Lesbók Morgunblaðsins - 04.09.1966, Blaðsíða 8
H ávaxinn, sköllóttur ferðamaður
Kom í leigubíl til spænsku borgarinnar
Badajoz, sem er rétt við landamæri
Portúgals, og hann haltraði þegar hann
kom inn í Hótel Simancas og bað um
tvö beztu herbergin. Hann skrifaði í
gestabókina: Lorenzo Ibanez kaupsýslu-
maður, og hnellin samferðakona hans
kvaðst heita frú Arajarir Campos, einka
ritari. Um kvöldið fóru hjúin út að
ganga — karlmaðurinn berhöfðaður
í febrúarkuldanum. Fólk í borginni tók
eítir því að hann var að útliti helmingi
eldri en hin fjörlega, svarthærða lags-
kcna hans, en annars var gesturinn
ekkert einkennilegur að neinu leyti.
Næsta morgun sendu hjúin póstkort
til kunningja sinna. („Allt gengur vel
— hittumst vonandi bráðum). en á
meðan komu tveir bílar handan yfir
landamærin frá Fortúgal, gegnum varð-
stöð, sem var 25 mílum sunnar. Einn
fjögurra ferðamannanna var Felipe Tav
arses, embættismaður í leynilögreglu
Portúgals PIDE), sem kvaðst vera að
fara suður til Sevilla í fríinu sínu.
Landamæraverðirnir voru vingjarn-
legir, er þeir skrásettu vélanúmer Tav-
ares í græna bílnum og svo í hvíta bíl-
num, sem félagi hans var í. En svo
vndarlega vildi til, að bílarnir voru
ekki fyrr komnir yfir landamærin en
þeir stefndu í norður — í áttina til
Badajoz en alls ekki til Sevilla.
Þegar sköllótti maðurinn og lagskona
hans höfðu sett bréfin sín í póst í Bada-
joz — kortin voru dagsett 13. febrúar
■— gengu þau aftur til gistihúss síns, en
sú leið var nokkrar húsalengdir. Meðan
þau sátu að hádegisverði, koma tveir
menn, sem þarna voru einnig gestir, að
borðinu þeirra. Þeir sögðu Ibanez, að
„fundartímanum" hefði verið flýtt um
Humberto Delgado.
lega andrúmsloftið í Washington hafi
komið honum til að yfirgefa Salazar.
Að minnsta kosti auglýsti hann sig sem
gagnframbjóðanda í kosningunum 1958
Og stefnuskráin var ósköp einföld:
Delgado bauðst til að kollvarpa „gömlu
dansmeynni“ (Salazar), yrði hann kos-
inn.
En þetta var fyrirfram vonlaust verk
Kundruðum saman voru atkvæðasmalar
hans teknir fastir. Enginn fulltrúi
Delgados fékk að vera við atkvæða-
talninguna. Þegar hann fékk fjórða
hluta greiddra atkvæða, var það talið
giæsilegur sigur.
Nú var Portúgal ekkert heppi-
legur staður lengur fyrir Delgado, og
hann flaug til Brasilíu, en skildi eftir
konu sína og tvö uppkomin börn, og
var sonurinn foringi í hernum. Hann
undirbjó síðan heimkomu sína, meira
ai kappi en forsjá, og stjórnaði þá
tóku portúgalska skemmtiferðaskips-
ins Santa Maria. Þetta sjórán vakti
heimsathygli í tíu daga, árið 1961, en
var annars lítið annað en auglýsinga-
brella fyrir Delgado, en hræðileg
reynsla fyrir fanþegana.
