Lesbók Morgunblaðsins - 09.03.1969, Page 5
Áður en hann fór, talaði hann
um þau eins og óseðri verur:
ekki menn eins og okkur. Þau
voru af óæðri kynstofni, ekki
göfug eins og við.
Eftir að hann kynntist þeim,
sá hann, að þau voru menn
eins og við, aðeins öðru vísi á
litinn.
Hann sagði mér í bréfum sín-
um, að þau hlæju og grétu eins
og við og væru álíka gáfuð eða
heimsk og við.
Hann hló með þeim, talaði við
þau, söng og skemmti sér. Þau
voru vinir hans og hann ekki
lengur sigurvegarinn en þau
hin herteknu.
Ferðin var löng og herbúða-
vistin enn lengri. Þeir þörfn-
uðust allir félagsskapar og vin
áttu kvenna. Hann hefur sagt
mér, að fyrst hafi það vakið at-
hygli sína, hvað hún minnti
hann á mig. En hvers vegna
elskaði hann hana meira en mig?
Var hún fegurri en ég? Ég dirf
ist ekki að spyrja.
Hann giftist henni og hún
bar barn hans undir brjósti.
Við viðurkennum ekki þessa
hjónavígslu hérna heima. En
hann kallar hana konuna sína
og oft stendur hann við glugg-
ann og starir á stjörnurnar,
sem glampa yfir landinu henn-
ar eins og okkar landi. Hann
horfir samt mest á stjörnuna
hennar á himninum.
Ég hélt ekki, að þau stæðu
okkur jafnfætis. En hún las
honum Ijóð og lék fyrir hann
tónlist, sem vekur trega í brjósti
mér og er þó ólík öllu, sem við
eigum.
Hann segir mér, að landið
hennar sé gjörólíkt landinu
okkar og litbrigðin öll önnur
en hér. Hann sá ekkert furðu-
legt við litinn L líkama hennar
sem var annar en hans.
Ég hlusta á hann þögul, þeg-
ar hann ræðir um hana. Hann
verður að fá að tala til að
gleyma.
Ég skil þjáningu hans og sorg.
Hann elskaði hana eins og ég
elska hann. Ég fékk hann þó
aftur, en hann fékk ekki að
taka hana með heim.
Við viljum ekki kynblend-
inga. Við verðum að halda stofn
inum hreinum.
Þeir sendu hann heim. Hann
fær aldrei að fara þangað aft-
ur. Hann hefur gengið bónleið-
is skrifstofu af skrifstofu og
spurzt fyrir um hana, en þeir
halda ekki skýrslur um þá inn-
fæddu.
Og hann lofaði að koma og
sækja hana áður en barnið
þeirra fæddist. Hann sór henni
það við hennar guð og okkar
guð.
Hún leit aðeins á hann og
sagði svo undur rólega: „Ef þú
kemur ekki, dey ég.“
■ Bréfin, sem hann skrifar
henni eru endursend. Þau komu
öll samtímis og á þau var stimpl
að með rauðu: LÁTIN.
Hann fær ekki að fara, en ég
má fara og hann þjáist, því að
hann veit ekkert um afdrif
þeirra.
Hún sagðist ætla að gefa hon
um dreng, honum líkan með Ijós
græna húð.
Hvorki dökkgræna né hvíta
(— heldur sambland tveggja
heima— þeirra beggja.
Ég ætla að sækja barnið hans
— barnið þeirra — og færa hon
um það. Ég ætla að ala upp
barnið hanS, svo að enginn
nefni það kynblending og það
verður Marzbúi eins og við.
Þá brosir hann við mér og
kyssir mig og ég get afborið
að vera aðeins sú næstbezta
— næst á eftir konunni frá
Jörðinni.
árásarhvöt gegn því, sem við-
kvæmt er.
Mesti bælingavaldur, sem til
er, er innprentunaraðferð við
uppeldi (það-á-að-vera-svona
aðferðin), þá er mest hætta á
misræmi milli eðlis viðkomanda
og hins innprentaða hátternis-
munsturs. Meira samræmi fæst
hins vegar, ef útskýringar eru
látnar fylgja og viðkomandi
hvattur til siálfstjáningar, því
að þá er honum gefið tækifæri
til að samræma með innsæi við-
brögð sín.
Að sama skapi sem mótsagn-
ir miUi siðrænna gilda þjóðfé-
lags og atfertis þegnanna
vaxa, hlýtur einnig að aukast
fjöldi þeirra þegna, sem hafa
greind eða hugrekki til að
horfa í móti hvata geðshrær-
inga sinna í þjóðfélaginu. Á
frumstigi er hugarástand hins
bælda vanlíðan og geðillska,
hálfdulið er það gremja, en
þegar Ijóst er, að tilefnið er í
umhverfinu, er það réttlætis-
krafa. Réttlætiskrafa er reiði,
reiðin er starfandi árásarhvöt,
og maður, sem finnur til rétt-
látrar reiði að því er hann sjálf-
ur telur, á ekki aðra færa leið
fyrir höndum, en leita hins já-
kvæða innihalds þess siðræna
gildis, sem vakti réttlætiskröfu
hans. Réttlætiskrafa er ætíð
gerð í nafni siðræns gildis, (en
ekki nafni 3jálfs sín eins og
hins vegar valdsælni), hún er
afstæð og miðuð við hið sið-
ræna gildi. Ef réttlætiskrafa er
jákvætt fyribæri hlýtur því hið
siðræna gildi í sjálfu sér að
vera það einnig. Réttlætiskraf-
an snýst gegn orsök sinni, ef
hún álítur hið siðræna gildi
illt í sjálfu sér, og maðurinn
hrekkur aftur inn á frumstig
innhverfrar gremju (hins veg-
ar, ef hann er nógu sterkur
persónuleiki, getur hann blásið
sjálfan sig upp á öngstræti
valdsælninnar).
