Lesbók Morgunblaðsins - 09.03.1969, Qupperneq 8
Arbæjarhverfi, talandi dæmi um flatneskjuna í skipulagi hinna nýju hverfa Reykjavíkur.
ar og hinsvegar að veita þeim
sem bezt skýli fyrir reffni,
kulda og skammdegismyrkri.
Borgarmyndin hér ætti því eðli
lega að verða önnur en sú sem
í löndum, sem eiga sér milda
veðráttu og blíða skógivaxna
sveit að framtíðarborgarlandi.
Svo hefur þó ekki orðið. fs-
lendingar hafa lært að byggja
hús sem vernda íbúana fyrir
náttúruöflunum, hinsvegar hef-
ur þeim ekki tekizt að mynda
hverfi sem gera það. Hér eru
einnig hús, sem njóta útsýnis
og sólar, en aðeins einn hverf-
ishluti sem skipulagður hefur
verið í því markmiði, að veita
sem flestum íbúunum sem mest
af hlunnindum borgarstæðis-
ins.
Af skiptum sínum við veðr
ið, borgina og fjallahringinn,
eru þessi atriði fullkunnug
Reykvíkingum, og margir þeirra
hafa ritað og rætt um mistök
þau, sem gerð hafa verið á und-
anförnum árum í þessum efn-
um. Við vitum að nokkrar
beztu útsýnisbrekkur höfuð-
borgarsvæðisins eru ýmist ó-
byggðar eða ætlaðar undir iðn-
aðarhverfi. Aðrar hafa verið
lagðar undir strjála einbýlis-
húsabyggð, sem veita aðeins fá-
um útvöldum hlutdeild í fjalla-
hringnum. Undantekningin er
aðeins ein: Það er þyrping
stallaðra raðhúsa sem Sigvaldi
Thordarson teiknaði í Kópa-
vogi á árunum. Nú munu menn
segja: við höfum lært af mis-
tökunum og þau verða ekki
endurtekin. Þó er það svo, að
alveg nýlega var ákveðið í
fullu samræmi við aðalskipu-
lag Reykjavíkur, að ein glæsi-
legasta brekka bæjarlandsins
skyldi verða óbyggð, og um
leið er ákveðið að byggja í
stórum stíl í verstu mýrarfen-
um svæðisins. Brekka þessi
liggur vestan á Breiðholts-
hverfi, og verður berja-
mór fyrir 3000 börn nærliggj-
andi hverfa. Sigvaldahverfið og
fjöldi erlendra dæma sýna, að
hægt liefði verið að byggja
þarna liundruð húsa eða íbúða
og gernýta þar aðalkosti borg-
arlandsins. Slík dæmi eru hins
vegar fátíð í heimalandi ís-
lenzks skipulags, Danmörku,
og er þar sennilega að finna
skýringuna á þcssum merkilegu
ákvörðunum.
I slenzkt loftslag hefur
mótað gróðurfar landsins, og
ARKITEKTtJR 1
Yfirbyggt Aðalstræti fyrir gangandi vegfarendur.
Team Vos, Japan.
Björn Ólafs, arkitekt
Landslag, loftslag og
skipulag
Hugleiðing um íslenzkan veðurvanda og danskœttað skipulag
fveykjavík á sér fegurra
borgarstæði og erfiðari veðr-
áttu en aðrar borgir í Evrópu.
Reykjavík á sér því tvö hlut-
verk sem í mörgum borgum
eru óþörf eða vart til, þau að
veita sem flestum íbúum sem
mestan unað af fjallahring,
vogum og sundum borgarinn-
Mjög þétt, sambyggð hverfi nýta sól og
útsýni til fullnustu.
Michael Lyel: Hverfi á suðurströnd Eng-
lands.
Innangengt er úr íbúðum í verzlanir, skóla og samkomustaði í þessu liverfi
Eskines í Norður-Svíþjóð. A myndinni sést miðhluti hverfisins og lokaðir
gangstígar á neðstu hæð íbúðarhúsa í baksýn.
9. marz 1969
8 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS