Lesbók Morgunblaðsins - 09.03.1969, Síða 10
A
i1 llir kannast viS óper-
una „Ævintýn Hoffmanns" eft-
ir Offenbacn. Hitt vita fæstir
né hugsa yfirieitt út í, hvort
þessi Hoffmann hafi raunveru-
lega verið til. En það var hann
svo sannarleg ).
E.T.A Hoffmann var uppi
1776—1822. Hann var mikill
hljómlistarmaður, tónlistarfræð
ingur og afksstamikið tónskáld.
Samdi óperur, sinfóníur, kant-
ötur, sónötur o.s.frv. Hann var
einn af snjöilustu og andrík-
ustu tónlistargagnrýnendum og
rithöfundum um tónlist, sem
uppi hafa varið, og er talinn
upphafsmaður nútíma tónlistar-
gagnrýni. Hann mat þau sam-
tímatónskáld mest, sem hæst
eru metin í iag. Hann var 15
ára, þegar Mozart dó, en 6 ár-
um yngri en Beethoven, sem
skrifaði Hoffmann 1817 lotning
arfullt þakklætisbréf fyrir skrif
hans um verk sín. Hoffmann
var listmálar’, en enn meiri
teiknari, sérstaklega andlits-
mynda, og frabær skopmynda-
teiknari. En frægastur varð
hann fyrir ritstörf sín. Var
hann orðinn víðfrægur í Ev-
rópu, áður en hann lézt, 46 ára
gamall, en um hann mynduðust
fljótt furðusögur, og slíkar
voru einnig flestar sögur þessa
hugmyndaríka manns. Hann var
lærimeistari Edgars Allan Poe
og fjölmargra rithöfunda, ekki
sízt franskra, og tónskálda svo
sem Schumanns, Brahms og
Wagners, sem dáði hann og
dýrkaði og sótti til hans hug-
myndir og eíni í rit- og tón-
smíðar sínar, sérstaklega í
„Tannhauser“ og „Meistara-
söngvarana".
Loks má geta þess, að Hoff-
mann var iögfræðingur að
mennt og gengdi dómaraembætt
um alla tíð nema þau ár, sem
Napoleon flæmdi hann og aðra
prússneska embættismenn frá
störfum, enda hataði hann Na-
poleon. Hann var mjög hæfur
embættismaður, samvizkusamur
og skyldurækinn, enda þótt
hann væri rnikill samkvæmis-
maður og verði mörgum síðkvöld
um og nóttum i drykkju og sam
ræður í góðvinahópi, sem hann
gerði heimsfrægan undir nafn-
inu „Serapionsbræður". Kráin
sem þeir hittust í, Der Wein-
keller von Lutter & Wegner,
naut þeirrar t'rægðar í 125 ár,
eða þar til hún var lögð í rúst
í orustunni um Berlín 1945.
Jú, Hoffmann var raunveru-
lega til.
E kkert hefur verið þýtt á
íslenzku eftir Hoffmann eða
neitt, sem um hann hefur ver-
ið skrifað, að því er ég bezt
veit. Hið eina sem ég hef lesið
á íslenzku um Hoffmann var
fyrir mörgum árum í leikskrá
kvikmyndahúss. sem sýndi
mynd, er byggð var á óperu
Offenbachs, . Ævintýri Hoff
manns“. Sagði þar, að furðu-
sögur Hoffmanns væru nú
gleymdar, og það fyrir löngu,
en ljóð hans lifðu.
Þótt Hoffmann væri fjölhæf-
ur og margt til lista lagt, þá
stundaði hann alls ekki ljóða-
gerð. Hið eina, sem til er eftir
hann í áttina við slíkt, er rím-
að grín, sem hann setti saman
um samferðamenn sína í Könings
berg, þegar hann var 19 ára,
og kallaði það „Grímudansleik-
inn“. Vissulega bráðfyndlð og
vel gert, en um það hefur leik-
skrárhöfundur vafalaust ekk-
ert vitað.
Ég las nokkrar sögur Hoff-
manns í sænskum og dönskum
þýðngum fyrir 20 árum og
fékk af einhverju tilefni áhuga
á ævi þessa manns, en hún
er mesta furðusagan, sem hann
samdi. Hefur Hoffmann æ síðan
verið mér hugstæður. Fyrir
skömmu endurnýjaði ég kynni
mín af honum, og var tilefnið
það, að mér barst í hendur ný,
sænsk útgáfa af sögu hans
„Gluck riddari". Var það fyrsta
tónlistar-smásaga hans, en
hann var frumkvöðull að slíkri
smásagnagerð, sem náði feikileg
um vinsældum, enda varð hann
í þessu efni iærimeistari fjölda
rithöfunda víða um lönd.
