Lesbók Morgunblaðsins - 28.07.1968, Blaðsíða 4

Lesbók Morgunblaðsins - 28.07.1968, Blaðsíða 4
UM VALDIÐ Framhald af bls. 2. setningu, teldi nauðsynlegt að telja upp hver væru eða væru ekki áhugamál hinna vinnandi stétta, og víðsýnm lög- gjafi ætti að forðast talningu slíkra dæma. Sjálfur kysi ég helzt lakónska orðun, sem hafði óumdeilanlega merk- ingu. Aðeins slík orðun getur gefið lög- um sama hljóm og kunnum málsháttum, sem að lyktum verða eitt með vizku feðranma, og þá er svo komið, að hin almenna réttarkennd er orðin þroskuð og naumast þörf dómstóla til að finna hið rétta. Káfleygt orðalag og óljós hugsun í stjórnarskránni verður til þess að lítið verður sagt um endingu hennar. Hæstu réttarreglur verða frem- ur prógram en trygging fyrir réttind- um borgarans. Raumar lit ég svo á, að stjórnarskráin eigi að gegna hlutverki sínu sem hver ömnur réttarregla, og þar við bætist, að engin undirskipuð regla eða annað því um líkt megi tak- marka eða draga úr ákvörðunarmætti hennar. Ég hef lýst skoðun miniú á eðli alls valds, þróun þess og framkomu, og ég hef reynt að sýna fram á, að eftirlits- mekanisminn, sem átti að halda því í sfcefjum, hefur brugðizt, þannið að borg arinn missir virðingu fyrir sjálfum sér, og þar með stöðu sína sem borgari. Vari þetta ástand jafnlengi og það hef- ur gert hjá okkur, þarf engan að undra þótt ýmsir komist á þá skoðun, og þá fyrst og fremst unga kymslóðin, sem hvorki af námi né reymslu veit betur, að það ríki einlhvers konar sífellt á- framíhald í leit mannsins að fuillkomnu lýðræði. Haldi þetta ástand velli (og eðlileg sjálfsvarnarhvöt manna berjist ekki gegn því) mun raunverulegt skap- ferli þjóðar okkar breytast með næstu (kynslóð. í stað öflugrar menningar- heildar kæmi auðstýrð þjóð, sem jafn- vel útlendingi yrði leikur að stjórna. Ef við ætlum að láta reka í þá átt, held ég við hefðum betur látið þúsund ára viðleitni vera. Ég geng út frá því, að enginn okk- ar sé fæddur auðstýrður, og legg til, áð rithöfundaisaimbandið taki forystuma, e. t.v. í samvinnu við blaðamannafélagið og önnur félög sem eiga sér áþekk á- hugamál, og fari fram á sérfræðiálit tékknesku vísindaakademíunnar um stjórnarskrána. Reynist nauðsynlegt að hafa forystu um breytingar á henmi mætti t.d. gera það þannig, að samband- ið hvetti félaga sína til að sækja kjör- fundi við næstu kosningar og vekja þar máls á þessu vandamáli og sjá til þess, að frambjóðendur sannfærist. En einnig er hægt að hugsa sér, að sér- hver okkar gangi áður á fund fram- bjóðanda síns og beiðist þess að hann mæli fyrir málinu á þingi. Sem ég stend hér í stólnum, hef ég alls ekki þá tilfinningu sem frjáls borg- ari ætti að hafa, er hann neytir frelsis síns til að segja það sem honum býr í brjósti. Ég hef fremur á tilfinningunni að ég notfæri mér vopnahlé milli borg- ara og valds, að ég brjóti gegn því ástandi sem hér hefur ríkt og lýs- ir sér í því, að í gildi er eins konar frið- un á rithöfundum og listamönnum Ekki veit ég hve lengi hún kann að vara, máski til hausts, máski til morg- xms. Eins og ég trúi því ekki að hægt sé að kalla þegnana sama og valdið, hinn stýrði og stjórnandi geti samein- azt í einum baráttusöng, alveg eins trúi ég því ekki að listin og valdíð geti nokkru sinni sætzt heilum sáttum. Þau munu ekki og geta aldrei gert það, þau eru of ólík og henta ekki hvort öðru. Það sem hugsanlegt er og gefur til- raun okkar von, er þetta: að valdið og listin skilji stöðu sína og setji sér vit- urlegar reglur um samband sitt. Jafn- vel rithöfundar eru menn, og stjórnar- völdin eru búin til úr mönnum. Ef fyrir einhverjum okkar ætti að liggja að lenda í stjórnmálafélagi, ræki hann sig á innri klofning þfess qg lenti í stríði við sjálfan sig. Frelsisunnandi maður, sem að sjálfsögðu er ofurlítið eigingjam og hugsar fremur um eigið hreinlæti en óhreinku alls heimsins, maður sem sér hve allir hlutir eru flóknir, en er haldinn óstöðvandi löngun til að gera þá einfalda, sem sagt t.d. skáld eða tónskáld gengur aldrei í lið með ríkisvaldinu. Skáld sem er ráð- herra, það er bara eins og ofurlítil kurteisleg hneiging valdsins, þegar það er í góðu skapi. Hér tala ég um ósætt- anleika og reikna ekki með fullum fjandskap. (- - -) Rithöfundar eru líka menn, og stjórnarvöldin eru á sama hátt gerð af mönnum. Ekki kæra rithöfundarnir sig heldur um stjórnleysi, því að þeir vilja gjarnan eiga góðar íbúðir ogvilja að aðrir geti það líka, þeir