Lesbók Morgunblaðsins - 22.05.1966, Blaðsíða 3
GENGIDIIM
REYKJAVIK1983
Eftir Valdimar Kristinsson
Aðalskipulag Reykjavíkur
1962-83 er að dómi fróðra
manna eitt ýtarlegasta og yfirgrips-
mesta skipulag, sem gert hefur ver-
ið af borgum sambærilegum við
Reykjavík, og einnig þótt borið væri
saman við mun stærri borgir. Þetta
skipulag markar stefnuna í upp-
byggingu höfuðborgarinnar og ná-
grannabyggðanna tvo áratugi fram
í tímann og mim reyndar hafa áhrif
um ókomnar aldir.
Fróðlegt verður að sjá, hvemig
Reykjavík lítur út árið 1983. Vegna
aðalskipulagsinS er á ýmsan hátt
hægt að gera sér grein fyrir þvú
Af einstökum þáttum skipulagsins
mun gangstígakerfið, er liggja mun
um allt borgarsvæðið, vekja einna
mesta athygli. Fullkomið hrað-
brautakerfi hefur verið skipulagt
fyrir bílaumferðina, en manninum,
sem viill um stundarsakir hvíla sig
á vélamenningunni, hefur ekki ver-
ið gleymt. Þvert á móti mun hann
geta farið um öll hverfi án þess
að verða fyrir óþægindum af um-
ferðinni.
Við skulum nú fylgjast með
víðförlum íslendingi, er
kalla mætti Víðförla, á gönguferð
hans um borgina árið 1983. Víð-
förli hafði farið frá íslandi 1966 og
var nú kominn aftur heim eftir 17
ára útivist. Hann hafði farið frá
Bagdad til Brazilíu og Alaska til
Antarktíku og lét sér því ekki
bregða við drjúga gönguferð.
★
að var á sólbjörtum sunnu-
degi síðla sumars 1983, að
Víðförli ætlaði að kynna sér yfir-
bragð Reykjavíkur, eftir því sem
við yrði komið á einum degi. Hann
ákvað að nota gangstígakerfið, sem
teygði sig um alla borgina. Bæði var
Myndir teiknabi Halldór Pétursson
22. mai 1966
LESBOK MORGUNBLAÐSINS 3