Sögur Hoffmanns eru ekki
gleymdar, og saga hans sjálfs
gleymist sein+, þeim er kynnast.
Það segir einnig sína sögu, að
fyrsta bókin um ævi Hoffmanns
kom út árið eftir að hann dó.
Var hún skrifuð af nánum vini
hans, en ritlaun öll skyldu
ganga til ekkjj Hoffmanns, sem
lét ekkert eftir sig handa henni
nema erfðaskrána. En henni
ágætlega, þvl að verklð var
sýnt árum saman. Upp úr þessu
verki samdi svo hinn afkasta-
mikli óperu- og óperettutexta-
höfundur, Jules Barbier, text-
ann við óperu Offenbachs, „Æv
intýri Hoffmanns." Þannig er
óperan til komin og verður að
segja, að Hoffmann hafi lagt
a'llnokkuð til málanna.
„Ævintýri Hoffmanns" varð
vinsælasta ópera Offenbachs, en
hún var frumsýnd við mikla
hrifningu í París 10. febrúar
1881. En hennar naut ekki Off-
enbach fremur en Hoffmann,
því að hann lézt 4 mánuðum
áður. Væntanlega hafa erfingj-
ar Offenbachs notið góðs af
verkum hans, en Michalina Hoff
mann var fátæk ekkja í 37 ár.
Ópera Offenbachs er glöggt
dæmi um þau áhrif, sem Hoff-
mann hafði á aðra, um verð-
mæti, sem hann lét eftir sig, en
verða ekki ralin upp í neinni
erfðaskrá.
E rnst Theodor Wilhelm
Hoffmann fæddist í Könings-
berg í Austur-Prússlandi árið
1776. Nafn hans er þó alls stað-
ar skrifað E.T.A. Hoffmann að
Eftir Svein Ásgeirsson, hagfrœðing
- FYRRI HLUTI -
Sjálfsmynd af Hoffmann.
Skopteikning eftir Hoffmann við sögu Camissos af Pétri
Skemli: Pétur á ferð sinni til Norðurpólsins.
jrhlt
þótti svo vænt um hana, því
að hann lýsti því svo einlæg-
um orðum, hve mikils hann mæti
hana og væri henni þakklátur
fyrir 20 ára samfylgd í gleði
og raun, fyrir ást og tryggð.
-Ritverk Hoffmanns voru
fljótlega þýdd á ensku, frönsku
og ítölsku, sænsku og dönsku,
en mestum vinsældum munu
sögur hans hafa náð í Frakk-
landi. Áhrif hans á franska rit-
höfunda voru mikil og greini-
leg — Musset og Gautier dáðu
hann mjög — og frönsk tón-
skáld svo sem Beriioz og Offen
bach. Reyndar var Offenbach
þýzkur að uppruna, fæddur í
Köln, en kom til Parísar 14 ára
og bjó þar síðan.
Árið 1851 var frumsýnt í
París leiksviðsverk, sem þeir
Michel Carré og Jules Barbier
höfðu samið upp úr þrem sög-
um Hoffmanns, en gerðu höf-
undin sjálfan vegna þess ævin-
týraljóma, sem um nafn hans
lék, að aðalhetjunni og tengdu
atriðin þannig saman. Var þetta
vel til fundið og heppnaðist
fyrirlagi hans. Ástæðan var sú,
að snemma á listabraut hans
misritaðist nafn hans þannig,
að A kom i staðinn fyrir W,
en Hoffmann leiðrétti það á
þann frumlega hátt að taka upp
nafnið Amadeus í heiðurs skyni
við Wolfgang Amadeus Mozart.
Hoffmann var kominn af lög
fræðingum, málflutnings- og em
bættismönnum í nokkra ættliði.
Faðir hans var léttúðugur, ó-
reglusamur og stórgáfaður, en
móðir hans svo smámunalega
reglusöm, að eekk brjálæði næst
Lauk hjónabandi þeirra með
því að eiginmaðurinn strauk af
heimilinu, þegar Ernst litli var
3ja ára. Sneri móðirinn þá aft-
ur til foreldrahúsanna, þar sem
Ernst hlaut allóvenjulegt upp-
eldi.
Það er af föður hans að segja,
að hann fluttist til Insterburg
með annan son sinn, og gaf
sig þar aðallega að drykkju.
Lauk hann þar ævi sinni í vol-
æði 15 árum síðar. Hoffmann
var kominn í háskóla, þegar
hann frétti lát föður síns, og
þaðan skrifaði hann: „Margir
hafa dáið þetta ár, sem ég hef
10 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
9. marz 1969