Lesbók Morgunblaðsins - 22.05.1966, Page 2
Einar Benediktsson,
Jyiy/ Lkv-V'r
REYKJAVÍK
Þjóðminningardaginn 1897
Þar fornar súlur flutu á land
við fjarðarsund og eyjaband
þeir reistu Reykjavík.
Hún óx um tíu alda bil,
naut alls, sem þjóðin hafði til,
varð landsins högum lík; —-
og þó vor höfn sé opin enn
og ennþá vanti knerri og menn,
við vonum fast hún vaxi senn
og verði stór og rík.
En þó við Flóann byggðist borg
með breiða vegi og fögur torg
og gnægð af öllum auð —
ef þjóðin gleymdi sjálfri sér
og svip þeim týndi er hún ber;
er betra að vanta brauð.
— Þeir segja að hér sé hættan mest
og hérna þróist frónskan verst,
og útlend tízka temjist flest
og tungan sé í nauð.
Nei, þegar öldin aldna flýr
og andi af hafi kemur nýr
að vekja land og lýð,
er víkka tún og breikka ból
og betri daga morgunsól
skín hátt um strönd og hlíð,
skal sjást, að bylgjan brotnar hér.
— Við byggjum nýja sveit og ver,
en munum vel, hvað íslenzkt er,
um alla vora tíð.
2 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS-
22. maí 1966