í fljótu bragði virðist hann
eiga kostar völ fyrir utan að
skyggna gildin í leit að hinu
jákvæða innihaldi þeirra, nefni
lega að telja þau ill í sjálfu
sér og stefna að byltingu í
samvinnu við aðra með fyrir
augum framtíðarskipulag, þar
sem allar mótsagnir og bæl-
ingar hafa verið afnumdar. Að
hinum sterkari öflum verði
þannig beitt til að byggja upp
veröld, þar sem næmleikinn nái
að blómstra óhindrað. Að bylt-
ingin verði hið virka svar
hei'ldarinnar við bælingu ein-
staklingsins. En árásarhneigð
byltingarmanna var upphaf-
lega vakin af sárindum, sem
mótvæg harka olli næmleik
þeirra og árásarhneigð þeirra
er orkan í bardagafýsn þeirra
og aflið, sem gerir þeim fært
að bylta ríkjandi skipulagi.
Orkugjafinn; hin hinzta mót-
sögn og einnig hin frum-
lægasta: næmleiki gegn hörku,
yrði ekki yfirstigin, með henni
yrði byltingarríkið að rísa og
hverfa. Byltingin sjálf verður
hið endanlega val byltingar-
mannsins. Hann verður eftir í
eyðimörkinni hjá Móses.
Skýrt dæmi er þróun mála í
Sovétríkjunum frá 1917: Við
upphaf þess t.ímabils voru mót-
sagnir innan þjóðfélagsins í al-
gleymingi. Af kynslóð einræðis
og hjámanna spruttu bylting-
armenn, sem sprengdu af sér
ríkjandi skipulag í nafni rétt-
lætishugsjóna sinna. Draumur-
inn var framtíðarríki, þar sem
allir væru jafnir; nýju skipu-
lagi var komið á, himnastiga til
þessa framtíðarríkis. Áherzla
fluttist af mönnum yfir á
skipulagið, ag menn formrunnu
innan þess. Vinnusemi varð
stærsta dyggðin; bæn við alt-
ari sjálfvirkrar sögu með að
umbun og heilagan anda fram-
leiðninnar. En hér sem annars
staðar var þörf jarðneskra
stjórnanda, og leiðtogarnir
héldu áfram að vera til, en
nú voru þeir til vegna hjá-
mannanna. Og sagan opin-
beraði réttlæti sitt í leiðtogun-
um, sem laun fyrir vinnusemi
þjónsins. Um tíma var þjóðin
óðvirk. Síðan tók leiðtogunum
að fækka en blésu að sama
skapi út hver einstakur. Og
hjámennirnir smækkuðu, unz
leiðtoginn var orðinn einn. Unz
svartur risi skaraði andlits-
lausum mönnum að eldkötlum
goðgerðs skipulags.
Bylting er framkvæmd krafa
manna um bætta sambúðarað-
stöðu. (Andstætt uppreisn, sem
getur verið einstaklingsbundin
og alræðisleg, grundvölluð á
stjörfu hatri). Byltingin er hug
lægt fyrirbæri, kjarni hennar
eru leiðtogarnir. Þeir, sem bylt
inguna gera, eru frumkvæðis-
menn, en einnig eftirhermu-
mennirnir, sem hrífast með. Sá
maður, sem telur að sambúð-
araðstaða manna eigi að batna
úr því, sem hún er, telur þar
með, að maðurinn sé meira
virði en svo, að ríkjandi þjóð-
lífshættir séu honum samboðn-
ir. Hann sjálfm- eða þau öfl
í honum, sem geta, að því er
hann te'lur með framkvæmd
sinni, leitt til úrbóta, hljóta af
hans hálfu að vera undirorpin
sama virðingarmati. Það er að
segja byltingarmaður hefur
sjálfsvirðingu og í nafni henn-
ar er byltingin gerð. Komm-
únismi gerir ráð fyrir að af
örbirgð samfslags leiði stjórn-
málalegt velferðarríki fyrir
mátt sagnlegrar framvindu, sem
ekki eigi uppruna sinn í frum-
kvæði einstak'inga. Samkvæmt
honum er maðurinn skapaður
af kringumstæðunum og sjálfs-
virðing hans þá einnig. Hvaða
augum, sem slíkur maður líti
kenndir sínar, sæi hann þær
sem afleiddar af umhverfi
hans, og har.n því óhæfur til
að leggja mat á sjálfa sambýl-
isaðstöðu sína. Slíkur maður
gerir ekki byitingu. En í sam-
félagi, þar sem þessi lífsskoð-
un er almenn. skapast vinnu-
friður til félagslegra úrbóta og
áætlanafylgni og hægfara raun
gjörð ve'lferðarrikisins. Það er
hin raunverulega bylting leið-
toganna. Við framkvæmd komm
únismans er lífsskoðun hans
felld með innprentunaraðferð-
um í huga manna frá upphafi,
fyrst með goðsögn um vissan
byltingaratburð inni í framtíð-
inni og hugsjónaeldur manna
þannig settur í glóðarker, en
eftir því sem persónumótunin
og eðlislægir hæfi'eikar við-
komanda leiða betur í ljós leið-
togahæfi hans, er honum veitt
af þeim leiðtogum, sem fyrir
Framh. á bls. 13.
9, marz 19W_____________________________________________ LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 5