Lesbók Morgunblaðsins - 23.02.1969, Side 1

Lesbók Morgunblaðsins - 23.02.1969, Side 1
<r Þegar Alfred Berhard No- bel, höfundur dynamitsins, var á gamalsaldri beðinn um mynd af sér í bók, sem gefa átti út undir nafninu „Frægir Sví- ar“, svaraði hann: „Ég vil mæl- ast til þess að mynd af mér verði sleppt úr safninu. Ég er mér þess ekki meðvitandi að hafa unnið til frægðar og hef enga ánægju af glamri henn- ar.“ En með erfðaskrá sinni gerði Nobel sjálfan sig að einum frægasta Svía, sem uppi hefur verið. Hin árlegu Nobels-verð- laun í vísindum, læknisfræði, bókmenntum og friðarstörfum, nema hver um sig um 30.000 sterlingspundum og teljast um heim allan hin æðsta viður- kenning. Slíkar þversagnir voru ein- kennandi fyrir þennan þung- íbúna Svía, sem gerðist Ev- rópuborgari. Með uppgötvun- um sínum og viðskiptafyrir- tækjum lagði hann grundvöll- inn að sprengiefnaiðnaðinum og varð þannig beinlinis vald- ur að auknum eyðileggingar- mætti styrjalda. Þó hataði hann styrjaldir og vann ötul- lega að áformum sem binda mættu endi á þær. Hann var piparsveinn og einmani sem fyrirleit allt mannkyn — kall- aði það sérstaka tegund af halalausum öpum og taldi sjálf an sig einn þeirra — en þó trúði hann því að vísindin myndu að lokum skapa full- komna siðmenningu. Hann varð milljónamæringur af eig- in rammleik og þó aðhylltist hann sósíalisma. Beiðni bróður síns, Ludwig Nobel, um að hann semdi sinn skerf til sameiginlegrar ættar- sögu, svaraði Alfred Nobel neitandi. En þegar lagt var að honum, skrifaði hann eftirfar- andi: „Alfred Nobel — vesöld hans hefði mannúðlegur lækn- ir átt að binda endi á strax við fæðingu, við fyrsta org hans hér í heimi. Helztu kost- ir: heldur nöglunum hreinum og er engum til byrði. Megin- gallar: á enga fjölskyldu, er skapillur og hefur meltinga- kvilla. Eina óskin: að vera ekki grafinn lifandi. Höfuð- syndin: tilbiður ekki Mammon. Mikilvægir lífsviðburðir: Eng- ir.“ Nobel var ekki mikill vís- indamaður í þeim skilningi að hann hafi gert undirstöðu upp- götvanir. Snilli hans lá í því að finna aðferðir til að nýta vísindalegar uppgötvanir á hag kvæman hátt. Hann var upp- finningamaður og vísindin á hans dögum náðu ekki yfir stærra svið en svo að hann hafði að mestu leyti yfirsýn yfir það. Hann var sérfræð- ingur i sprengiefnum en fékkst að auki við verkefni eins og aðferðir til blóðgjafa, bygg- ingu gufuvélar og framleiðslu gerfisilkis. Hann fékk einka- leyfi fyrir alls 355 uppfinn- ingum. Hann var lágvaxinn, þrek- legur og feiminn maður, sem eyddi flestum vinnustundum sínum í einkarannsóknarstofu ginni. Hann átti enga oiána vini en gat orðið fjörlegur í viðræðum ef hann hitti ein- hvern sem hann virti. Hann þjáðist af svefnleysi, fengi hatnin hugmynd um miðja nótt fór hann á fætur og til rann- sóknarstofunnar til að reyna hana. Hann var rótlaus maður og átti hvergi raunverulegt heimili, hann hélt sænsku þjóð- erni sínu en dvaldi lengstaf í Frakklandi og Ítalíu. Hann tal- aði og ritaði reiprennandi fimm tungumál — sænsku, rúss- nesku, ensku, frönsku og þýzku. Hann fæddist árið 1833 í Stokkhólmi, þriðji sonur Imm- anuels Nobel, verkfræðings og arkitekts, sem var þá nýorðinn gjaldþrota. Immanuel var einn- ig uppfiinningamaður en ekki með jafn glæsilegum árangri og sonur hans náði síðar. Eftir ó- fúllkomið nám byrjaði Imman- uel á því að teikna hús, þvotta- stöð og brú. Árið 1833 varð hann gjaldþrota vegna elds- voða og beindi nú athygli sinni að efnaiðnaði. Hann keypti gúmmíverksmiðju og fann upp hermannapoka sem hægt var að blása upp og gera úr loftpúða- brú til að leggja yfir ár. Immanuel fluttist til Rúss lands og hóf vinnu við sprengiefni fyrir Keisaraher- inn. Zarinn