Lesbók Morgunblaðsins - 21.01.1968, Page 1

Lesbók Morgunblaðsins - 21.01.1968, Page 1
3. tbl. — 21. janúar 1968. — 43. árg. Teikning af endurbyggðum hlúta Parísar eins og hann gæti hugsanlega orðið. Næst eru lágar en víðáttumiklar byggingar fyrir ýmiskonar menningarstarfsemi og á þökum þeirra opin svæði fyrir fótgangandi fólk. Fjær til hægri eru venjulegar blokkir, en til vinstri sambygging af því tagi sem margir hugsa sér að verði í framtíðinni. GÍSLI SIGURÐSSON TÓK SAMAN Árið 1889 bjó heimspekingurinn Art- Ihur Sehopenhauer í Frankfurt og í greinarkorni óskapaðist hann yfir há- vaðanum þar í borginni: „Hinn hræði- legi hávaðii sem leiðir af helvízkum smellunum á göium borgarinnar og rænir lífið allri ró og dýpt“. Bitur mundi Sohopenhauer verða á vorum trmum, ef hann þyrfti að hlusta á öll þaiu ókjör af ólhljóðum, sem bílar, jáxn- brautarlestir, sporvagnar, hátalarar, þotur, og steypu'hrærivélar leiða af sér í stórborgum nútímans. Flestum mundi finnast það friðsæll bær, þar sem ein- ungis heyrðust svipusmellir. Þegar gríski ráðherrann Venizelos ákvað á embættisiárum sínum 1910— 1915, að allir skyldu víkja til hægri í helztu götum Aþenu, þá fannst Aþenubúum nóg komið og hann var kallaður „Týran“, eða harðstjóri. Þeim fannst þessi ákvörðun ganga freklega á rétt þeirra og frelsi og þeim fannst fjári hart að mega ekki nota göturn- ar þar sem helzt væri hægt að kom- ast áfram og yfir höfuð, þar sem þeim dytti í hug. Það hefði sennilega leitt til blóðugra átaka, ef ráðlherrann hefði gerzt svo djarfur að innleiða umferð- arljó.s, sem meinuðu mönnum að halda áfraim, þegar þeim sýndist. Árið 1935 skrifaði Ortega Gasset: „Jafnvel á hinum verstu einræðistím- um gat fólk í Evrópu þó glatt sig við það frelsi, sem það hafði til þess að ganga um göturnar, að minnsta ko.sti þar til dimmt var orðið. En upp á síðkastið höfum við orðið að sjá á bak þessu frelsi, því að allur sá gífurlegi fjöldi af farartækjum og fótgangandi fólki gerir frjálsa umferð ómögulega. Og nú verður að hafa þjóna ríkisins Borg' þykir hæfilega þéttbýl, þegar 30 þúsund manns eru á ferkílómetra. En víða er miklu þéttar búið, t. d. í Japan, þar sem manngrúinn á baðströndunum verður ofboðstegur, en mest þéttbýli mim þó vera í Calcutta á Indlandi, 300 biisund. á ferkílómetra. á strætum og gatnamótum til þess að stjórna og ákveða hvar við förum og hvar við stöndum. Frá San Fransisco til úthverfisinis San Rafael liggur hraðbraut með fjór- um akr'einum í hvora átt, en samt er algengt að þar verði slíkar tafir á annatímum, að enginn kemst áfram. Amerkka vikuritið Time sagði frá því 1960, að þá væri stundum bægt að sjó bréf'dúfu fljúga upp úr bílakösinni. Kaupmaður nokkur, sem hafði alið upp bréfdúifur sér til gamans, tók þær vsnjuiega með sér í vinnuna og á heim- leiðinni þegar umferðin stóð föst, sleppti hann þeim öðru hvoi'u út með skilaboð um að hann mundi koma seint heim. Um líkt leyti sagði brezki umferðar- mála'ráðiherrann í neðri mólstofunni: „Þegar eitt tonn af stáli, sem hreyfist með 60 km. hraða á klukkustund og 60 eða 70 kg. af holdi og blóði, sem hreyfist með 5 km. hraða á klukkiu- stund, eiga að nota sömu samgöngu- æðarnar, þá hlýtur það að leiða til slysa og holdið og folóðið hlýtur allt- af af bíða ósigur“. Nú er svo komið, og það meira að segja fyrir all löngu, að bíllinn hefur lagt undir sig borgirnar og um leið, má segja, að hann ráði yfir þeim. Ef bílalestirnar rofna einhvers staðar, hleypur fótgangandi fólk yfir göfurn- ar eins og hrædd hænsni. Á götunum, sem fótgangandi menn bjuggu sitt sinn til handa fótgangendum, þar er fót- gangandi fólk að vísu ennþá þolað, en oft er þeirri umferð líka beint niður í jörðina, til þess að ekki þurfi að rjúfa bílaumferðina. Þá eru bálarnir í dagsljósinu en maðurinn neðanjarð- ar og í sannleika sagt er þá búið að hafa röskleg endaskipti á því sem eðli- legt sýnist. Á hinn bóginn geta þeir sem aka í bílum ekki glaðzt verulega yfir ráð- rí’ki bílana í borgunum: Það segir sig sjálft, að enginn er öfundsverður af því- að hima tímunum saman í bíla- lestum á götum, sem eitt sinn voru gerðar fyrir hest.vagna'U'mferð. í flest- um borgum, Evrópu er talið, að gatna- kerfíð háfi ívöfaldazt að flatarmáli síð- an um aldamót, en ökutækjum hefur fjölgað tuttugu og fimmfalt. í borgum eins og New Yórk og London getur seinagangurinn á annatímum orðið slíkur, að bíll er. klukkutíma að kom- ast kílómetra. í fáum borgum eru þrengslin verri en í Rómaborg. í hin- um eldri hluta borgarinnar er fót- gangandi maður oftast fljótari að kom- ast ferða sinna. Það er stöðugt vanda- mál fyrir milljónir stórborgarbúa um allan heim að finna bílastæði og bál- arnir taka vissulega sinn toll: í Róm til dæmis farast á mánuði hverjum 20—30 manns í umferðarslysum. í stór- borgunum eru umferðarslys einnig al- gengasta dánarorsök barna. Fyrstu 60 ár aldarinnair fórust á götum og vegum Band'aríkjianna 1,3 millj. manna í um- ferðarslysum. A hverju ári heyrum vi’ð að bílaverksmiðjurn'ar hafa aukið fram- leiðslu sína, og samanlögð framleiðsla þeirra allra nemur nokkrum milljón- I öllum meiri háttar borgum er umferðin langsamlega torleystasta vandamálið. 1 Los Angeles einni saman berast út í andrúmsloftið átta þúsund tonn af eitruðum gastegundum. Margir eygja þá lausn eina, að brennslumótorinn verði að afnema og leggja bílagötur neðaniarðar í borgum.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.