æskja fram- fara í iðnaði og ábata af verzlun. Og þetta er óhugsandi án skipulagningar og stjórnarvalda. Listin getur ekki risið gegn stjórn- inni, því að það að stjórna, það þýðir að ráða beint eða óbeint yfir lífi mann- anna, ráða yfir velferð þeirra með stjórnkænum aðferðum, ráða yfir þessu sem ég er að hugsa um, en ekki er hægt að skýrgreina. Og starfsemi valdsins snertir listina einmitt í því óskýrgrein- anlega, sem þó er á einhvern hátt ákveð ið. Listin verður því að standa móti gagnrýni sinni á ríkisstjórnir, því að ríkisstjórnir, hvernig sem þær svo eru, og hvaða framkomu sem þær hafa, eru samt sköpunarverk viðkomandi menn- ingar. (...) En hvaða kerfi og hvaða leiðslur? Ég sé bara hemla. Á áratug hefur ekki komið fyrir mig við nokkrar yfirlýs- ingar þeirra að ég hafi hugsað: Sjá, hve skínandi hugmynd! Og þetta hefur engum dottið í hug fyrr! Þvert á móti sagði ég oft daufur í dálkinn við sjálf- an mig: Hvaða máli skiptir það eigin- lega, fyrst allir hafa lengi vitað það! Og oftast: Hvernig get ég bjargað minni eigin hugmynd, hvernig get ég komið henni fram, fyrst ég get ekki sannfært þá af því að ég sé þá aldrei? Ég sé og heyri hvernig valdið hörfar fáein skref til baka, þegar það mætir oí' sterkri andstöðu. Ekki undan rök- um: það lætur ekki sannfærast af þeim. Aðeins mistökum, endurteknum mistök- um, sem bæði kosta okkur fjármagn og taugar. Ég sé stöðugan vilja, og jafn- vel stöðuga hættu á að hinir eldri og verri tímar komi aftur. Því hvers virði er skipulag? að við höfum fengið rit- höfundasjóð, forlög og tímarit? Hótun um að þeir komi og taki allt af okkur aftur, ef við högum okkur ekki vel. Ef ég viðurkenndi að þeir ættu það, segði ég eins og hún systir mín var vön: Drottinn gaf — og drottinn tók. En eru þeir þá allherjardrottnar? Og hvað veita þeir öðrum? Ekkert? Þá höfum við ekkert að gera hér. Látum þá segja það. Látum það verða lýðum ljóst, að í raun og veru eru þeir bara hópur manna, sem öllu vill ráða, orðum og gerðum allra, hugsunum og tilfinning- um. Þetta vanmetna, umtalaða og ein- staka menningarverk vitnar um stöðu menningarinnar í ríkinu, það er mynd af menningu þjóðarinnar. Á síðustu misserum höfum við oftlega heyrt, að ríkisvaldið viðurkenni eins konar sjálfstjórnarrétt til handa menn- ingunni á hennar eigin sviði. En eftir því sem þeir segja, ætti þá menningin ekki að vera að ybba sig þó sett sé ofan í við hana, þegar hún fer yfir á svið stjórnmálanna. Okkur er borið á brýn að við slettum okkur fram í ann- arra manna verk, sérhvert verk eigi að vera unnið af sérfræðingi. Satt er það, að engir ættu að koma nálægt stjórn- málum nema sérfræðingar og fagmenn. En hvaða trygging er fyrir, að það séu einmitt þessir menn sem eru sérfróðir? Ég efa það, og rótina að efa mínum vil ég helzt bera fram í líkingu. Sannlega er læknir sérfræðingur. Hann getur Framhald á bls. 13 Korcula skagar fram sem borgvirki rammgirt múrum með traustum varðturnum. ÞÖSIWD EYJAR I ADRIAHAFI „Þúsund eyjar: náttúran hefur beitt ótæmandi hugarflugi og taumlausri sköpunargleði, þegar hún mótaði þennan eyjaklasa. f óviðjafnanlegu fjölskrúði sínu og óendanlegum margbreytileik eru þessar þúsund eyjar sem þúsund meginlönd, svo frábrugðnar eru þær hver annarri að loftslagi og mannlífi, siðum og sérkennum.“ Þannig segir í lýsingu á eyjunum undan strönd Júgó- slavíu í bók, sem Lesbók hefur borizt: Þúsund eyjar í Adríahafi (útg. af „Jugo- slavija“, Nemanjina 34, Belgrad, 1965.) Þetta er myndabók, landkynningar- rit, sem hefur nú á þessu ári verið gefin út í enskri útgáfu, og er formáli sam- inn af iúgóslavneska rithöfundinum Antun Soljan. Höfundur hlífir lesanda við þurri upptalningu á staðfræðilegum fróðleik, sem má allt eins fá í alfræðibókum — það er fyrst og fremst skáldleg sýn höfundar, sem leiðir okkur á þessar slóðir, höfundar sem af ást á landi sínu vill veita öðrum hlutdeild í fegurð þess. Hann tengir sögu og goðsögn, þjóð- sögur og munnmæli við nútímann og það mannlíf sem lifað er á eyjunum í dag — eyjaklasinn í heild verður tákn óslitinnar framvindu sögu og menn- ingar. Hér geymdi jörðin fornminjar frá dögum hinna fornu Illýringa, sem námu þar fyrstir land, listaverk og byggingarlist bera vitni fornra grískra yfir- ráða og rómverskra áhrifa, kapellur, sem reistar voru á 8. og 9. öld standa 4 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 28. júlí 1988

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.