Lesbók Morgunblaðsins - 25.09.1966, Qupperneq 4
M &i' •'- ■ ■■
fi^' 'jffö.t-■+''J33!&&6^^H^tfáfS!\~.\s2jiÍk 4 .,. -.;?4tó*«í^r-si«c.v
Rússneska leynilögreglan ræður
sennilega yfir víðtækasta njósnaneti
heims. í Moskvu eru tvær miðstöðvar
— önnur hernaðarleg en hin borg-
araleg, og stjórna um 15.000 rúss-
neskum njósnurum, sem eru dreifð-
ir um allan hnöttinn. Hinar tvær
miðstöðvar, sem ganga undir nafn-
inu KGB (sú borgaralega) og GRU
(sú hernaðarlega) hafa eina 3000 cil
5000 embættismenn, sem vinna úr
skýrslunum, sem berast frá þessum
ósýnilega her. Hjá báðum miðstöðv-
unum hafa stjórnendurnir og helztu
njósnararnir einhverja herforingja-
tign. Ekkert leppríkjana getur sett
upp njósnanet í vestlægari löndum
Eftir Odd Bergfald
nema með leyfi yfirstjórnar rúss-
nesku njósnanna.
I Ungverjalandi, Rúmeníu, Búl-
garíu, Póllandi og Austur-Þýzkalandi
hafa menn komið sér upp njósnaneti
á sama hátt og í Sovétríkjunum, en í
öllum þessum löndum situr einhver
rússneskur hershöfðingi og hefur um-
sjón með njósnastarfsemi leppríkjanna.
Ýmsir strokumenn úr njósnaþjónustu
Sovétríkjanna hafa, eftir að þeir kusu
frelsið, skýrt frá uppbyggingu starfsem-
innar. Til viðbótar sínum eigin njósn-
urum hafa Sovétríkin upplýsingar frá
allri njósnastarfsemi leppríkjanna og
þegar vitað er, að Austur-Þýzkaland
eitt saman hefur 16.000 njósnara um alla
Vestur-Evrópu, verður mönnum ljóst,
hvílíkan feikna her ósýnilegra her-
manna Sovétríkin hafa til umráða.
Hvernig eru kommúnista-njósnarar
ráðnir? Hinir beztu peirra eru auðvitað
sannfærðir kommúnistar, sem hafa til
að bera vissa eiginleika og eru fúsir til
að fórna sér algjörlega fyrir komm-
únismann. En í kommúnistaríkjunum
hefur ekki tekizt að ráða nógu marga
slíka, og þess vegna hafa yfirvöldin í
Sovétríkjunum og leppríkjunum beitt
nauðung við mikinn hóp njósnara. Þeir,
sem standa fyrir ráðmngunum, hafa
fengið sérstaka þjálfun. Hlutverk þeirra
er að finna menn, sem geta gefið upp-
lýsingar gagnlegar hinum kommúniska
heimi. Þetta eru fyrst og fremst her-
menn, verkfræðingar, efnafræðingar,
eðlisfræðingar og aðrir, er hafa kunn-
áttu, sem getur orðið öryggi lands þeirra
að liði. Yfir slíkum mönnum er vand-
lega vakað, til þess að komast að veik-
leikum þeirra, ef nokkrir eru. Komi það
í ljós, að hlutaðeigandi sé t.d. veikur
gagnvart áfengi, kvenfólki eða áhættu-
spili, nota menn sér þessa vitneskju, og
með því að beita þvingunum, er hægt
að fá manninn til að gerast njósnari.
Sé einhver maður í opinberri þjónustu
kynvillingur, getur það orðið ótrúlega
auðvelt að ánetja þá.
Þegar njósnari er tekinn, neitar
Moskva jafnan að kannast við hann.
Á síðustu árum eru dæmi þess, að Sov-
étríkin hafi kannazt við njósnara. En
þá var líka um að ræða einhvern allra-
færasta njósnara síðari tíma, hinn 63
ára gamla KGB-ofursta, Rudolf Ivano-
vitsj Abel, sem árið 1957 var dæmdur
í 30 ára refsivist, en var í febrúar 1962
iátinn í skiptum íyrir hmn ameríska
U-2 flugmann, Francis Gary Fowers.
Eins og kunnugt er, var flugmaðurinn
dæmdur í tíu ára fangeisi fyrir njósnir
eftir að hann hafði, 1. maí 1960, verið
skotinn niður í flugvél sinni í nágrenni
Sverdlovsks, fyrir austan Úralfjöll.
Nota sér skyldmenni
austantjalds
f^ússar og Austur-Þjóðverjar hafa
nú um margra ára skeið notað nauð-
ungarráðstafanir til að útvega sér njosn
ara í Vestur-Þýzkalandi. Fimmti hver
Vestur-Þjóðverji og þriðji hver íbúi
Vestur-Berlinar á einhvern nákominn
austan tjalds. Hinir síðarnefndu eru
dæmdur í ítu ára fangelsi fyrir njósnir
innilokaðir og hafa ekki nema örsjald-
an samband við hinn frjálsfi heim.
Öðru hverju fá flóttamennirnir, sem
vestantjalds búa, bréf frá skyldmenni
austanljalds. Þar segir. að sá, sem aust
antjalds búi, eigi bágt. Ör þessu megi
bæta, ef skyldmennið, sem vestantjalds
býr, vilji aðeins vers „samvinnu-
fúst“. Oft eru siík bréf rituð af
skyldmenninu fyrir austan sjálfu, en
þó undir nauðung, en oftast eru þau
samin af ráðningarstjórum í SSD
( Staatsicherheitsdienst).
Hans Otto var 23 ára að aldri^og lagði
stund á verkfræði í Dresden. A náms-
árunum hitti liann unga stúlku, Antje,
sem var dóttir austurþýzks lækni. Hann
varð ástfanginn af Antje og þau trú-
lofuðust. Skömmu áður en múrinn var
reistur, hinn 13. ágúst 1961, ákváðu for-
eldrar Antje að flytjast vestur, og þeim
lókst að komast bangað öllum, en Hans
Otto varð eftir í Dresden. Antje skrif-
aði honum úr frelsinu í Vestur-Berlín
og hvatti hann til að flýja.
1 öndverðum septembermánuði 1961,
var Hans Otto kominn til Austur-Berl-
ínar og reyndi síðan að komast yfir
múrinn, en var handtekinn. Þegar viku
seinna var hann dreginn fyrir alþýðu-
dómstól og dæmdur í tíu mánaða fang-
elsi. Jafnframt var honum tilkynnt, að
hann væri rekinn úr háskólanum, og
fengi aldrei tækifæri til að halda áfram
námi. Eftir að hafa afplánað refsing-
una, fékk hann atvinnu sem aðstoðar-
maður hjá ljósameistaranum í Deutsc-
hes Theater í Austur-Berlín.
Nokkkru seinna eignaðist hann góðan
kunningja, Mannfred, sem hafði einnig
gert misheppnaða tilraun til að flýja,
en hafði sloppið við að verða hand-
tekinn. Hann hætti við tilraunina áðu-
Framhald á bls. 14.
4 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
25. september 1966
✓
►