Lesbók Morgunblaðsins - 14.07.1968, Side 16
Lausn á síðustu krossgátu
BRIDEE
SPILIÐ, sem hér fer á eftir er frá leikn-
um milli Hollands og Bandaríkjanna í
undanúrslitunum á Olympíumótinu í
Frakklandi.
A Á 7 5 3 2
V K 4
♦ 9
* G 10 8 7 4
A 9 6 4 A K D 8
V 8 6 2 V D 5
♦ 10 6 4 ♦ D 8 7 3
* Á K 5 3 * D 9 6 2
A G 10
V Á G 10 9 7 3
♦ Á K G 5 2
♦ —
Hreindýrastofninn á Austurlandi
bar oft á góma í haröindunum í
vetur og víða að heyrðust raddir
um að eitthvað þyrfti að gera til að
hindra það að dýrin horféllu. Sem
betur fór hlánaði áður en til koll-
fellis kœmi í hreindýrastofninum,
en fjöldi dýra mun þó hafa fallið.
Hvort pest hefur þar lagzt á sveif
með hagleysi og harðrétti skal
ósagt látið, enda skiptir það ekki
mestu á þessu stigi málsins. Hitt
er staðreynd, að í hörðum vetrum
má búast við því að hreindýrin
hrynji niður í stórum stíl, ef ekk-
ert verður að gert.
Tœpar tvær aldir eru nú síðan
hreindýr voru
fyrst flutt
hingað til
lands, en
fyrsti hópur-
inn mun hafa
komið 1771.
Þau voru
flutt hingað
sem nytjadýr,
en lítið hefur
orðið úr þeim
nytjum lengst
af, nema hvað hreindýraskyttur
hafa fyrr og siðar fengið ágœtlega
í soðið. Iiafði stofninum nœr verið
útrýmt, er hann var friðaður 1940
og valdar hreindýraskyttur fengnar
til eftirlits með góðum árangri.
Hefur dýrunum síðan fjölgað í góð-
œri, en hvenœr sem harður vetur
kreppir að má búast við felli eins
og reynslan sýnir.
Það bagar hreindýrum mjög þeg-
ar hart er til jarðar, hve rásgjörn
þau eru og hœttir því jafnvel til að
yfirgefa þá litlu snöp sem þau
nara á og rása út á freðstorkur,
þar sem hvergi nœr til jarðar. Og
þau hafa hvorki vit né eðlisávísun
til að rata aftur þangað sem ein-
hvern krafstur kynni að mega finna
og veslast upp á hjarninu. Gefur
auga leið, að nauðsyn ber til að
halda dýrunum til haga, ef tryggt
á að vera að þau lifi af meðalharð-
an vetur, en oft hagar svo til á
Austurlandi, að annaðhvort nœr til
jarðar úti á heiðum eða inni á Vest
urörœfum og Kringilsárrana. Þetta
hefur ekki verið gert í neinum
mœli, enda hafa aldrei verið ráðn-
ir menn til að hafa þetta starf á
ra
Bandarlsku spllararmr Cforaan og
Robinson sögðu þannig á spilin.
Suður Norður
1 hjarta 1 spaði
2 tiglar 2 hjörtu
3 lauf 4 lauf
4 tiglar 4 hjörtu
Spilið vannst auðveldlega.
Hollenzku spilararnir Sladenburg og
Kreyns, sem eru frægir fyrir harðar
sagnir, sögðu þannig á spilin:
Suður Norður
1 hjarta 1 spaði
3 tíglar 3 hjörtu
4 lauf 4 spaðar
5 lauf 6 lauf
6 hjörtu pass
Vestur lét út laufa ás, safnhafi tromp-
aði, lét út spaða, drap í borði með ás,
lét út tígul og drap heima með gosa.
Nú var tígul 2 látinn út, trompað í
borði með hjarta 4, hjarta kóngur tek-
inn, lauf látið út, trompað heima og
síðan hjarta ás o.s.frv. Alls 12 slagir og
spilið unnið.
hendi sérstaklega.
Helgi Valtýsson, rithöfundur,
sem er manna fróðastur um háttu
og atferli hreindýra, ritaði fyrir
fáum dögum grein um hreindýrin
á Vesturörœfum. Hann skýrir þar
frá því, að árið 1945 hafi tveir
Samar (þ.e. Lappar) fyrir hans til-
stuðlan boðizt til að flytjast hing-
að til lands og taka að sér tamn-
ingu hreinhjarðarinnar, sem þeir
hafi talið að takast myndi á tveim-
ur árum. Helgi bœtir við: „Ekki
vildu islenzk stjórnvöld um þœr
mundir sinna þessum málflutningi
mínum og uppástungu. Og frœndur
mínir og landar eystra voru enn
sem fyrr harla skilningssljóir á
þann örœfaauð, sem þeim stóð hér
til boða, þótt hér vœri um milljóna-
verðmœti að ræða fyrir Múlasýslur
um langa framtíð.“
Milljónaverðmœtin, sem Helgi
Valtýsson talar um, er arður af
dýrunum, einkum af kjöti og skinn
um. Hreindýrakjöt er mjög Ijúf-
fengt, en auk þess þurrt og því
hagkvœmara til kjötiðnaðar en
nokkurt annað kjöt. Er slíkur mat-
ur á boðstólum í Skandinavíu og
er í senn hið mesta hnossgæti og á
hóflegu verði. En slíkum iðnaði
getur auðvitað ekki verið til að
dreifa nema um tamda hjörð sé að
ræða, sem hœgt er að ganga að
vísri. Verkun hreindýraskinna og
skinnklœðagerð talar Helgi einnig
um í sambandi við hreindýrahjörð-
ina eystra.
Þegar afli bregzt og saman
dregst sú starfsemi, sem honum er
tengd, er nauðsynlegt að hafa úti
öll spjót til nýrra bjargráða. Ég
vil þess vegna hvetja hlutaðeigandi
yfirvöld til að hugleiða í fullri al-
vöru hvort ekki er rétt að gera til-
lögur Helga Valtýssonar að veru-
leika. Kostnaður við tilraunina er
ekki nema tveggja manna laun til
að byrja með. Ef vel tekst til er
hins vegar miklu bjargað og undir-
stöður lagðar að atvinnu fjölda
manna. Og auk þess yrði þeirri
skömm bœgt frá, að hreindýra-
hjörðin á Austurlandi, þessi sam-
eign þjóðarinnar, veslist upp og
kveljist til bana af hungri og
harðrétti.
Jón Hnefill Aðalsteinsson.