Lesbók Morgunblaðsins - 04.10.1970, Qupperneq 1
POPLIST -
STOFULIST -
HVERSDAGS-
LIST
Nútíma myndlist er lítt
bundin kreddum og
kennisetningum. Hún
hefur snúið sér aftur að
Eiiin ágætasti myndListarmaður samtímans er R.B. Kitaj. Verk hans eru í anda popstefnunnar og
minna á plaköt, eins og raunar margt í myndlist síðustu ára.
manninum sem
viðfangsefni og opnað
dyr til allra átta í
óstöðvandi leit
Eftir Gísla Sigurðsson
Maðurinn sem yrkisefni, en meðferðin er frjálsleg. Þetta er
naumast poplist, en fremur í anda súrrealismans, sem margir
nútímamálarar leggja rækt við. Stundum getur þó verið svo
mjótt á mununum, að erfitt er að segja um hvort popstefnan
eða súrrealisminn ræður meiru. Myndin er eftir Paul Wunderlich.
1
Myndlistin hefur upp á síð-
kastið verið að draga dám af
óteljandi hlutum úr samtíman-
um. Auglýsingar og plakatlist
hafa lagt henni nokkuð til, en
einnig kvikmyndir og ljós-
myndatækni. Poplistin var að
nokkru leyti afkvæmi skilta-
málara, sem máluðu hrikalegar
tertur eða hamborgara á skilt-
in meðfram þjóðvegum Banda-
rikjanna. Síðan kom oplistin,
tilraunir með optisk áhrif af ó-
þaagilegum litum og flötum, sem
hreyfast fyrir augum manns.
Manneskjan sjálf kom inn á
sviðið að nýju, eftir að hafa
staðið utanvið sem bannvara
um hríð. Aðeins kjarkmenn eins
og Picasso höfðu leyft sér að
mála „fígúrur", meðan óhlut-
læga myndlistin lagði undir sig
heiminn. En smám saman komu
fleiri og fleiri og hófu mann-
inn sjálfan til vegs og virðing-
ar. Manninn sjálfan og ekki
sízt aðskiljanleg vandamál hans
og aðsteðjandi ógnir. Sumir
hafa haldið sig við þetta hey-
garðshorn, menn eins og Fran-
cis Bacon; mannheimur hans er
i senn dularfullur og þar læð-
ist alltaf einhver lymskufull
ógn. Einhvern tíma hefði verið
sagt, að slíkt væri of bók-
menntalegt. En það var meðan
myndlistin átti að vera flatar-
kúnst og skreytingar.
Uppreisnin gegn þvi viðhorfi
varð mjög víðtæk. Menn heimt-
uðu frelsi, einnig á þessu sviði.
Og nú í nokkur ár, hefur mikill
hluti myndlistarinnar í heimin-
um einkennzt af tilraunum.
Unga kynslóðin hefur tekið
Ýktur natúraUsiui er eitt þeirra bragða, er poplistamenn beita og sést á myndinni að neðan.
Hún er eftir Þjóðverjann Otmar Alt og heitir „Mótorhjólreiðamaðurinn“.
j
<■