Lesbók Morgunblaðsins - 22.01.1967, Side 14

Lesbók Morgunblaðsins - 22.01.1967, Side 14
og fylgir henni ávallt einhver heiðurs- gjöf eöa þá peningaupphaeð. Ef nautabaninn hefir staðið sig vel, fser hann sem einskonar heiðurstákn annað eyra nautsins, og fer þetta venju- lega eftir kröfuna áhorfenda. Ef álitið er að hann hafi sýnt afburða leikni fær hann bæði eyrun. En ef atið hefir verið svo til einstætt að verðleikum, fær hann bæði eyrun og halann. — Meðan hann er ákaft hylltur, gengur að nautinu svokallaður ,puntillero“, aðstoðarmaður vopnaður stuttum hnífi, og sker sundur mænu nautsins, við hnakkagrófina, og síðan eru dráttarhestar látnir draga hræið burt af svæðinu og hafnar það hjá slátraranum, sem bútar það sundur; ýmist er fátækum gefið kjötið eða það er selt strax á staðnum. Að lokum koma svonefndir „chulos“, raka yfir sandinn með hrífum sínum, yfir blóð og ójöfn- ur sem rótazt hafa upp við atið; næsta nauti er hleypt inn, og leikurinn hefst að nýju. Ósjaldan bíða nautabanar bana af völdum nautsins. Einu sinni hefir sá sem þetta ritar horft á matador fá svo slæma útreið að hann beið bana af. Það skeði á leikvanginum í Malaga, árið 1936. Sá hét Sánchez, ekki ýkja- frægur, enda ungur að árum og svo til nýbúinn að fá sína vígslu (alterna- tiva). Nautið var frá Villimarta-búinu, sem í þann tíð gekk einna næst Miura hvað fjör og grimmd bolanna snerti. Fékk Sánchez horn bola í hægri nára („cojida") og stóð oddur hornsins út um bakið (hafði snert nýrun). Nautið fleygði manninum 6-8 metra í loft upp. Honum blæddi út í sjúkrastofu leik- vangskapellunnar, var dauður innan tveggja tíma; sárið á það hættulegum stað og of stórt til að tækist að stöðva blóðmissinn. Frœgir nautabanar Matadorarnir, sem fara með aðal- hlutverkið í þessu sjónarspili, geta orð- ið — og verða oft — vellríkir menn. Þegar Manolete var drepinn, þrítugur að aldri, árið 1947, hafði hann unnið sér inn sem svarar 175 millj. ísl. kr. Margir „toreros" (ekki „toreador"; þó Bizet hafi gert það nafn vinsælt í óper- unni „Carmen", er það rétta spænska heitið á þeim sem nautaöt stunda) hætta lífi og limum í 10 ár eða svo og safna á þeim tíma morði fjár; hætta þá og setjast um kyrrt á stórum búgörðum, þar sem þeir ala upp naut fyrir yngri menn að etja við, svo sem gerði á sín- um tíma hinn frægi matador Juan Bel- monte. Hann átti reyndar einnig stærð- arhöll á Spáni og aðra í svissnesku ölp- unum, þar sem hann dvaldi oft sér til heilsubótar. Hann var berklaveikur. Það var Belmonte sem á árunum 1914 olli sannkallaðri byltingu í þessu forna sjónarspili, nautaatinu. Fyrir hans tíma hafði megintákmark atsins verið að leggja höfuðáherzlu á undir- búning eða undanfara banastungunnar og sjálft drápið. Belmonte, lítill, frekar veikbyggður Andalúsíumaður, lagði hins vegar áherzluna á hættu nauta- banans, með sínum þokkafulla og lífs- hættulega leik með klæðinu (capote) góða stund og oftast fast upp að naut- inu; sjálft drápið í fyrsta sæti ef svo mætti kalla, en sjálf banastungan varð nr. 2. Hann lék nær hornum dýrsins en nokkrum manni hefði dottið í hug að væri mögulegt og varð stór-fræg- ur fyrir bragðið í einu vetfangi. —- Lýðurinn vonast máske ekki eftir þvi, í raun og veru, að horfa á mann drep- inn, en líkt og er með sirkusfimleika- menn „fljúgandi" á strengjum og ról- um uppi undir tjaldþakinu, þá er það sá möguleiki að dauðinn er á næstu grösum, ásamt fjaðurmagnaðri hæfni mannsins að komast hjá slysi, og skeyt- ingarleysi hans gagnvart dauðahættunni sem veldur öllum spenningnum. Áhorfendur koma ekki til þess að horfa á mann ganga fram á völlinn, drepa dýr þannig að hann -sé sjálfur nckkurn veginn öruggur um líf sitt og limi og laus við alla hættu, og ganga Joselito og Belmonte 1919, áriff áffur en Joselito var drepinn. síðan burt óskaddaður. Þeir koma til að horfa á dirfsku, kunnáttu, æðruleysi og mýktina í öllum hreyfingum nauta- banans gagnvart villidýrinu. Þess vegna er nautaat í raun og veru ekki barátta milli manns og dýrs, heldur öllu frek- ar milli mannsins og — hans sjálfs! Hvað vogar hann sér nærri hornunum? — Hve langt þorir hann að ganga til að þóknast áhorfendum? „Joselito“ (José Gómez), vinur og keppinautur Belmonte — álitinn mesti nautabani allra tíma — lét lif sitt íyr- ir áhorfendaskarann í smábænum Tala- vera de la Reina árið 1920, eins og svo margir aðrir hafa gert, fyrr og síðar. 1 verunni særast flestir og jafnvel allir matadorar, meira eða minna, minnst einu sinni á hverju leikári. Belmonte særðist meira en 50 sinnum. Af um það bil 125 frægustu eða meiriháttar matadorum (frá þvi eftir 1700) hafa 43 látið lífið í hringnum.Eru þar auð- vitað ekki meðtaldir þeir matadorar sem drepnir hafa verið við upphaf leik- ferils síns né heldur þeir bandarilleros og picadores, sem látið hafa lífið í nautaati. Frægustu matadorar það sem af er 20. öldinni hafa verið: Spánverjarnir Belmonte, Joselito, Domingo Ortega, Manolete (Manuel Rodríguez), og Mexí- kómennirnir R,odolfo Gaona, „Armill- ita“ (Fermin Espinosa) og Garlos Arr- uza. Á síðari árum virðist áhugi manna fyrir nautaati vera meiri en nokkru sinni áður. Keppnin milli tveggja mata- dora (,mano-a-manos), þeirra Antonio Ordónez og Luis Miguel Dominguín árið 1959, vakti meiri athygli í þeim löndum sem nautaat iðka en dæmi eru til. Nautaat er fyrst og fremst alspænskt fyrirbrigði, og Spánn er vettvangur hins sanna nautaats (la fiesta brava), en einnig er talsverður áhugi fyrir því i Mexíkó, Perú, Cólombía og Venezúela. Einstaka fleiri Suður-Ameríku-lönd efna til nautaats öðru hverju og „nauta- öt“ án blóðsúthellinga og algerlega hættulaus eru stundum sett á svið I Texas og Kaliforníu. Portúgölsku nauta- ati mætti, eins og áður er sagt, einna helzt líkja við lélegan sirkus. 22. janúar 1967. 14 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.