gaf úit eftirfarandi tilskipun: „Hans Hátign skip- ar svo fyrir að útlendingnum Nobel verði leyft að vinna að ti'lraunum með þær aðferðir, sem hann hefur fundið upp til að eyða óvininum úr töluverðri fjarlægð“. Krím-stríðið færði Immanuel smiðju í Pétursborg með 1000 dýrðardaga. Hann átti verk- smiðju í Pétursborg með 1000 manna starfsliði, og auk sprengiefna voru þar fram- leidd hjól og vélar í skip. Er friður komst á fann hann upp kerfi til upphitunar húsa me'ð heitu vatni í leiðslum, en skyndileg afturköllun stjórnar innar á pöntunum reið honum að fullu og hann sneri álypp- ur og snauður heim til Sví- þjóðar, en þar fann hann upp brossviðstegund og vélbyssu. Hann gekk með eitthvert dul- arfuilt áform í höfðinu, sem harnn skýrði ekki, en átti að gera hann „einvaldan um allt er varðaði stríð og frið um gervallan heiminn næstu ald- irnar að minnsta kosti.“ Gat bann hafa verið að hugsa um atomklofning? Tveir eldri synir Immanuels, Ludwig og Robert, ruddu sín- ar framabrautir í Rússlandi. Þeir opnuðu Baku olíusvæðið í Kákasus og rufu þannig amer- ísku einokunina á olíuverzlun heimsins. Með fjárhagslegri að- stoð Alfreðs gerðu þeir olíu- félög sín að stærstu iðnfyrir- tækjum í Rússlandi. Þeir byggðu fyrstu haffæru olíu- flutningaskipin. Þeir gáfu starfsfólki sínu hlutdeild í hagnaðinum og byggðu handa því fyrirmyndarbæ, sem nefnd- ur var Villa Petrolia. Síðar voru Nobél-olíufélögin gerð upptæk af kommúnistum í bylt- ingunni. Kernskuár sín dvaldi Al- fred í Stokkhólmi en eftir að- eins tvo vetur í skólia fór hann með föður sínum til Pét- ursborgair. Eftir það var menntun hans bundin við einkakennara og sjálfsnám og vafalaust einnig snertingu hans við frjóa og lifandi hugs- un föður síns og bræðra. Þeg- ar hann var 17 eða 18 ára fékk faðir hans þá hugmynd að nota heitt loft í stað gufu til að knýja vélar og var Al- fred sendur til Bandaríkjanna og Frakklands til að afla tækni legrar undirstöðu fyrir hug- myndina. Á þessu stigi málsins var Al- fred engan veginn viss um að hann vildi verða vísindamað- ur. Hann hugsaði um að ger- > ast rithöfundur og skáld á enskri tungu. Hann hafði hrif- izt af verkum Shelleys og alla ævi síðan tileinkaði hann sér lífsskoðun Shelleys, guðleysi, gerbótastefnu og trú á bræðra- 'lag manna. Á meðan hann bjó í París byrjaði hann reyndar að yrkja ljóð á ensku og ýtti það heldiur undir þá þróun, að hann var ástfanginn. Eittihvað fór úrskeiðis með ástina en þar sem einu heimildirnar um það mál er að finna í ljóðum Nobels, er erfitt að átta sig á því. (Ljóðahandritin fund- ust í plöggum hans að honum látnum.) Hann virðist hafa lagt ofurást og ofmat á stúlkuna og verið harmi lostinn þegar hún brást honum á einhvern hátt. ** Það væri tilfinningasemi að halda því fram að þessi reynsla hafi fyllt Nobe'l beiskju ævi- langt — einveru og hugsjóna- þátturinn í skapgerð hans hlýt- ur að hafa verið fyrir hendi — en hann virðist sannarlega ekki hafa gert fleiri tilraunir til að sækja sér hugsvölun í samneyti við aðra. Hann komst aldrei neitt nærri því að kvænast. Áhuga sínum á evrópskum bók- menntum hélt hann óskertum, en skrifaði lítið sjálfur. Vis- indin áttu alit hans starf og þegar hann var hálfþritugur gerðist hann aði'li að fyrirtæki föður síns í Stokkhólmi. r Immanuel Nobel vann um þessar mundir með sprengi- vökvann nitroglycerine, sem Italinn Ascanio Sobrero upp- götvaði árið 1847. Hann var um hundrað sinnum aflmeiri en venjulegt byssupúður, sem þá var eina sprengiefnið í notk- un, en gat varla talizt annað en vísindalegt fyrirbrigði. Að- alvandinn var sá að nitroglycer inið vidli ekki springa nema

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.