Lesbók Morgunblaðsins - 05.12.1965, Qupperneq 10
SIGGI SIXPENSARI
— Einn bjór,
takk!
— Ég sá hann
fyrst!
A erlendum bókamarkaði
Bókmenntir.
Foesie. Karl Vennberg. Schwed-
ish — deutsch. Úbersetzt von
Nelly Sachs und H. M. Enzens-
berger. Nachwort von Lars
Gustafsson. Suhrkamp Verlag
1965. 0M 11.80.
Karl Gunnar Vennberg fædd-
ist 11. apríl 1911 í Bládinge,
þorpi í Smálöndum í Svíþjóð.
Faðir hans var smábóndi og hann
vann um árabil að landbúnaðar-
störfum, en stundaði jafnframt
nám í bréfaskólum. Síðan lagði
hann stund á heimspeki, norræn
mál og bókmenntir í Stokkhólmi.
Fyrsta bók hans var „Hymn och
hunger" og vakti sáralitla at-
hygli. Með næstu bókum sínum,
„Halmfackla" 1944 og „Tide-
rákning" 1945, verður hann fræg-
ur. Síðan rekur hver bókin aðra
og höfundurinn verður málsvari
þeirrar kynslóðar, sem kennd er
við fimmta tug aldarinnar.
Vennberg kynnti Svíum Kafka,
þegar sá höfundur var svo til
óþekktur í Evrópu, verk hans
hafa haft töluverð áhrif á Ijóð
Vennbergs. Vennberg hefur mjög
persónulega afstöðu til stjórn-
mála, hann er flokksleysingi en
telur sig nokkurskonar sósíalista.
Hann er lítið gefinn fyrir félags-
málastarfsemi, og þótt hann sé
blaðamaður við „Aftonbladet".
lifir hann lífi sínu „far from the
madding crowd".
Suhrkamp-forlagið hefur gefið
út ljóð nokkurra skálda ýmissa
þjóð á tveim málum, frummáli og
þýzku. Meðal þessara eru: Carlos
Drummond de Andrade, Franco
Fortini, Frantisck Halas, Giorgos
Seferis og fleiri. Þetta er hin
þarfasta útgáfa og mun forlagið
hcilda áfram þessari starfsemi.
Abriss der deutschen Eiteratur-
geschichte in Tabbellen. Vierte,
durchgesehene u. ergánzte Auf-
lage. Fritz Schmitt u. Jörn
Göres. Athenáum Verlag 1965.
DM 13.80,
Höíundar þessa verks eru
Schmitt og Göres, sá fyrri lagði
stund á heimspeki og listasögu,
hefur gefið út rit um Heine og
starfar nú sem rithöfundur og
útgefandi. Sá síðari er safnvörð-
ur Goethe-safnsins í Dússeldorf,
hann hefur sett saman rit um
Goethe og Arnim.
Þetta rit er byggt á þriggja
binda verki sömu höfunda,
„Deutsche Literaturgeschichte in
Tabellen", sem kom út á árun-
um 1949-52. Þessi fjórða útgáfa
„úrdráttar" er endurskoðuð og
fyllri hmuni fyrri. Bókinni er
skipt í kafla eftir bókmennta-
timabilum. Ritið spannar tímann
allt frá fyrstu minjum og ritum
um Þjóðverja frá því fyrir Krist
og fram á okkar daga. Ævisaga
hvers höfundar er rakin í aðal-
atriðum, höfundaeinkenni og
helztu verk, inntaki þeirra lýst 1
fáum orðum og þau ársett. Einn-
ig eru rakin áhrif þessara verka
á samtímann og aðra höfunda
samtíðar og síðar. Þetta er mjög
handhæg uppsláttarbók.
The Egyptologists. Kingsley
Amis and Robert Conquest. Jona-
than Cape 1965. 18/—.
Tveir eru höfundar þessarar
skáldsögu, þeir hafa áður unnið
saman að bókagerð. Kingsley
Amis hlaut menntun sína í Ox-
ford og hefur látið nokkrar bæk-
ur frá sér fara. Robert Conquest
er skáid og gagnrýnandi, og var
einnig í Oxford. Þetta er saga
um leynifélag, sem er grunað
um að reka smygl, eiturlyfjasölu,
njósnir og jafnvel eru félags-
menn, sem allir eru karlmenn,
grunaðir um frávik frá eðlilegu
hátterni eigin kyns Ýmsir verða
til þess að reyna að rannsaka og
komast að tilgangi félagsins, sem
reynist allt annar en menn
grunar. Aðalstöðvar þessa félags,
sem kennir sig við „egypzk
fræði“, eru til húsa á hálf yfir-
skyggðum stað í borginni. Mikil
leynd hvílir yfir öllum störfum
og aðgerðum þessa félags, enginn
veit hvað gerist í herberginu,
sem kennt er við Isis. Loks kem-
ur að því að allt er afhjúpað.
