Lesbók Morgunblaðsins - 20.06.1971, Side 8
Það þarf að finna upp nýja aðferð til að kynna
málara. Við getum litið á þá sem uppfinningamenn
aðeins að svo miklu leyti sem þeir hjálpa okkur að
finna nýjar leiðir til að sjá og þar með til að lifa,
skrifa og hugsa á nýjan hátt. Málaralistin er ekki,
hún getur ekki lengur verið það sem hún áður var:
hrein birting þekkingar, smekks og nœmleika. Hún
tekur nú þátt í menningarleiknum af ögrandi þrótti
og óstýrilæCi, sem sviptir dulúðinni af þeirri heldur
viðhafnarlegu og hlálegu hugmynd, sem við gerum
okkur enn um hana. Með tilkomu dadaismans og
upphafi surrealismans erum við að komast að raun
um að málverk getur komið í stað yfirlýsingar og að
hugsýn málara takmarkast ekki við það eitt að raða
litum á léreft á þann veg, að fagurfræðingar verði
frá sér numdir og hrópi upp um ,,mikla hæfileika“ ef
ekki ,,snilligáfu“.
Málaralist hefur átt svo ríkan þátt í hugsun þeirra,
sem eins og ég sjálfur hafa fylgzt með þróun henn-
ar allt frá lokum síðustu heimsstyrjaldar, að hún
mótar hinar hversdagslegustu röksemdir og dómá.
Heimurinn, sem við lifum í, þar sem óskyldustu hug-
myndir — afturhald og byltingarandi, vísindi og dul-
speki, fjölhyggja og einstaklingshyggja — framkalla
óvænt og ruglandi áhrif á öllum sviðum mannlegra
athafna og starfs, er heimur, sem að öllu leyti lætur
stjórnast af kerfi „alheimsmyndarinnar", það er að
segja kerfisbundinni niðurröðun ímynda, staðreynda,
hugmynda og hluta, sem skildir eru og meðteknir
hver í sínu lagi, en sem engu að siður knýja okkur
með mergð sinni og sjálfum óskyldleika til að skynja
sig og túlka í heild. Með þvi að setja á sama dúkinn
myndir, sem í veruleikanum höfðu aðeins mætzt af
slysni, opinberar Erro oikkur þetta heimskerfi og um
leið sjálfan sig sem einn hinna „nútímalegustu" með-
al málara -— einn þeirra, sem „nærstaddastir" eru í
þessum síðari hluta tuttugustu aldarinnar.
Leiðabók málara eins og Erro er í fullu samræmi
við hugmyndir og merkustu þjóðfélagslega og póíi-
tíska atburði hvers tíma. Hann er óþreytandi ferða-
maður, virðir allt fyrir sér forvitnum augum, skráir
og geymir hjá sér allt sem hann sér á ferðum sínum
og leggur fram í málverkum sínum niðurstöðu sjón-
reynslu sinnar: ekkert fer framhjá honum, hvorki
auglýsingaspjöld né myndasögur, barnabækur, vís-
indarit, kvikmyndir, frímerki, niðursuðuvörur eða
lyfjaumbúðir, ekki heldur hlutirnir sjálfir: vélar,
skurðlækningatól, flugvélar, bílar, vopn, rafeindatæki,
listasögubækur. Hvar sem hann fer viðar hann að
sér hundruðum gagna, sem hann safnar og flokkar I
skúffur og skápa, en úr þeim gerir hann síðan safn-
ERRO
(Guðmundur Guðmundsson)
og staða
hans í
samtímanum
Eftir Alain Jouffroy.
Greinin er rituð fyrir
svissneska listtímaritið
Art ínternational og birtist þar.
Inscape, 200x300 cm.
myndir. Þær fyrstu, sem í sjálfu sér boða pop-listina,
eru frá árinu 1959. Af víðfeðmi forvitni hans og þekk-
ingar var árið 1960 hægt að spá því, að hann yrði ein-
hvern tíma með merkustu málurum siðari helmings
tuttugustu aldarinnar. Þegar margir málarar tak-
mörkuðu sköpunarþrá sína við þröngt svið tilbrigða
um eitt og sama stef, hafði Erro vit á að víkka hinn
myndræna sjónhring til alls, sem kallað hefur verið
„siðmenntun ímyndarinnar" og skapa sjálfum sér
verksvið, sem kerfisbundið innbyrðir öll þau svið, sem
myndin nær til: mannslikamann, liffærafræði, lækn-
isfræði, grasafræði, dýrafræði, iðnað, tizkusýningar,
stjórnmálaáróður, sögu og landafræði. Það kemur
því ekki á óvart þótt Erro hafi með atorku — hann
er ásamt Picasso einn afkastamesti málari tuttugustu
aldarinnar — aflað sér þegar þrjátíu og átta ára gam-
all viðurkenningar sumra gagnrýnenda og safna sem
einn af hinum fáu miklu málurum þessarar kynslóð-
ar. Þeir, sem hættir til eða kunna að örvænta um af-
drif málaralistarinnar, gleyma eða vilja gleyma hin-
um miklu afrekum hans. En i framtiðinni verður
ógerningur að ganga fram hjá þeim. Verk hans eru
ekki eingöngu samrunastaður hvers konar upplýs-
inga, heldur eru þær með beztu birtingum skopskyns,
sem til eru á sviði listarinnar.
Annað ópið, 1967.
Regnbogasilungurinn heilaþveginn, 1967.
■
'■ '
8 LESBÓK MORGUNBLABSINS
20. júní 1971