Lesbók Morgunblaðsins - 28.11.1965, Blaðsíða 7

Lesbók Morgunblaðsins - 28.11.1965, Blaðsíða 7
-------- SÍMAVIÐTAL -------- Þegar heimsborgin lamaöist 92-1575. — íslenzkir aðalverktakar, gó'öan dag. — Er Friðrik Eiriksson, yfir- bryti, við? — Andartak, . . . gerið þér svo vel. — Friðrik, þetta er hjá Les- Ibókinni. Hvað gefið þér eigin- lega mörgum mönnum að borða é degi hverjum? — Það er ekki gott að segja, en það kemur fyrir, að ég nota 150 iambslæri og þrjá hundrað punda kartöflupoka í eina mál- tíð. Menn hafa góða matarlyst (hér suður á Keflavíkurflug- velli. — Hvað er helzt í fréttum? ■— Ja, af mér er það að segja, að ég er fyrir nokkru kominn heim frá Bandaríkj- unum, þar sem ég sótti mikla sýningu í New York. Þetta var tfimmtugasta bandaríska gisti- húsasýningin, eða „50th Nat- ional Hotel & Motel Exposit- ion“. Sýningin var haldin í íyrri hluta þessa mánaðar í N.Y. Coliseum, og sóttu hana nokkrir íslendingar. — Var ekki margt að sjá á sýningunni? — Það er víst óhætt að segja það, enda voru sýningar- deildirnar hátt á tfimmta þús- nnd. Þarna var sýnt allt milli himins og jarðar, sem á ein- hvern hátt viðkemur rekstri gistihúsa, matsölustaða og veit- ingahúsa. Ekki er hægt annað en að undrast, hve tækninni fleygir hratt fram á þessu sviði í Bandaríkjunum, og fannst mönnum þó, að þróunin væri fyrir löngu komin á ótrúlega hátt stig þar vestra. Alltaf er verið að finna upp eitthvað, sem er fljótvirkara, fullkomn- ara, hentugra og að öllu leyti betra en það, er áður þekktist. Einna mest bar á sýningardeild um fyrirtækja, sem fram- leiða alls konar rafmagnsáhöld. — Já, vel á minnzt, lentuð þér ekki í rafmagnsbiluninni miklu 9. nóvember? — Ég er nú hræddur um það. Ég var nýkominn af sýn- ingunni ásamt konu minni og tveimur börnum, sex og sjö ára, þegar bilunin varð. Við vorum stödd inni í stórverzlun- inni „Woolworth’s Magazine“ við Breiðgötu (Broadway) klukkan að verða hálfsex að kvöldi eftir þarlendum tíma, þegar allt í einu skall á kol- niðamyrkur. — Varð fólk ekki bilt við? — Það var mesta furða, hvað lítið var um það. Menn kveiktu þegar í stað á eldspýtum og vindlingakveikjurum, og ekki gat ég merkt neina hræðslu á nokkrum manni. Síðar var kveikt á vasaljósum og kert- um. Starfsfólkið í verzluninni mun hafa látið sér detta í hug, að hér væri um skemmdarverk að ræða af hálfu þjófa, sem ætluðu sér að láta greipar sópa í verzluninni og og láta myrkr- ið skýla sér. Þess vegna komu verzlunarstjórarnir fljótlega á vettvang og létu standa vörð um varninginn. Annars kom síðar í ljós, að ótrúlega lítið var um það í þessar tólf klukku stundir, sem borgin var ljós- laus, að vart yrði við grip- deildir eða önnur lögbrot. Víða mynduðu borgararnir varð- sveitir við verzlanir og aðra staði, þar sem verðmæti eru geymd, vegfarendur tóku að sér umferðarstjórn í öngþveit- inu, sem varð, þegar slokknaði á götuvitunum, og svo mætti lengi telja. New-York-búar eru mjög stoltir af þeim góða anda, sem ríkti meðal íbúanna í myrkvuninni, og heyrði ég margar sögur af greiðvikni og hjálpsemi náungans. — Bilunin náði yfir stórt svæði, var ekki svo? — Jú, hún náði yfir 80 þús- und fermilna svæði í Banda- ríkjunum og Kanada, þar sem 30 milljónir manns búa. Þetta svæði er mjög háþróað og langt komið í iðnvæðingu, svo að rafmagnsleysið lamaði bókstaf- lega allt líf þarna. Sem lítið dæmi má nefna, að 250 þúsund manns festust í lyftum og 800 þúsund manns lokaðust niðri í neðanjarðargöngum, aðallega í lestum, en sumt á brautar- pöllum, þar sem það söng og dansaði, — Nú, hvað varð svo um yður og fjölskylduna? — Við fórum út á götu og fikruðum okkur áleiðis til gisti húss okkar, sem ekki var mjög langt undan. Þetta gekk ekki vel í fyrstu, en það hjálp- aði mikið til, að tunglsljós var. Með því að líta til himins gat ég áttað mig á lagi bygginganna og ratað. Svo var nokkurt ljós frá bílum, og lögregluþjónar stjórnuðu umferð með vasa- ljósum. Engin skelfing eða æs- ingur var me'ðal fólksins á göt- unni, allir voru rólegir og gerðu að gamni sínu. Við náð- um svo heim til hótelsins og gengum m.eð logandi kerti í höndum upp á fimmtándu hæð, þar sem herbergi okkar var. Allir gangar og stigar í húsinu voru þéttsetnir fólki, sem kom- ið hafði utan af götunni og leitað skjóls þar yfir nóttina, vegna þess að það komst ekki heim til sin. Vafði það dag- blöðum utan um fæturna og beið rólegt. Svo fórum við að sofa, og þegar við vöknuðum, var rafmagnið komið. Svo ein- kennilega vildi til, að rafmagn- ið fór kl. 5:27 um kvöldið, en kom kl. 5:27 um morguninn, svo að allar rafmagnsklukkur voru réttar. Var sagt, að sumir hefðu haldið, að þetta hefði bara verið óþægilegur draum- ur! Þetta á við um Manhattan, en rafmagnið kom annars mis- fijótt í hinum ýmsu hverfum. — Vissu menn, hvað fyrir hafði komið? — Já, margir voru með „transistor“-tæki og fengu frétt ir í útvarpinu. Annars gengu ýmsar sögur af fólki, sem hélt að það hefði orsakað bilunina. Húsmóðir ein var að tengja iampa heima hjá sér hátt uppi í skýjakljúfi á Manhattan, þeg- ar hún sá öll ljós slokkna í borginni. Hún æpti upp yfir sig: „Guð minn góður, hvað hef ég eiginlega gert?“ Lítill dreng ur barði með priki utan í ljósa staur á sama andartaki sem bilunin varð. Hann hljóp há- grátandi heim til mömmu. Þá var sagt, að fulltrúi Kúbu á þingi Sameinuðu þjóðanna hefði snúið sér að bandarískum íulltrúa og sagt afsakandi: „Þú ert vitni að því, að ég gerði Framh. á bls. 15. Svavar Cests skrifar um: ÝJARP TUR NÝJAR PLÖTUR. Everly bræður eru að ná sér á strik. Hafa verið á hljómleika- ferðalagi í Englandi og geng- ið vel. Þar er nýjasta platan þeirra ofarlega á vinsælda- listanum, en lögin eru „Love is strange“ og „Man with money“. Fyrra lagið er sér- staklega gott en bæði eru þau af LP plötu, sem bræð- urnir sungu inn á fyrir stuttu, heitir hún „Bean N’ Soul“ og er einhver bezta LP platan, sem komið hef- ur frá þeim í langan tíma. Þessi plata kom í Hljóð- færahúsið svo og eftirfar- andi plötur: Sandie Shaw með nýja lagið sitt „Message understood“, sem er eftir Ohris Andrews og „Don’t you eount on it“, líka eftir Andrews. Fyrra lagið hefur náð miklum vinsældum í Englandi og gerir sennilega lika hér, því Sandie á stór- an aðdáendahóp hér á landi. Væri ekki kominn tími til fyrir þá, sem hafa verið að fiytja inn miðlungsgóðar hávaðahljómsveitir frá Bret- landi að fá heldur hingað góða söngvara, þeir eru margir til, sem ekki aðeins mundu vilja koma hingað heldur og vekja meiri at- hygli og fá betri aðsókn held ur en hljómsveitirnar hafa yfirleitt fengið. The Sorrows, sem er nýleg hljómsveit er með lögin „Take a heart“ og „We should get along fine“. Þetta eru rétt sæmileg lög en hljómsveitin allgóð. Annars er nú eiginlega kom- ið nóg af hljómsveitum hjá þeim á Bretlandseyjum. Þær eru farnar að kvarta undan atvinnuleysi og það er spá- dómur framámanna þar í þessum málum, að nú fari að halla undan fæti hjá þeim flestum. Margar hljómsveit- anna hafa sagt skilið við hinn afkáralega klæðnað sinn og tekið upp þokkaleg einkennisföt og það mun varla velta á nema nokkrum vikum þangað til hárskerar í Bretlandi fá nóg að gera. Að lokum kom ný plata í Hljóðfærahúsið m-eð sex vin- sælustu lögunum í Október í Englandi. Það eru lögin „Here it comes agin“, „Still l’m sad“, „It’s good news week“, „Message under- stood“, „ I love you yes I do“ og „Yesterday man“. Að sjálfsögðu allt ágæt lög og þessar „Top Six“ plötur hinar eigulegustu, lögin sex á hverri plötu og platan ódýr. essg. 39. tbl. 1955 - LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 7

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.