Höfundar hafa sett saman mjög
skemmtilega bók og spennan
helzt til bókarloka.
The Sea is Hungry. Henry-Jacqu-
es. Michael Joseph 1965. 25/—.
Bókin er þýdd úr frönsku af
Stellu Rodway. Höfundurinn
minnir um margt á Daphne du
Maurier, einkum fyrri bækur
hennar. Hann fléttar listilega
saraan náttúrulýsingar og örlög
þess fólks, sem byggir þessa út-
skaga, þar sem' sagan gerist.
Náttúruöfiin móta líf fólksins.
hafið og auðnarlegt landslagið
heíur meiri áhrif á sálarfar þess
en það grunar sjálft. Það er
mikil spenna í þeesari sögu. Svið-
ið er auðnarleg strönd Vendée-
héraðs í Frakklandi og aðalper-
sónurnar eru af Altefer-ættinni,
sem eitt sinn réði og ríkti á þess-
um slóðum, en lifir nú í minning-
um um forna frægð. Ástarsaga
Pazannes Altefers og Sylvians er
rakin af mikilli nærfærni og inn
í þá sögu fléttast fjölskyldudeilur
og barátta manns og hafs. Sagan
verður manni eftirminnileg, hún
er vel skrifuð og persónulýsingar
minnisstæðar.
Ævisögur.
Garibaldi and His Enemies.
Christopher Hibbert. Longmans
1965. 45/— .
Höfundurinn hlaut menntun
sína í Oxford. Hann var liðsfor-
ingi á stríðsárunum, særðist tvis-
var og hlaut heiðursmerki fyrir
vasklega framgöngu. Hann hefur
stundað sögurannsóknir síðustu
ár og sett saman margar bækur.
sem hafa hlotið ágæta dóma. í
þessari bók ritar hann um sam-
einingu Ítalíu og þann þátt sem
Garíbaldi átti að þeirri sögu.
Garibaldi var einn þessara frelsis-
riddara 19. aldar, hann dvaldi um
skeið í Suður-Ameríku og tók
þátt í borgarastyrjöldum í Uru-
guay og Brasilíu, hvarf síðan til
Ítalíu og var einn þeirra sem
unnu að sameiningu landsins.
Hann barðist bæði gegn Frökk-
um og Austurríkismönnum. Ein
frægsta för hans var sú, er hann
fór til Sikileyjar með 1088 manna
liði, sigraði vel útbúinn her
Búrbóna og í árslok 1860 af-
henti hann Viktor Emmanuel
landsvæði, sem hann hafði unnið.
Siðan hvarf hann til búgarðs síns
við Caprera, snauður að þessa
heims gæðum. Sigur hans á Sikil-
ey er hans frægasti og með hon-
um verður hann þjóðsagnaper-
sóna og verður dáður um alla
Evrópu. Margir hafa sett saman
bækur um þennan furðulega
mann og siík rit hafa alltaf verið
vinsæl lesning. Dómar manna
um hann hafa verið honum eink-
ar hagstæðir, en þó voru ýmsir,
sem litu hann öðrum augum.
Höfundur þessa rits reynir að
draga upp sem sannasta mynd
af þeesum íurðufugli og hefur
með því sett saman mjög læsilega
bók, sem er aukin ágætum mynd-
um og heimildaskrá og registri.
Jóhann Hannesson:
ÞANKARÚNIR
HVERS vegna er kenning prestanna í kirkjunni svo gjörólik
innbyrðis sem raun ber vitni? Þannig spyrja menn og má jafn-
vel finna slíkar spurningar í blöðum. Enga skarpskyggni þarf
til að skilja að misræmið er mikið. Einn boðar kenningu N. T.
og kirkju sinnar skýrt og málefnalega, en annar flytur sínar
einkaskoðanir, sem eru svo aftur ólíkar einkakenningum hins
þriðja, samsteypu hins fjórða eða sundurlausum hugmyndum
hins fimmta o. s. frv. Eðlilegt hlýtur að teljast að einkaskoð-
anir séu ólíkar, þar sem eðli manna og persónuleiki er hvergi
nærri eins. Svo er og í þjóðfélaginu og daglegu lífi manna. í
Afríku eiga höfðingjar margar konur. í Evrópu halda sumir
menn framhjá eiginkonum sínum, aðrir yfirgefa þær með öilu,
en sumir eru eiginkonum sínum trúir til dauðadags. Per ana-
logiam er svo einnig í kirkjunni og var með söfnuði Guðs hjá
hinum forna ísrael löngu fyrir daga Frelsarans á jörðinni.