Næsta áætlun hershöfðingjans var
tímasett í desember 1961, og leiddi enn
í liós takmarkanir hans sem byltingar-
manns. Hann gerði samsæri við bylt-
ingarsinnaða herforingja í hinum geysi-
stóru herbúðum í Beja, sem er borg í
Suður-Portúgal, og bjóst til að taka
vöidin, jafnskjótt sem þeir hefðu ráð
varðliðsins í hendi sér. Meðan hann
beið í Marokko eftir að uppreisnin
hæfist bjó hann sér út vandlega gerðan
duiarbúning, fyrir heimförina til Portú
gai — hann lét sér vaxa mikið yfir-
skegg og litaði það svart, rakaði koll-
inn, sem var tekinn að verða sköliótt-
Sanche de
Gramont:
Delgado hershöföingja?
Hver myrti
Enginn veit Jboð, en Salazer forsætisráðherra
hafði bæði ástæðu til þess og tök á þvi
ema klukkustund. Hann flýtti sér að
ljúka matnum og fór síðan með mönn
unura í hvítum Lincolnbíl, sem þeir
voru í. Klukkan 5,30 kom Lincolninn
eftur — með engan Ibanez innanborðs
— og mennirnir tveir fóru nú burt með
stúlkuna hans. Klukkan níu um kvöldið
komu þeir aftur stúlkulausir, og tóku
sig upp frá gistihúsinu.
\j orenzo Ibanez kom aldrei framar
í Hótel Simancas. Lincolnbíllinn fannst
yfirgefinn en blóð og hárflyksur voru
á aftursætinu. Það var ekki fyrr en
tveim mánuðum síðar, eða 24. apríl, að
tveir unglingsdrengir tóku eftir tveim
ílöngum blettum þar sem jörðin hafði
verið hreifð, í iundi einum, rétt við ná-
grannabæinn, Villanueeva de Fresno.
Og mannshöfuð stóð upp úr moldinni.
Grunnu grafirnar, sem höfðu verið
þaktar kalki höfðu inni að halda lik
af karlmanni á sextugsaldri og ungri
konu. Líklega hefði enginn gefið þessu
gaum, ef rétta nafn mannsins hefði
verið Lorenzo Ibanez. En það var það
bara ekki. Nafn hans var Humberto
Delgado, hershöfðingi, 59 ára, misheppn
aður frambjóðandi til forseta í Portúgal
og aðalmaðurinn í andstöðunni gegn ein
ræðisherranum, Antonio de Oliveira
Salazar.
Delgado var nú ekki neitt sériega
aðlaðandi sem byltingarfrömuður. Hann
var ósvífinn auglýsingasnápur, sem
hafði gaman af að sýna fölsuð vega-
bréí og fáránlega dularbúninga, ef blaða
inenn áttu viðtal við hann, og skemmta
þeim með hverskyns reifarasögum í
James Bond-stíl. Og sjálfur var hann
taisverður einræðisherra og hrokinn í
honum fjarlægði frá honum flesta sam-
verkamenn hans. En jafnframt var hann
gæddur óvenjulegu persónuhugrekki og
hann leið undir þeirri áráttu, að vilja
koma aftur til lands síns í broddi fylk-
ingar fyrir uppreisnarher, og þetta
Iiefði ef til vill getað kveikt í kraumandi
óánægju portúgölsku þjóðarinnar og
gert Salazarstjórninni helvíti heitt.
Og Delgado dó við þessar tilraunir
sínar. Enda þótt hann væri mishepp-
aður byltingarmaður, gæti dauði hans
verið lærdómsríkur.
Og stjórn Salazars er ekki síður
lærdómsrík. í meira en 30 ár hefur
hann haldið landi sínu í járngreipum.
Útvaldir forsetaframbjóðendur hans eru
vndantekningarlaust kosnir, og lögreglu
ofsóknir hindra alla virka pólitíska and-
slöðu. Og meðan stjórnir Bretlands og
Frakkiands stjórnuðu ríkjum sínum,
sem var óðum að ganga á hélt Salazar
í hin stóru landsvæði í Afríku — Portú
gal litla er nú stærsta nýlenduveldi
heims. Oft kann að vera, að Bandaríkin
hafi komizt í vandræði með þennan
trygga bandamann sinn í NATO, en
engin opinber fordæming á honum hefur
eni' komið frá Washington, — ef til
vili vegna þess að afskiptaleysi af högum
fcanöamanna, er klókasta stefnan. Hvað
sem öllu líður, þarf Salazar ekkert að
óttast vanþóknun Washington, hvernig
sem veltist, því að leynilögreglubáknið
hans getur einangrað hann frá allri
hættu, utanaðkomandi eða innan.
