Lesbók Morgunblaðsins - 05.12.1965, Blaðsíða 5

Lesbók Morgunblaðsins - 05.12.1965, Blaðsíða 5
Menntaskólaframtak EFTIR PÉTUR ÓLAFSSON Úr „Pótemkín". Móðir rraeð slasað barn sitt í hinu frægra atriði á Odessa-tröpp- unum. að virðist hafa orðið hlut- skipti kvikmyndaklúbbs- ins Filmíu eftir ellefu ára þrauk að deyja út án þess að nokkur rödd léti frá sér heyra á opinberum vett- vangi, um að eftirsjá væri að. Filmíu var neitað um þá sérstöðu er hún þarfnaðist, það er tolla- og skatta- ívilnanir, sem þykir sjálfsagt meðal menningarþjóða til handa slíkum smáklúbbum og er skilyrði þess að þeir geti þrifizt. Þrátt fyrir endalok Filmíu, þá hefur áhuginn á félags- skap fyrir áhugamenn um kvik- myndalist ekki verið drepinn. Hann hefur brotizt út og nú í þeirri mynd sem yfirvöldin virðast geta sætt sig betur við en hjá Filmíu, enda er sá vettvangur ólíkt þrengri. Nú hefur Menntaskólinn, eða Listafélag hans, undir áhugasamri forystu Þorsteins Helgasonar, stofn- að kvikmyndaklúbb, sem starfar á líkum grundvelli og Filmía. Eini munurinn er að yfirvöldin þora nú aðeins að veita takmörkuðum hóp þær ívilnanir, sem þau þorðu ekki að veita almenningi, mest vegna ótta við kvikmyndahúsaeigendur, sem sumir hverjir sáu eftir myndum í Filmíu og gáfu starfseminni illt auga. Leyfður er aðeins lítill ótoll- aður afleggjari í þágu menningar- starfs, svo breiðstræti kvikmynda- ómenningar verði ekki um of fá- farin. I>að sem fyrst vekur athygli í sam- bandi við kvikmyndaklúbb Listafélags- ins er mjög vönduð efnisskrá, sem nær þó aðeins yfir fyrra misseri sýningar- ársins en sýnir að mjög er vandað til ikvikmyndavals. Heil 34 síðna mynd- skreytt skrá kynnir fyrstu sjö sýning- arnar. Til þess að vekja athygli á þessari starfsemi, en fyrst og fremst til að reyna að vekja yfirvöldin til að gefa öllum kost á aðgangi að sýningum á myndum, sem ekkert kvikmyndahúsanna hefur reynt að standa fyrir, mun ég rekja nokkuð hvaða myndir Menntaskólanem- endum er gefinn kostur á að sjá, en al- menningi meinað að njóta. Sú mynd sem ætla mætti að almenn- ing langaði til að sjá, er Fjalla-Eyvindur (Berg-Ejvind och hans Hustru), sem Victor Sjöström gerði eftir leikriti Jó- hanns Sigurjónssonar árið 1917. Sú mynd er oft talin meðal sígildra verka þöglu myndanna og hefur ekki tekizt að fá hana hingað til lands seinustu áratugina fyrr en nú að Listafélaginu tekst að útvega hana. í>á er almenningi meinað að sjá þetta fágæta listaverk sem gert hefur verið eftir íslenzku bók- menntaafreki. Með Fjalla-Eyvindi og næstu verkum sínum tókst Sjöström að skapa nýjan kafla í kvikmyndaþróun- inni og gera Svíþjóð að heimsveldi I kvikmyndalistinni. Fyrri heimsstyrjöldin kom í veg fyrir að kvikmyndin yrði tekin á íslandi. 1 stað þess fór Sjöström tii Lapplands og tók útiatriðin þar. Svo vel tókst honum að Jóhann Sigurjónsson varð hrifinn af og lauk lofsorði á kvik- myndina, eftir að hafa verís viðstaddur frumsýningu hennar í Stokknólmi, Og einnig hve vel Sjöström hefði tekizt að skapa íslenzkt landslag með tökum sín- um í Lapplandi. Sjöström tókst að skapa kvikmynd, sem sýndi að jafnvel mann- eskjuna og sálina var hægt að túlka á filmu, ekki aðeins ytri atburði og hama- gang. Sjöström lauk sínum frábæra ferli í kvikmyndunum í hlutverki ísaks í mynd Ingmars Bergmans, Að leiðar- lokum (Smultronstallet, 1957), sem margir munu enn minnast frá því hún var sýnd í Hafnarfjarðarbíói fyrir nær tveimur árum. Upphafssýning Listafélags Mennta skólans var á tveimur myndum Bunu- els, Land án brauðs (Tierra sin pán, 1932), sem er ein átakanlegasta heimild- armynd sem gerð hefur verið. Bunuel lýsir þar héraðinu Las Hurdes, fátækt, eymd og vesaldómi íbúanna þar, af miskunnarlausu raunsæi. Aðalmvndin á þessari fyrstu sýningu var þö Róbinson Krúsó, sem gerð