Spámenn ávíta lýðinn fyrir „framhjáhald með framandi guð-
um“, sbr. Hósea. Þannig er með Guðs lýð nú á dögum. Ein-
hverjum „lauslátum“ manni lízt vel á einhverja framandi hug-
mynd, heiðna eða heimspekilega, og hann slær til, líkt og frí-
merkjasafnari eða hrossabraskari og kaupir þessa hugmynd og
reynir svo að selja hana aftur og telja mönnum trú um að hún
sé jafn góð eða betri fyrir sálir mannanna en hinn spámann-
legi bg postullegi boðskapur, sem hann hefir heitið að boða í
kirkjunni. Hér með er ekki verið að amast við því að menn
eigi „hugmyndir“, hross eða frímerki — heldur við óheiðarleika
í þessari verzlun.
Paradoxið, þverstæðan, sem veldur undrun, glundroða og
spurningum meðal manna er hvernig á þvi skuli standa að svo
gjörólíkir menn (leikmenn, prestar, trúleysingjar o. fl.) skuli
vera í einni og sömu kirkjustofnun. Þetta hefir heilög kirkja
séð fyrir löngu fyrir vora daga, enda er vizka hennar mikil,
meiri en nóg handa þeim, sem hennar vilja leita.
„Quid sit Ecclesía? Quanquam ecclesia proprie sit congre-
gatio sanctorum et vere eredentium, tamen cum in hac vita
multi hypocritae et mali admixti sint, licet uti sacramentis,
quae per malos administrantur, iuxta vocem Christi: Sedent
scribae et pharisaei in cathetra Moysi & c. Et sacramenta et
verbum propter ordinationem et mandatum Christi sunt effi-
cacia, etiamsi per malos exhibeantur". (C.A. 8). — Oss er hér
sagt í játningu kirkju vorrar (1) að kirkjan sé réttilega söfn-
uður heilagra og sanntrúaðra manna, (2) að í þessu lífi sé inn-
blandað í kirkjuna mörgum hræsnurum (hypocritae) og ill-
mennum (mali), (3) að þótt illir menn gegni þjónustu orðs og
sakramenta, þá haldi þau gildi sínu, af því þau eru inn sett af
Kristi.
Spyrja mætti hvort játningin gangi hér ekki á rétt hinna
trúuðu, sem eru kirkjan, og dragi taum hræsnara og illmenna,
sem „admixti sint“, blandað er innan um trúaða menn í kirkj-
unni. Og hvað leiðir af þessari blöndun? Vissulega er hér
vandi á höndum, en hann varir ekki að eilífu, heldur aðeins
í þessu lífi. Kosturinn við þessa furðulegu kirkjukenningu er
sá að lútherska kirkjan hefir varðveitzt sem heild út á við
öldum saman og ekki klofnað niður í rúmar hundrað litlar
kirkjudeildir, líkt og kirkjur vorra reformertu bræðra og
vingltruarmanna. Gallarnir liggja hins vegar í augum uppi.
Kirkjan klofnar að innanverðu í sanna kirkju (sem heldur sér
að Guði, orði, sakramentum, tilbeiðslu, góðum verkum o. fl.)
og falskirkju (sem heldur sér að veröldinni og nokkrum sere-
móníum, sem menn kauþa vægu verði af prestunum hér-
lendis). Þessi aðgreining er nú orðin algeng í guðfræðinni, og
sjálfsagt að gera sér hana Ijósa, en nota þó ekki úr hófi fram.
— Kirkjan kann einnig að greinast i hópa áhugamanna, sem
halda fast við fagnaðarboðskapinn, en gefa sig að tilteknum
kirkjulegum verkefnum, svo sem velferðarþjónustu, kristni-
boði, barnastarfi, sjómannastarfi, skólastarfi og námi, en slík
verkaskipting er heilbrigð og kunn allt frá dögum postulanna.
Hinn alvarlegi klofningur er milli trúarafstögu og vantrú-
arafstöðu, og hálfvelgjan er einnig vantrúarafstaða. Menn
spyrja ef til vill um einkenni falskirkjunnar, en þau eru ekki
auðtaljn. Eitt hið veigamesta er þó að falskirkjan ofsækir hina
sönnu kirkju (líkt og heiðnin gerir oft), stundum í blóðugum
ofsóknum, en stundum óblóðugum, með margvislegum hindr-
unum, sem hún leitast við að leggja í veg fyrir frjálsa út-
breiðslu fagnaðarboðskaparins og með margvíslegum niðurrif-
um á heilnæmum trúar- og siðakenningum.
40. tbl. 1965
10 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS'