Lesbók Morgunblaðsins - 04.09.1966, Blaðsíða 4

Lesbók Morgunblaðsins - 04.09.1966, Blaðsíða 4
Eftir Russell Baker: JAMES BOIMD - SKEGGLAUS hundrað vindlinga á dag, drekkur sterka drykki í pottatali á hverri viku og eyðir bágbornu kaupi sínu í hversdagslegar miðstéttarskemmt- anir — bara af því, að hin sorglega meðvitund um eigin dauðleik hefur sannfært hann um, að það eina skynsamlega sé að láta hverjum degi nægja sína þjáningu. Sem persóna, í heimspekilegum skilningi, er hann viðurkenndur að vera hversdagslegur, jafnvel grófur en hversdagsleiki hans vekur samúð hjá milljónum misheppnaðra karl- manna og þegar þessi hversdagsleiki sem kvenfólk er annars vegar. Hvaða heimsmaður mundi bera við að fara að eiga við kvenmann í gufubaði, eða í kafi með súrefnisgeymi utan á sér og sundfitjar á öllum limum? eins og Bond er látinn gera þarna? Eina innanhússmót hans við veraldar vana konu, endar með mestu skömm fyrir hann. Það er jafnaugljóst á- horfandanum og hluteigandi konu, að þessi Bond er ekki það karldýr, sem kemur fyrir í dagdraumum heldur bara kjaftfor skólastrákur, sem lítið getur annað en belgja sig í gufuböðum og með súrefnisgeyma. Sean Connery sem James Bond. A ðalgallinn á Thunderball“ nýjustu æsimyndinni um James Bond kemur fram í myndinni miðri. Þegar kvikmyndahúsgesturinn hefur í þrjá stimdarfjórðunga leitað að einhverri pesónu til að verða hrifinn af, finnur hann allt í einu, að öll samúð hans er alls ekki með 007, heldur með óbreyttu dólgunum, sem eru bara leiguþý glæpahringsins. Þessir vesælu verkamenn í vín- garði glæpanna, íklæddir hálsháum peysum og gallabuxum, virðast þræla 18 stunda vinnudag við einhverja hættulegustu vinnu, sem hægt er að hugsa sér og glæpahringurinn fer með þá eins og engin vinnulöggjöf væri tiL Glæpahringurinn Þessi glæpahringur er allur með mestu ólíkindum og hlýtur að hafa starfslið eitthvað svipað og General Motors. I „Thunderball" er geysimik- ill vinnukraftur vistaður hjá glæpa- foringja, sem Largo er nefndur, og ætlar að nota nokkrar kjarnorku- sprengjur, sem hann hefur rænt, til að leggja Miami í rúst, nema aðeins að brezka stjórnin vilji hósta upp 250 milljónum dala. Það sem seint og síðar meir hristir hugann úr dásvefninum, er það hvern ig Largo fer með þessar vinnu- kindur sínar. Einum þrælnum er kastað í hákarlagryfju fyrir að hafa látið sér mistakast eitthvert ómerki- legt verk. Annar fer fyrir hákarlana fyrir að hafa gert skyldu sína. Þessi veslingur er að gera atlögu að Bond í gryfjunni, þegar Largo telur það munu verða áhrifameira að hleypa hákörlunum að og láta þá éta bæði Bond og sinn eiginn trygga liðsmann. Grimmdin í Largo sleppir sér al- gjörlega þegar hann yfirgefur allt kafsundsliðið sitt og lætur banda- ríska froskmenn kála því, en Banda- ríkjaflotann sprengja upp þá fáu, sem sluppu frá froskmönnunum. Áhorfandinn fyllist áhuga. Hvaða kaup greiðir óaldaflokkurinn þess- um mönnum? Hversvegna gera þeir sér svona vinnuskilyrði aS góðu? Hvernig getur óaldaflokkurinn haldið flokki sínum saman, með þessari atvinnutryggingu? En vitanlega eru þetta alveg öfug viðbrögð. Sá, sem við ættum að eyða öllum áhuga okkar á, er James Bond — en það gerum við bara ekki í „Thunderbair erum við að svipast um eftir Bond, en hann er þar bara ekki. Sean Connery er þar að vísu og er alltaf að látast vera Bond, en fólkið, sem þykist þekkja Bond, er ekki lengi að sjá gegn um þá blekk ingu. Bond er horfinn en í stað hans er kominn spriklandi strákur, sem gæti vel verið Jack Armstrong, al- ameríski unglingurinn, sem er að leika sér að því að vera karlmaður. Sá Bond, sem töfrar milljónir upp- gefinna manna, kann að vera ofur- lítið barnalegur, en hann er enginn upp úr sér vaxinn Jack Armstrong. Hinn raunverulegi Bond reykir er kryddaður dagdraumum og flott- ræfilshætti innan um kvenfólk og glæpahyski, verður hann viðkunnan legur ræfill. En sá Bond, sem sést í „Thunder- ball“, er ekki karlmaður, heldur stráklingur. Hann hefur engan tíma til að reykja sígarettur eða skella í sig einum gráum, og mundi senni- lega afþakka hvorutveggja, ef það stæði til boða. Hann er alltof mikill gaggó-íþróttagarpur, sem er að æfa sig að synda með hinum strákunum. Eftirbekkjahetja. f stað þess að panta sér Escoffier- mat í veitingahúsum og senda yfir- kokkinum sérstök fyrirmæli — en slíkt leikatriði vakti jafnan almenna ánægju hjá karlmönnum, sem voru feimnir í veitingahúsum — þá á- kveður Bond nú að fá sér bara stjrrjuhrogn að borða, en það er einmitt að fyrirmynd skólastráks sem fer út að borða fyrsta kvöldið eftir að hann er orðinn efribekkingur. Og verst er þó af öllu, að þessi Bond er hreinasti hreggviglópur þar Draumurinn út um þúfur. Höfundar „Thunderball1 hafa unnið það afrek sem hvorugum glæpa- hringnum tókst. Þeir hafa kálað James Bond. Og þetta var skamm arlegt hrekkjabragð við alla þá mis- heppnuðu miðaldramenn sem eru farnir að gera sér ljóst, að þeim verður hvergi neitt ágengt nema í dagdraumum sínum. Þetta, að ganga af karlmennsku Bonds dauðri, hefur sennilega verið viljaverk. Eða til hvers annars hafa þeir haft hann neðansjávar og undir allskyns fánýtu glingri og dinglum- dangli? „Thunderball“ er ekki ætlað að þóknast karlmönnum í heiminum heldur þessum stóra og ábatavæn- lega múgi skegglausra snáða, sem eiga sér engra drauma um paradís nema í sambandi við helgardvöl í ónytjungahópi. Það er engin furða þótt hinir kúg- uðu þrælar glæpahringsins séu eina fólkið, sem þarna er nokkurs virði, eða gaumur gefandi. (New York Times) — GAMALL MAÐUR Framhald af bls. 3 „Já“. „Þá fljúga þær burt“. „Já, það gera þær áreiðanlega. En hin. Það er betra að hugsa ekki um hin“, sagði hann. „Ef þú hefur hvílt þig núna, ættirðu a<þ halda áfram“, sagði ég hvetjandi. .letattu upp og reyndu að ganga núna‘% „Þakka þér fyrir“, sagði hann og stóð á fætur, riðaði nokkuð og settist síðan aftur í rykið. „Ég sá aðeins um dýrin“, sagði hann sljólega, en ekki lengur við mig. „Ég sá aðeins um dýrin“. Það var ekki hægt að gera neitt fyrir hann. Það var páskadagur og fasistar sóttu fram til Ebro. Það var lágskýjað og því voru flugvélar þeirra ekki uppi, Þetta og sú staðreynd að kettir sjá um sig var öll sú gæfa sem þessi gamli maður myndi nokkru sinni njóta. Þýð. Eggert Sigfússon. - HÆSTU TRÉ Framhald af bls. 1 4000 ár. Aftur á móti er mestur aldur strandtrésins, sem ákveðinn hefur verið 2200 ár. Hinsvegar er strandtréð hæsta tré heims — og sem tegund hærra en stórtréð í Sierra — að meðaltali 50 fetum hærra. ^að er náið samband með hæstu trjám og stærstu úthöfum heims. Frá syðsta suðvesturhorni Oregon til Santa Lucia-fjallanna sunnan Carmei nær rauðviðurinn 450 mílna vegalengd i þröngu belti, að meðaltali 20 mílna breiðu. Sequoia Sempervirens sveigir aldrei langt frá áhrifum hafþokunnar. Sumstaðar vex hún alveg fram á sjávar bakkann við Kyrrahafið stundum sveigir hún 30—40 mílur inn í landið, þar eða hún fylgir strandfjallgörðunum. Dr. Stone áætlar, að meira en hálfrar annarrar milljóna ekra lands af rauð- viði hafi einu sinni þakið hæðirnar og dalina við strönd Norður-Kalíforníu. En vitanlega var það áður en skógar- högg hófst. Um 1918 þegar hópur merkra vísinda- aianna gerði með sér félagsskap til verndunar rauðviðinum, var búið að hcggva um það bil þriðjung stærstu trjánna. Þessir náttúruverndarar fengu aðstoð frá allri þjóðinni og fyrir til- verknað þeirra hefur 86.723 ekrum verið bjargað og friðað til gagns og ánægju. Fimm helztu rauðviðargirðingarnar eru í Santa Crenz-fjöllunum, Humb- oldt Redwood State Park, Prairie Red- wood State Park, Del Norte Coast Red- woods og Jedediah Smith Redwood State Park í Del Norte héraðinu. Hver þessara skógargirðinga hefur sín einkenni. Frægastur er líklega Humboldtgarðurínn með hinum óvið- jafnanlega tvöfalda þjóðvegi sínum. Þetta er viðeigandi kallað „Risabraut- in“, milli hinna himingnæfandi trjáa, og bezt er að aka hana „hægt og há- tíðlega" í opnum bíl. 4 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 28. ágúst 1966

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.