Lesbók Morgunblaðsins - 01.05.1966, Síða 10
SIMAVIÐTALIÐ
LIF FÆRIST í SVIFFLUGIÐ
— 12719.
— Já.
— Þetta er hjá Lesbók
Morgunblaðsins, er Þórhallur
Filippusson við?
— Jú, það er hann.
— Þið eruð byrjaðir að und-
irbúa svifflugið í sumar?
— Já, það er ekki seinna
vænna. Vonandi verður starf-
semin líka líflegri næstu mán-
úðina en mörg undanfarin ár
eða oftast áður. Annars er ég
ekki í stjórn félagsins og þið
ættuð að taia við formanninn.
— Við ætluðum ekki að
rabba við formann félagsins
fremur en einhvern annan í
sviffluginu. Við tölum við
hann næst — er það ekki í
lagi?
— Það er ykkar að ákveða.
— Að hvaða leyti verður
íneira um að vera á Sand-
skeiðinu í sumar en áður?
— í sumar verður þar starf-
að allan daginn, virka daga
sem helga, þegar veður leyfir.
Undanfarin ár höfum við orð-
ið að binda okkur við helg-
arnar og kvbldin —
og flugdagarnir hafa því
ékki alltaf orðið of marg-
ir. Nú geta hins vegar allir
komið upp eftir, þegar viðrar
—r og flogið, hvort sem þeir
vilja fljúga einir eða ekki.
Byrjendur njóta þar aðstoðar
kennara — aðrir fara einir á
loít.
— Og hve margar svifflugur
eiglð þið núná?
—- Þær éru sex; þar af tvær
Iveggja 'sæta..........
— Og þið búizt við taís-
'verðri aukningu á fluginu í
sumar af þessum sökum?
'. — Já, ekki sízt vegna þess,
að nemendur, sem eru að iæra
undir atvinnuflugpróf hjá
Fiugsýn, munu fá nokkra tíma
í svifflugi áður en þeir taka
prófið —og það éitt mun
verða töluverð viðbót við þá
notkun á svifflugunum, sem
fastlega má búast við. í sum-
ar verður líka mikið um vél-
flug á Sandskeiði. Kennsluvél-
ar frá Reykjavík verða þor
mikið á ferð. Þjálfun í lend-
ingu á að fara fram þar efra
til þess að létta þeirri umíerð
af Reykjavíkurflugvelli. Nú
hafa verið samdar sérstakar
reglur um flug yfir og um-
hverfis Sandskeið, bæði varð-
andi 'vélflugur og svifflugur —
og á því ekki að verða nein
hætta á að árekstrar verði í
þessari tvíþættu starfsemi.
Skála verður komið upp þar
efra — og fer þar fram greiða-
sala. Við búumst sem sagt við
fjölda gesta, bæði fijúgandi
og akandi.
— Flýgur þú sjálfur vél-
flugu?
— Nei, ég hef ekki lært, hef
ekki haft áhuga á vélfluginu
sem tómstundagamni.
—Er svifflugið þá vanda-
samara en hitt?
— Ég vil ekki leggja neinn
dóm á það. Hitt er víst,r að
það krefst langrar þjálfunar
að ná einhverjum umtalsverð-
um árangri í svíffiugi — og
það er ekki hægt að búast
við miklu af svifflugmönnum
fyrstu árin. Fyrst, þegar þeir
eru um og yfir þrítugt, má
búast við að þeir fari að ná
verulegum tökum á svifflug-
unni —. hafi þeir æft sæmilega
frá upphafi.
— En hver er ástæðan til
þess að ekki hefur verið al-
mennari þátttaka í svifflug-
inu undanfárin ár?
Það tekur langan tíma að
byggja upp starfsemi sem
þessa — og aðstæðurnar til
sviffiugs eru að mörgu leyti
erfiðar hér á landi— eða voru
þar til við fengum radíótæki
í flugurnar. ÍÞar á ég við strjál
býlið, óbýggðirnar, sem eru
versti óvinur svifflugmanns-
ins. Það er ekki skemmtilegt
að þurfa að lenda svifflugu
sinni fjarri mannabyggðum og
geta ekki gert vart við sig —
og leiðin í óbyggðir er hvergi
löng. En nú breytist þetta.
Hins vegar breytist veðrið
ekki til muna. Allur fjöldinn
stundar ekki tómstundaiðju,
sem stundum er ekki hægt að
iðka nema með höþpum og
glöppum — vegna veðurs.
