Lesbók Morgunblaðsins - 06.02.1966, Side 5

Lesbók Morgunblaðsins - 06.02.1966, Side 5
Eftir Sigurjón Björnsson BL átum þetta nægja um kyn- ferðiskenninguna, og snúum okkur að framhaldinu á kenningum Ranks. Hann lítur sem sagt á listiðkun sem taugaveiklun og skoðar hana sem hvern annan sjúkdóm. Er helzt svo að skilja, að sjúkdómurinn sé til- tölulega meinlítill, ef hann birtist í þessari mynd, en fatist mönnum tökin á listinni þurfi þeir lækning- ar með. Þetta finnst mér ákaflega fjarstæð kenning. í fyrsta lagi fer því víðsfjarri, að allt taugaveiklað fólk sé listhneigt. Sumir eru það, aðrir ekki. Jafnvel þótt kenningin væri rétt, lætur hún ósvarað því, sem mestu varðar, en það er, hvers vegna sumu taugaveikluðu fólki tekst að fá sjúkleika sínum útrás í listiðkun, en öðrum ekki. Ölilu nær sanni er skoðun, sem annar sálfræðingur, að nafni Mosse, lét í ljós löngu síðar, og margir aðrir hafa tekið undir, er hann t.ók kenningu Ranks til athugunar (6). Hann lagaði til setn- ingu Ranks og sagði, að listamaður væri taugaveiklaður maður, sem tekizt Ihefði að sigra taugaveiklun sína með aðstoð listgreinar sinnar. Sú skoðun, þótt neikvæð sé og pathografisik, fær liklega nokkuð oft staðizt, en síður en svo alltaf. Við athugun á æviferli og verkum sumra höfunda kemur í ljós, að þeir hafa í upphafi ferils sins átt við allmikla erfiðleika að stríða, sem hæg- l.ega má nefna taugaveiklun, en í rit- xnennsku sinni hafa þeir keppt að auknu innsæi í vandamál sín, rýnt dýpra og dypra í sjálfa sig, og með því móti hafa þeir smám saman þroskazt og vaxið frá vandkvæðum sínum. Ég tel mig hafa sýnt á öðrum stað, að svo hafi há'ttað til um Gunnar Gunnarsson (7). En eins og kenning Ranks, segir þetta sjónar- mið ekkert um, hvað veldur því, að sumir höfundar taka þessa stefnu en aðrir ekki. Vissulega eru margir rithöf- undar taugaveiklaðir, en því fer fjarri, að allir læknist af verkum sínum. Marg- ir hverjir þjást af veiklun sinni allt til dauðadags, en halda samt listamanns- merki sinu hátt á lofti. Næ.gir að minna á menn eins og Dostójevski og Strind- berg í því samhandi. Loks er þess að geta, sem ekki má gleyma, að stór hóp- ur ágætra listamanna er heilbrigt fólk, sem ekki þarf að heyja neitt sjúklegt innra stríð til þess að vinna sér frægð sem skapendur góðrar listar. Ennþá vantar okkur því hinn lang’þráða sam- nefnara. . E ins og áður er getið varð Ottó Rank fyrstur manna til þess að reyna að útskýra list- hneigð og sköpunarmátt manna með tilstyrk sálfræðilegra kenn- inga. Smárn saman bættust fleiri í hóp- inn, enda þótt flestir héldu sig við patJhografiskar athuganir. En eftir því sem sálkönnunin þróaðist meir sem fræðigrein, og einkum eftir að athyglin beindist meir að börnum, þroskaferli þeirra og mótun, tóku menn að efast um, Seinni hluti að bölsýni Freuds varðandi list og list- sköpun ætti rétt á sér. Menn þóttust eygja möguleika á, að hægt yrði að varpa einhverju Ijósi á þessar furðu- strendur mannsandans. Sá sem einna mestan þátt átti í þessari viðlhorfsbreyt- ingu var Austurríkismaður, sem síðar settis't að í Bandaríkjunum, að nafni Ernst Kris. Hann var menntaður sem Gunnar Gunnarsson listfræðingur, en lagði siðar fyrir sig sálkönnun og varð þar framarlega í flokki. Ernst Kris setti að vísu ekki bein- línis fram nýjar kenningar um list, en hann undirbjó jarðveginn all rækilega. Hann átti afar mikinn þátt í því að hreinsa sólkönnunina af ýmsum gömlum firrum, skýrgreina mörg grundvallar- hugtök nánar, — því að Freud gamla hafði löngum hætt til að vera full los- aralegur í þeim efnum, — og siðast en ekki sízt beindi hann hugum manna að rannsóiknum á starfsemi sálarlífsins i heild, í stað þess að einblína á kynhvöt, duldir og dulvitund. Þegar hann lézt á bezta aidri, árið 1957, var hann fyrir skömmu byrjaður á stórri rannsókn á ------------------------------------- Það kann að hafa valdið ein- hverjum eftirtektarsömum lesend- um þessara dálka heilabrotum, að höfundar þeirra eru nýlega farnir að skrifa þá undir fullu nafni — án nokkurra skýringa á hinni skyndi- legu kúvendingu. Ástœðan er ein- faldlega sú, að lögspakir menn komu þeirri vitneskju á framfæri við okkur, að samkvœmt lögum íslenzka lýðveldisins bœru höfund- ar ekki ábyrgð á þeim ritsmíðum sem þeir auðkenndu með fanga- markinu einu, heldur vœru þær birtar á ábyrgð ritstjóra hlutaðeig- andi blaða eða ímarita. Þó ekki hafi orðið nein um- talsverð vand- rœði út af rabbi Lesbók-- ar á liðnum fjórum árum er ástæðu- laust að það fari milli mála hver beri á- byrgð á marg- víslegum við- horfum sem þar koma fram, og hefur af þeim sökum verið af- ráðið að höfundar dálkanna beri fulla lagalega ábyrgð á þeim eftir- leiðis. Ætti það að firra ýmsa þá menn andvökum sem haft hafa þungar áhyggjur af „frjálslyndi Morgunblaðsins“ síðustu árin. Það hefur reyndar aldrei farið milli mála innan ritstjórnar Morg- unblaðsins, að höfundar rabb-dálk- anna skrifa þá algerlega fyrir eig- in reikning og kœra sig ekki um að aðrir beri ábyrgð á þeim persónu- legu skoðunum sem þar birtast og eru stundum í ósamhljóðan við yfir- lýsta stefnu Morgunblaðsins, en nú þykir sem sagt rétt að lagaleg hlið málsins sé einnig ótvírœð. Eflaust kemur ýmsum lagaá- kvæðið um ábyrgð ritstjóra á fangamörkuðum greinum skrýti- lega fyrir sjónir með hliðsjón af þeirri útbreiddu venju hérlendra blaða og tímarita að birta alls kyns ritsmíðar undir fangamarki einu saman, þ.á.m. afmœlisgreinar og minningarorð, ritdóma, leikdóma og greinar um þjóðmál eða önnur efni. Strangt tekið bera ritstjórarn- ir ábyrgð á þessum ritsmíðum, ekki einungis birtingu þeirra, heldur líka sjónarmiðum höfundanna, Framhald á bls. 6 ra 6. febrúar 1966 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 5

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.