var eftir hinni frægu skáldsögu Daniels Defoes. Sú mynd er gerð undir bandarískri fjármálastjórn United Artists og ber myndin glögg merki þess. Þrátt fyrir það tekst Brunu- el að smeygja sjálfum sér að, svo hún verður ekki alveg undir smámennsku- hælinn lögð. í gegnum kaupmennsku- brag myndarinnar skín oft snilldarbragð Bunuels, þótt Hollywood hafi legið með öilu sínu fargi á honum. Hvað sem allri nútíma kvikmynda- niðurlægingu Þjóðverja líður, þá áttu þeir sina snillingaöld í kvikmyndalist- inni á tímum þöglu myndanna. Næsta mynd Listafélagsins, Seimstur manna (Der letzte Mann, 1924), var gerð af Friedrich W. Murnau á gullaldartíma þýzkra kvikmynda, eða raunar í lok þessa tímabils. Hún er fullkomnun þeirrar listar er Þjóðverjar náðu taki l „Fundurinn skorar á ríkisstjórn- ina“ að gera hitt og þetta, gera það snarlega og spara ekki fé urn of, þvi að þióðarheill sé i veði. Hve oft heyrum við ekki slíkar fundar- samþykktir? Eða, vœri e.t.v. nær að spyrja: Hvenær hitt- ast þrír menn á íslandi án þess að kom- ast að álíka niðurstöðu? Þess vegna kom það eins og reiðarslag yfir allan landslýð, þeg- ar útvegsmenn tóku allt í einu upp á þvi að samþykkja á fundi sínum, að hluti aflaverðmœtis skyldi lagð- ur til hliðar og rannsóknarskip smíðað fyrir féð. Ég man ekki eftir þvi, að menn hafi opnað buddu sina í svipuðu skyni án fyrirmœla „að ofan“. Margt smærra kemur fólki úr jafnvœgi í skammdegisdrunganum. Okkur er nær að halda, að straum- hvörf séu í aðsigi. Einhverjir hafa a.m.k. tekið sinnaskiptum og von- andi fylgja fleiri í kjölfarið. Annars er rannsóknarskip ekki það eina, sem við þurfum að leggja kjöl að. Og vonandi verða sinna- skiptin fyrrnefndu til þess að hleypa nýju lífi i fjölmargt, sem œtti að vera ofarlega á óskalistan- um. Það er samt ákaflega ósann- gjarnt að hálda því fram, að hér sé ekkert að gerast og lítið sé um stórhug. Saga liðinna ára hefur ver- ið ævintýri líkust og þegar áform- in verða að veruleika eitt af öðru œtti fólk að fyllast enn meira kappi og áhuga. Ég nefni nýju íþrótta- og sýningahöllina svo og Suðurnesjaveginn sem dæmi. Fordœmi útgerðarmanna og sá góði árangur, sem samvinna fjöl- margra aðila um smíði íþrótta- og sýningáhallarinnar hefur borið, gef- ur okkur ótvírœtt til kynna, að það er í rauninni ekki nauðsyn eða á- stœða til þess að bíða eftir frum- kvœði ríkisstjórnarinnar á öllum sviðum. Ekki er hœgt að œtlast til að hún geri állt í einu. Með þetta tvennt í huga mætti nefna eitt verkefni, sem hœgt er að hrinda í framkvœmd — og það er sjódýrasafn á fstandi. Hér þarf framták og samvinnu fjölmargra aðila. Hér œtti sjávarútvegurinn að láta til sín taka, svo og forystumenn í kennslumálum. Hér œtti að koma upp safni lifandi sjódýra — safni, sem yrði frœgt víða um lönd — og fólk kœmi beinlínis til þess að skoða. Annað safn og e.t.v. langtum merkara œtti höfuðborgin, eða landið í heild, einnig að eignast. Það safn œtti að vera tileinkað eldi í iðrum jarðar á landinu kalda. Þar gætu vísindamenn, hugvitsmenn og listamenn gert stórkostlegan hlut, ef þeir legðust allir á eitt. Jafnvel svo, að orð fœri af um all- ar álfur. Slíkt safn, sem gerði eld- gosum og eldfjöllum, jarðhita og gjósandi hverum skil á margvisleg- an hátt yrði ekki aðeins mikilvægt við uppfræðslu komandi kynslóða. Það gœti orðið visindum okkar mikilvœgt, eflt skilning almenn- ings á gildi vísindanna og opnað augu margra fyrir þeim furðum, sem landið okkar býr í raun og veru yfir. Komandi kynslóðir munu ekki hafa spúandi Surt eða Syrt- ling fyrir utan eldhúsgluggann nótt og dag. Hér er efni og aðstaða til að vekja enn meiri athygli á landi Leifs hepptta. — h.j.h. 40. tbl. 1965 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 5

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.