PIDE (Aliþjóðalögreglan) til-
varnar ríkinu) er líklega samvizku-
lausasta og harðskeyttasta lögreglulið,
sem til er í vestrænum löndum, nú á
tímum. Aðal-ætlunarverk þess er að
bæia niður pólitíska andstöðu og undan
farið hefur liðið hvað eftir annað farið
yfir spænsku landamærin til þess að
ná í andstæðinga, miklu ómerkari en
Delgado, en alltaf í samvinnu við
spænsku lögreglunna. Eftir mishepp-
naða tilraun 1962, var einn flóttamaður
Joachim Pedro, gripinn á götu í spænska
hafnarbænum Algeciras og dreginn inn
í PIDE-bíl en spænskir lögreglumenn
horfðu á hiæjandi. Við réttarhald ný-
lega spurði einn verjandi fulltrúa PIDE,
hvað hann mundi gera ef hann sæi
mEnr. vera að skrifa „Friður á jörðu
og veiþóknun yfir mönnunum" á hús-
vcgg í Lissabon, og fulltrúinn svaraði:
„Auðvitað mundi ég taka hann fastan“
Humberto Delgado átti glæsilegan
feril að baki. Hann varð hershöfðingi
32 ára að aldri, flugmálastjóri, hermála-
ráðunautur i Washington, fulltrúi Portú-
gals í NATO — og glæsiferill og afrek
Deigados komu honum í Salazarstjórn-
ir.a og gerðu hann að vinsælli þjóðar-
hetju. Vinir hans segja, að lýðræðis-
ur og setti upp hornspangargleraugu.
Hann gerði sér upp helti og gekk um
með stálblað í hægri skónum, til þess
að minna sig á að ganga ekki eðlilega.
Delgado lagði síðan af stað undir
tíesemberlok, ásamt hinni tryggu Cam-
pos, sem lézt vera bróðurdóttir hans
og flutti hershöfðingjabúning hans undir
kápunni sinni. Ráðagerð hans var sú
að jafnskjótt sem hann væri kominn
inn í herbúðirnar, ætlaði hann að fara
í einkenningsbúninginn setja upp heið-
urspeningana sína og lýsa því yfir, að
hann væri frelsari landsins.
Uppreisnarmennirnir hófu atlöguna í
dögun og byrjuðu á því að skjóta her-
búðirnar opnar. En Delgado kom ekki
til Beja fyrr en nokkrum klukkustund-
um eftir að uppreisnin var farin út um
þúfur, forsprakkinn særður og flestir
foringjarnir hans teknir til fanga. En
duibúningur Delgado gerði sitt gagn
við meira en tólf varðstöðvar, en hann
flúði frá Portúgal með frú Campos við
hiið sér sífellt berandi einkennisbún-
iuginn.
N æstu tvö árin var hershöfðinginn
í Brasilíu og reyndi að safna að sér
hjáiparliði. í janúar 1964 hafði hann
ásett. sér að finna einhverja bækistöð
nálægt Portúgal, en fékk afsvar hjá
þeim Evrópulöndum, sem hann leitaði
hælis í, en sótti þá leynifund sem
kommúnistar stóðu fyrir í Prag, en
þátttakendur voru úr andstöðuflokk-
unum portúgölsku. Hann var kosinn
forseti föðurlandsvina og Þjóðfrelsis-
liðsins, á svipaðan hátt og frægur knatt
Framhald á bls. 10
8 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
28. ágúst 1966