Lesbók Morgunblaðsins - 26.01.1969, Blaðsíða 15

Lesbók Morgunblaðsins - 26.01.1969, Blaðsíða 15
f einni ránsferðinni urðu þeir félagar 65 ára gömlum manni að bana. Sterling ríkis- stjóri bauð 250 dala verðlaun þeim sem gæti orðið að liði við handtöku morðingjanna og það var mikið fé á þessum kreppu- tímum. Bonnie var sleppt úr fang- elsinu í júní. Hún fór heim til móður sinnar og sagðist vera skilin að skiptum við Clyde. Enn urðu þeir Clyde og Ham- ilton tveim mönnum að bana 5. ágúst. Þeir komu aðvífandi, þar sem sveitaball stóð sem hæst. Hamilton ók bílnum á bílastæði en Clyde vildi halda ferðinni áfram. Þeir fóru að þrátta. Lög reglustjórinn, Maxwell, sem þarna var staddur utan dyra ásamt aðstoðarmanni sínum, Eu gene Moore, heyrði háreistina og hélt að þarna væru bænda- synir úr nágrenninu á ferð. „Hvað gengur á hér?“, sagði Maxwell. „Eruð þið fullir, strákar?“. Clyde og Hamilton litu um öxl, sáu glampa á lögreglu- stjörnuna í skyrtum þeirra og hófu skothríð um leið. Moore lét lífið samstundis og Max- well nokkrum mínútum síðar. Clyde og Hamilton stukku upp í bílinn, bensinið var stigið í botn og þeir hurfu út í myrkrið. Nokkrum dögum síðar fékk Bonnie þau skilaboð frá Clyde að hún skyldi tygja sig til ferðar, þegar hún heyrði í út- varpinu að innbrot hefði verið framið hjá- „Neuhoff-félaginu“ í Dallas. Sama dag kom fréttin í útvarpinu, það var 12. ágúst, og lýst var eftir Olyde Barrow og Ray Ham'ilton. Þeir höfðu þékkzt en síðast. sást <til þeirra þar sem þeir óku vestur til Fort Worth á ófsahraða. Bonnie ferðbjóst. Hún sagði móður sinni að hún hefði von um vinnu á kaffihúsi og stökk út. Móðir hennar leit út um gluggann. Úti stóð óhrein V8 Fordbifreið. Tveir menn sátu í framsætinu og annar var ó- hugnanlega líkur Clyde Barr- ow. í bílnum urðu fagnaðarfund- ir. Þau ákváðu að fara öll þrjú ti'l New Mexico, en þar á’tti Bonnie frænku. Frænka Bonniar bauð þau velkomin, þegar bíllinn rann í hlað hjá henni næsta morgun. Hún þakkað ungu mönnunum kænlega fyrir að þeir höfðu ekið frænku hennar alla leið frá Dallas. „Okkar var ánægj- an, frú“, sagði Clyde. „Ég ætla að sækja farangurinn út í bíl- inn“. Hann sneri sér við, en sá þá hvar maður með byssu í belti sínu, var að skoða bílinn. „Góðan dag“, sagði rmaðurinn og gekk rólega upp að húsinu. Þá sá Clyde si'lfurstjörnuna í skyrtu hans. Clyde og Hamilt- on geymdu byssur sínar und- ir bílsætinu. Þar voru þær nú. Joe Johns, en svo hét lög- reglustjórinn, mátti þakka sin- um ssela fyrir það. „Ég átti leið hérna um, sá ókunnugt bíl- númer og fór að velta því fyr- ir mér hver væri kominn í heim sókn til . . . .“ Þá fann hann að byssuhlaupi var stungið milli herðablaðanna á honum. Þar var Bonnie að verki. Clyde hljóp ti'l, þreif byss- una úr belti hans, miðaði á hann og skipaði honum upp í bílinn. Frænkan stóð á tröppunum og skildi hvorki upp né niður. Bonnie hafði komið auga á lög- reglustjórann úr glugganum, hafði gripið byssu ’húisbóndans af veggnum, skotizt út úr hús- inu bakdyramegin og kom þann ig aftan að lögreglustjóranum. Nú sátu þau fjögur í bílnum, sem hvarf frænkunni í ryk- mekki. Þremenningarnir slepptu lög- xeglustjóranum ekki úr bílnum fyrr en í nágrenni San Ant- onio. Hamilton tönnlaðist á því a'lla leiðina að annað hvort yrðu þau að halda honum