Þeir, sem ekki hafa brennandi
áhuga, gefast fljótt upp — en
samt er sjálfsagt fyrir alla að
reyna. Hver veit nema að þeir
finni í sviffluginu citthvað,
sem þeir hafa lengi ieitað að!
— Hefurðu fiogið mikið er-
lendis?
— I rauninni meira erlend-
is en hér heimá síðustu
árin, og þá aðallegá í
Þýzkalandi. Þar eru aðstæð-
í Þýzkalandi. Þar. eru aðstæð-
urnar allt annars eðlis, eink-
um vegna samfelldar býggðar
— og stöðugs veðurlags. I
rauninni er ekki hægt að bera
þetta saman við það, sem við
þekkjum hér. Annars bötnuðu
viðhorfin hér mikið, begar
menn komust upp.á lagið með
að nota hitauppsreymið, því
að það getur orðið mjög gott
hér. Áður miðaðist allt við
byigjuuppstreymi og hlíða
uppstreymi ■ — og var
svifflugmönnum þá oft snið-
inn þröngur stakkur. Við ætt-
um að geta náð góðum árangri
í svifflugi hér á landi, en til
þess verðum við líka að
stunda flugið vel.
— Er Sandskeið bezti stað-
urinn? '
— Nei, en þægilega nálægt
borginni. Ég gæti vel trúað
því, að hægt væri að finna
mun heppilegra aðsetur fynr
svifflugið uppi í Borgarfirði,
eða fyrir austan fjail. Þar á
ég við aðstæðurnar til iðkun-
ar sjálfs flugsins. En þá er
fjárlægðiri orðin svo mikil frá
borginni, að erfiðara verður
að skjótast í bíl á staðinn —
og það er líka mikill ókostur.
— Eruð þið að hugsa um að
auka flotann énn?
— Það er talað um að kaupa
tvær svifflugur til viðbótar —
að þær verði teknar í notkun
næsta vor. Og meðal annars
er talað um tékkneska tveggja
sæta flugu úr málmi — og
yrði hún þá sú fyrsta þeirrar
tegundar hérlendis. Ég veit
ekki hvað verður.
—• Einhver flugsýnirtg í und-
irbúningi?
— I sumar?
— Já.
—■ Jú, það held ég. Alla
vega eru tvö stórafmæli á
þessu ári — og ég geri. ráð
fyrir að reynt verði að minn-
ast þeirra á viðeigandi hátt —
þrjátíu árá afmæli Flugmála-
félagsins óg jafnstórt afmæli
Svifflugfélagsins.
— Flugsýning í Reykjavík?
— Já, svo hefur mér heyizt
— í ágúst. Og vonandi verð-
ur eitthvað úr ráðagerðum um
flugsýningu á Sandskeiði.
Fyrstu flugsýningarnar fóru
fram á Sandskeiði fyrir stríð
og vöktu þær mikla athygli —
á árunum 1938 og 39. Ég ef-
ast ekki um að fólk mundi
fjölmenna þangað, ef við yrð-
um heppnir með veður. Ékki
vantar bilana. Bílastæðin yrðu
sennilega helzta vandamálið,
en það verður væntanlega
leyst.
— Hvað heitir formaður
Svifflugfélagsins?
— Þórmundur Sigurbjarn-
arson.
— Við tölum við hann, þeg-
ar að sýningunni kemur.
Húmanismi
Framhald af bls. 4.
hugtök, og þá fyrst og fremst dýrin, eða
eiris ög stendur í 20. versi II. kapítula
I. Mósebókar: „Og maðurinn gaf nafn
öllum fénaðinum og fuglum loftsins og
öllum dýrum merkurinnar". Menningin
var,.gróðursett með þessum nafngiftum
og töluðu orði sem miðlunartæki þekk-
ingar og reynslu.
Eðli manrisbarnsins mótaðist fýrir
þúsundum alda síðan af þessu langa
vaxtarskeiði undir vernd og ástríki for-
eldranna og af nægum tima til þrosk-
andi leiks. Hann er að sjálfsögðu. að
nokkru leyti stæling á atferli þeirra, sem
eldri eru, en einnig sjálfstætt starf við
listsköpun, ýmiskonar tilraunir og dag-
drauma. En jafnvel í þéssum Edens-
garði sumarlandsins eru ýmsar hættur
á vegi bamanna, — vatnsföll, rándýr
og eitruð blóm eða ávextir, sem for-
ejd.rarnir taka þeim vara fyrir. Sumir
lilutir. eða athafnir verða tabú — fá á
sig bannhelgi. Hugmyndir skapast um
það, hvað sé leyfilegt og hvað sé óJeyfi-
legt, um rétt og rangt. Samvizkan
verður til.
