hvað það var, stakk því bara í vasann, án þess að líta á það, og hélt áfram að virða fyrir sér leik barnanna á götunni, sólskinið og bláma himinsins. Við vorum röskan klukkutíma á leið- Framhald á bls. 14 39. tbl. 1965 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 3

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.