föngnum til eilífðarnóns eða koma honum fyrir kattarnef. En Clyde vildi ekki vinna ó- dæðisverk á gíslum, þótt hann vílaði ekki fyrir sér að myrða menn ef til vopnaviðskipta kom. Þau héldu ferðinni áfram í austurátt. í Victoria kom Clyde auga á nýjan Ford V8. Þá teg- und sá hann sízt í friði. Hann og Bonnie stálu honum. En nú hafði sést til þeirra. Lögregl- unni var gert viðvart og hún gerði ráðstafanir til að hefta för þeirra við brúna yfir Col- orado-fljótið. Vopnuð lið voru sett báðum megin við brúna. Clyde nálgaðist á fleygiferð og bíllinn geystist út á brúna. Skot hríðin dundi á þeim og þau svöruðu með kúlnaregni. Þetta voru fyrstu kynni Bonniar af alvarlegri viðureign við lög- regluna. Þau komust klakk- laust leiðar sinnar og mennirn- ir tveir hældu Bonnie á hvert reipi fyrir frammistöðuna. Næstu vikur héldu þau kyrru fyrir á eyðibýli við GrandPra irie. Þaðan fóru Clyde og Ham- iliton í ránsför til birgðastöðva hersins í Fort Worth og sneru aftur með ful'la kassa af byss- um og skotfærum. Eftir það héldu þremenning- arnir áfram norður á bóginn, rændu og myrtu á ýmsum stöð- um. Nú voru þau orðin svo al- ræmd að þau forðuðust fjöl- farna þjóðvegi. Kusu heldur innansveitarvegi. Um haustið voru þau komin til Michigan. Bíllinn var eini samastaður þeirra. Þeim var aldrei rótt nema þau væru í honum eða í nánd hans. Honum var vel við haldið og þess alltaf gætt að hann væri fullur af bensíni. í októberlok sagði Hamilton ski'lið við hjúin. Hafði fengið nóg af flakkinu, fór til Tex- as og hélt áfram ránum og igrip- deildum í félagi við gamla kunn ingja þar, en nýr náungi slóst í för með Bonnie og Clyde. Sá var aðeins 17 ára, bílaþjófur, Wiilliam Daniel Jones að nafni. f kvikmyndinni er honum gefið nafnið Moss og þau látin velja hann vegna þekkingar hans á vélum. Svo var þó ekki í raun- inni. Varla er hægt að ímynda sér, hvaða kostum þeim sýndist hann búinn, nema ef vera skyldi sakleysislegt útlit og ó- ■trúleg einfeldni. Sagt er að Clyde hafi ávarp- að hann fyrst á þessa leið: „Viltu slást í förina. Ég heiti Clyde Barrow og hún Bonnie Parker. Við rænum bönkum“. Og hann hafi ekki látið segja sér það tvisvar en setzt um- svifalaust upp í bílinn. Þar með hófst 16 mánaða martröð, eftir því sem hann sjálfur sagði í lögregluskýrsl- unni, þegar hann náðist loks. Skýrslan er upp á 28 b'laðsíð- ur og þar er margan fróðleik að finna um glæpaferil þessa fólks. Rabbað um RABB Hr. Gísli Sigurðsson. Það sem hér fer á eftir er skrifað í tilefni af rabb-grein yðar í Lesbók Morgunblaðsins 8.12’68. Þér ræðið þar um launajöfn- uð og ójöfnuð og bendið rétti- lega á hvernig þessum málum er háttað hér hjá okkur. Það fer þó eins fyrir yður og flestum öðrum, að erfiðlega gengur að sætta sig við uppmæl- ingataxtana, enda munu þeir valda meiri sársauka, einkum fyrir þá sem eru að byggja eða hafa byggt á undanförnum ár- um, heldur en t.d. greiðslur til lækna, enda engin „samlög“ til fyrir byggjendur til að draga úr sársaukanum, eða sársauki til að réttlæta taxtana, eins og hjá tannlæknum. Þér segið í niðurlagi grein- ar yðar: „Það er kominn tími til að létt sé af okkur fargi ósann- gjarnra uppmælingataxta heilla starfshópa.