Allt er þetta leið að fjarlægu marki
og hún er enn ekki á enda runnin. Og
maðurinn. einn allra skepna hefur með-
vitund um. fjarlægan tilgang með lífi
sínu og það er táknað með því, að Guð
blés lifsanda í nasir hans. Leið opin-
berunarinnar er hafin. I kvöldsvala
aldingarðsins að lokinni fóðuröflun og
leik . heyrir maðurinn rödd Guðs og
biyggðast sín, því að hann er nakinn
eins og dýrin, en hafur þó etið af skiln-
ingstrénu góðs og ills, og fengið við það
bæfileikann og skylduna til að velja
og hafna. Það valfrélsi er ætlað honum
ti1 blessunar, en er honum bölvun í bili,
því að með því er hann hrakinn úr
Eden þess áhyggjuleysis, sem dýrin ein
njóta, fylgjandi blindum eðlishvötum
án samvizku um það, hvað sé rétt eða
rangt. Með syndafallinu eða meðvitund-
inni um ófultkomleika sinn og sektar-
tiifinningu vegna vanrækslu síns örlaga-
þrungna hlutverks stígur hann hið stóra
skref milli apamanns og ábyrgs manns.
Hann einn er skapaður í mynd Skapar-
ans og gegnir héðan í frá sköpunarverki
sinria®- eigin framtíðari Fósturlífi hans
í Eden dýranna er lokið, hann er fædd-
ur inn í nýjan heim og kerúb með sveip-
andi sverði ver honum bakaleið. A braut
frámiþróunarinnar verður aldrei fetað
aftur á baik .í farna slóð.
Þetta er hin anþrópólógiska eða mann-
fiæðilega sköpnarsaga, eíns og hún er
sögð í .öðrum kapítula I. Mósebókar og
tekur við af þeirri kosmológisku eða
heimssögulega í fyrsta kapítulanum.
Báðar eru þær settar fram með þeim
einfaldleik stórra drátta, s.em einkennir
óbr'otgjarná list, og af því innsæi, sem
aðeins er hægt að tákna með opinberun.
Stór'fenglegra drama hefur aldrei verið
skráð,- þótt andlausir filistear hafi ekki
séð annað í því en þurran annál sögu-
legra staðreynda eða hjátrú heimskra
og frumstæðra þjóða.,
ADAM.
A. dam er hið hebreska heiti
mannsins. Ef til vill þýðir það hinn
jarðborni, en orðið tákriar bæði mann
sem sérstakan einstakling og manninn
sem liffræðilega tegund, eins óg þáð
hefur verið notað hér (Wm. E. Addis:
A Catholic Dictionary, 1950). Niðjar hins
fyrsta Adams breiddust út um alla jörð.
Leifar þeirra hafa fundist frá Suður-
Afríku til jökulmarka Evrópu, frá Kína
tii Bretlandseyja. Margar þessara ætt-
greina hafa ekki náð langt á erfiðri leið
þróunarinnar, heldur lent á villigötum
og dáið út. Slíkt er lögmál lífsins og
því verður ekki breytt með neinum
fundarsamiþykktum eða orðagjálfri.
Sérinilega hefur 'aðeins ein gréinin náð
því að verða homo sapiens, ef til vill
hefur þar líka verið um kynblöndun að
ræða. Að áliti ýmissa mannfræðinga
hefur slík kynblöndun við Neanderdæli
étt sér stað í Palestínu — til þess benda
beinafundir á Karmelfjalli — óg ef til
vill lifir endurminning um hana í 6. kap.
I. Mósebókar, þar sem sagt er að synir
Guðs hafi kvænst dætrum mannanna.
En allar áttu þessar ættgreinar einhvers
konar menningu, hugmyndir, hugvit og
nokkra verkkunnáttu, þótt tækin væru
aðeins úr steini .Sú steinöld hefur staðið
í nokkur hundi-uð þúsundir ára og allt
ftam á okkar daga, að því er suma kyn-
fiokka varðar. Svo langur er ómagaháls
mannskepnunnar. Hjá sumum nútíma-
mönnum á steinaldarstigi er þó um
menningu í afturför að ræða.
Mannfræðingar geta ráðið aldur
ýmissa þessara ættfiokka Og rakið feril
þeirra eftir steináhöldum þeirra, því að
þau eru af mismunandi gerð. Þeir áttu
sér sínar vísindagreinar, þótt meðvituð
visindaleg hugsun hefði enn ekki náð að
Framhald á' bls. 15.
10 LESBÓK. MORGUNBLAÐSINS-
1. maí 1966