“ Nú langar mig til að vita, hvað þér í raun og veru mein- ið með þessari setningu. Viljið þér láta banna taxtana eða bæta? Ástæðan til þess að ég spyr er sú, að flestir sem til þekkja, eru þeirrar skoðunar að ákvæð isvinna sé æskilegri launa- grundvöllur, en t.d. tírhavinnu- greiðslur og að því er keppt í veigamiklum atvinnugreinum að koma þessu fyrirkomulagi á, ekki sízt af atvinnurekend- um. Þetta skýtur nokkuð skökku við þá reynslu, er þér og aðr- ir teljið að fengizt hafi af á- kvæðisvinnutöxtum bygginga- manna. Ég tel að skoðun yðar á á- kvæðistöxtum byggingamanna, réttlæti ekki að þeir séu lagðir niður, en gagnrýnin gefur til- efni til að taxtarnir séu athug- aðir nánar. Ég hygg að flestir sem gagn- rýnt hafa taxtana opinberlega, hafi litla þekkingu á uppbygg- ingu þeirra og láti sig það litlu skipta, samanborið við þá vissu, að fyrir þeim finnst á pyngjunni, einmitt þegar hún hefur hvað mestu hlutverki að gegna. Ég er þeirrar skoðunar, að nokkur veigamikil atriði séu forsenda þess að ákvæðisvinnu taxtar geti verið sanngjarnir, en þau eru þessi: 1. Verkkaupa á að vera frjálst að velja hvort hann læt- ur vinna verk í ákvæðisvinnu, tímavinnu eða á annan 'hátt er hann telur heppilegastan. 2. Taxta á að byggja upp á raunhæfu starfsmati og tíma- rannsóknum. 3. í taxta á að vera „þak“ og „botn“, þ.e. að skylt sé að endurskoða hann, ef einstök verk eða meðaltal verka fer yfir ákveðna hagnaðarpró- sentu eða niður fyrir. 4. Skrá þarf unninn tima í á- kvæðisverkum og láta þá fylgja uppgjörum til ákvæðisskrif- stofu. 5. Hulda þarf nákvæma skrá („statistik") yfir útkomu verka, sem öllum er heimill að- gangur að. 6. Setja þarf ákveðnar regl- ur um lágmarks verkgæði og vinnubrögð, svo hægt sé að meta samkvæmt þeim. 7. Taxtarnir eiga að vera byggðir á tímaeiningum, en ekki krónum og aurum, og margfaldaðir með meðal tíma- kaupi, sem gildir á hverjum tíma. ^ 8. Ákvæðisvinnunefndir eiga að vera skipaðar þrem mönn- um, einum frá launþegum, ein- um frá vinnuveitendum og odda manni, jafn réttháum hinum, til nefndum £if hlutlausum aðila. Nefndirnar eiga að hafa öll ráð taxtans í hendi sér, innan ramma þeirra reglna, sem um hann gilda. 9. Ákvæðisvinnunefndir og skrifstofur sem þær reka, eiga að vera fjárhagslega sjálfstæð ar. Fyrsta atriðið sem hér er nefnt, er í raun og veru for- senda þess að taxtarnir séu sanngjarnh-. Skiptist ákvæðis- vinnuhagnaðurinn sanngjarn- lega á milli þeirra, sem hlut eiga að máli, velja þeir ákvæð- isvinnuna og þá þarf enga þvingun. Þarna verður að við- hafa gangkvæma sanngirni. Annað atriðið ætti að vera augljóst, því heilbrigð skyn- semi mælir með því að 'litið sé á taxtann sem mælistiku, en ekki samningsatriði, sem verður enn augljósara, ef taxtinn er byggður upp af timaeíningum eins og talað er um í sjöunda atriðinu. Þriðja atriðið er mikilvægt vegna þróunar í vinnutækni og vegna tilkomu nýrra tækja, á- halda og efnis. En til þess að þetta séu ekki aðeins orðin tóm, þarf að uppfylla skilyrði 4 og 5, þvi án slíkra gagna er ekki hægt að fylgjast með útkomu verka. Til þess að þetta dugi, verða ákvæðisvinnunefndir að hafa heimild til að breyta töxt- um í samræmi við hámarks- og lágmarksreglurnar, án þess að bera slíkt undir stéttarfé'lögin og má í því sambandi benda á áttunda atriðið og raunar einn- ig það níunda. Þá er og þetta atriði mikil- vægt með tilliti til verkáætlana og það skapar nefndunum að- stöðu til þess að fylgjast með því hvort rétt sé gefið upp til uppgjörs (verka), með því að bera saman hliðstæð verk. Sjötta atriðið ætti að vera metnaðarmál iðnaðarmanna, en illmöguilegt er að meta vinnu- gæði, ef engar skráðar reglur eru til um hver lágmarlcsákvæð in eru. Um það má deila enda- laust t.d. hve miki'l skekkja megi vera á vegg eða hve slétt og rétt pússning á að vera. Þá ætti ákvæðisnefndum að vera skylt að fara öðru hvoru á vinnustaði og kanna vinnu- bi'ögð, og alltaf ef verkkaupi óskar þess, engu síður en að kanna 'hvort rétt sé fram talið á ákvæðisvinnuuppgjöri. Þessi þjónusta á að vera fólgin í þeirri þóknun, sem verkkaup- inn greiðir fyrir uppmælingu, að 5 prs. af verkupphæð. Varðandi níunda atriðið má benda á, að fjárhagslegt sjálf- stæði ákvæðisvinnuskrifstofu, veitir nokkra tryggingu fyrir því, að starfsmenn hennar geti staxfað án tillits til hagsmuna viðkomandi stéttarfélaga og oddamanni ákvæðisnefndar er að þessu tvímæ'lalaus stuðn- ingur. Ég sé ekki ástæðu til þess að hafa þetta lengra, en vona að ég hafi gert þannig grein fyrir skoðunum mínum, að þær skilj- ist. Ég skrifa yður þetta vegna þess, að ég ræð það af grein yðar, að þér hafi áhuga á að færa þessi mál tii betri vegar og hafið til þess nokkra að- stöðu, því skrif yðar eru lesin. Líklegt er að erfiðasta vandamálið í sambandi við um- bætur, sé að kynna þessi mál, því jafnvel þeir, sem telja sig órétti beitta, leggja oftast ekki á sig að kanna hvern rétt þeir eiga til leiðréttingar. Jafnvel þeir sem vinna eftir töxtum eru fáfróðir um ákvæði þeirra, en óttast að athugun og lagfæringar skerði hag þeirra og líta því óhýru auga allar breytingar. Stjórnmálamennirnir þora í hvorugan fótinn að stíga, af hræðslu við atkvæðamissi, eru é.t.v. ekki svo vel inni í þéss- um málum, að þeir treysti sér til að taka afstöðu. Ef verulegur áhugi er á að færa þessi mál til betri vegar, væri ástæða til að kanna hvort þau atriði, sem ég set hér fram, hafa við rök að styðjast. Reyn- ist það vera, þá væri athugandi að fá upplýst hvort gildandi taxtar eru í samræmi við þau atriði og þeim framfylgt. Þetta er í raun og veru ekki mjög mikið verk, því aðal byggingagreinarnar eru ekki nema sex, en erfiðara mun verða um vik, þegar ákvæðis- vinna hefur verið tekin upp í fleiri starfsgreinum, án þess að athugað sé hver eru grundvall- aratriði sanngjarnra ákvæðis- vinnutaxta. Ef það er rétt sem þér seg- ið í grein yðar, að „Fljóttek- inn gróði þeirra af uppmæ'ling- um hefur hækkað byggingar- kostnað upp úr öllu valdi og verið sem olía á bál verðbólg- unnar", verður að líta svo á, að eytt hafi verið peningum til athugunar á málum sem minni spjöllum liafa valdið í þjóðfé- laginu. Yrði niðurstaða slíkra at- hugana neikvæð, skyldi engan undra þótt kvartað sé vfir töxt- unum, en þá hefur líka skap- ast haldgóður gagnrýnigrund- völlur. Kæmi aftur á móti í Ijós, að ákvæðisvinnutaxtarnir fælu þetta í sér og e.t.v. margt fleira, sem til bóta má telja, eru orð yðar og annarra, sem kvartað hafa yfir ósanngjörnum ákvæð- isvinnutöxtum, ómerk og ekki á rökum reist og gætu þá aliir unað við óbreytt ástand. Kær kveðja, Ámi Brynjólfsson. 26. janúar 1969 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 15

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.