Lesbók Morgunblaðsins - 04.03.1973, Síða 14
GRATEFUL Dead er ein af þekkt-
ustu hljómsveitum í Bandaríkjun-
um. Nánar tiltekió eru þeir frá Sau
IFrancisco. Eang: frægasti meðlim-
ur hljómsveitarinnar er gítarleikar-
iim Jerry Garcia. Hann er talinn
einn bezti gítarleikari heimsins í
dag:. Garcia stælir George Harrison
mjög:, bæði í söng: or grítarleik og:
er það ekki leiðum að líkjast. Sam-
fara því að vera í hljórpsveitinni
hefur hann gefið út sólóplötur og
Ier einnig eítirsóttur af öðrum lista
möunum sem eru í plötuhugleiðing-
um.
Jerry Garcia hefur spænskt, írskt
og sænskt blóð í sfeðum og skyldi
því engan undra þó þvílík blóð-
blöndun geri manninn hálf undar-
legan, en það er hann óncitanlega.
Fyrir það fyrsta er hanu forfali-
inn eiturlyfjaneytandi og þar að
DEAD
auki ekki ókunnur fangageymslum
Ameriku og Evrópu. Hefur lifnað-
ur lians og félaga hans oft komið
illa niður á hljómsveitinni. Er
skemmst að minnast ummælu
Nicky Hopkins er liann lét þau orð
falla að helzta ástæðan fyrir þvú
að hann vildi eklti spila með banda
rískum hljómsveitum væri sú að
þær væru flestar á kafi í eiturlyfj-
um og félagsskap slíkra kærði
hann sig ekki um og var Grateful
Dead meðal þeirra hljómsveita er
hann taldi upp.
En hvað sem því líður er Grate-
ful Dead mjög góð hljómsveit og
Jerry þeirra beztur og skulum við
vona að þeim takist að segja skilið
við þann ófögnuð sem eiturlyfin
eru áður en þau verða þeirra bani,
en slíks v’erður ekki langt að bíða
haldi sem horfir.
gö.
UNDIR nafninu Olsen hafa tveir
danskir bræður gert garðinn fræg-
an um alla Skandinavíu. I»eir eru
nokkurs konar danskir Magnús og
Jóhann, ef svo má að orði komast,
en þeir heita liins vegar Jörgen og
Niels Olsen. Eina stóra plötu hafa
þeir bræður sent frá sér og heitir
hún einfaldlega Olsen. Plata þessi,
sem að mínu viti er allgóð, hefur
selzt í miklum upplögum um öll
Norðurlönd, en ekki hef ég séð
hana í hljómplötuverzlunum hér-
lendis og er það von mín að á því
verði ráðin bót hið snarasta, því
allt of lítið er um að góð popp-
tónlist frá frændþjóðum okkar sé á
boðstólum hér. Vinsældum þeirra
bræðra í Danmörku má líkja við
vinsældir Bjögga á sfnum tíma.
Jafnvel hefur gengið svo langt að
ungar stúlkur hafa framið sjálfs-
morð af þrá til þeirra bræðra. Fyrr
má nú rota en dauðrota, og ekki
meira um Olsen. Olsen Olsen.
gö.
Gamlar
íþrótta-
myndir
Á árunuin niillj. 1945 og 1950
vaknaði mikill áhugi á frjálsum
íþróttum hér á landi og: höfum
við ekki átt betra iandsUð í
frjálsum íþróttum en í lok
þessa fimm ára skeiðs. Óhætt
er að segrja, að almennt var þá
fylgzt með keppni af meiri
áhuga, t.d. á Evrópumeistara-
mótinu 1946 og fyrstu Olympíu-
leikunum eftir stríðið, árið 1948
i London.
Á þessiun árum var Mc Don-
aid Bailey frá Trinidad einn
bezti spretthiaupari lieimsins.
Hann var léttvaxinn blökku-
maður með faUeg:an og fyrir-
hafnarlítinn hlaupastil. Áhuga-
menn um frjálsar íþróttir, sem
fylgdust með á þessum tíma,
muna ugglaust, þegar Mc Don-
ald Bailey kom til íslands og
keppti á Melavellinum. fþrótta-
mönnum þótti mikill. fengur í
að fá þennan fræga mann til
keppni og í fórum Morgun-
blaðsins er m.a. myndir af hon-
um, þar sein hann æfði í gamla
iR-húsinu með okkar beztu
mönnum. I keppninni á Mela-
vellinum sigraði Bailey örugg-
lega eins og raunar hafði verið
talið víst, en Clausensbræður,
þá ungir að árum, veittu hon-
um verðuga keppni. Efri mynd-
in sýnir þá koma í mark, en á
neðri myndinni eru þeir á verð-
launapalli.
Samkvæmt nýlegri skrá, sem birt var i íþróttafréttum
Morgunblaðsins, hafa samtals 25 fslendingar hlaupið 100
metra unrijr 11 sekúntlum við löglegar aðstæður. fslands-
metið á Hilmar Þorbjörnsson, lögregluþjónn, og gæti
orðið erfitt að bæta það. Myndin að ofan er tekin af
Hilmari í keppni á Melavellinum sumarið 1956, en ári
síðar setti hann metið, 10,3 sek. I>að er með okkar beztu
afrekum i l’rjálsum íþróttum. Þegar svo mjög er farið
að nálgast 10 sekúndurnar, nuinar mikið um hvern
tíundahlutann og til að bæta met Hilmars yrði að ná
sama árangri og hinn frábæri Jesse Owens náði beztum
á Olympíuleikunum í Berlín 1936. Samkvæmt likindalög-
málinu gæti dregizt töluvert að þetta ágæta spretthiaups-
met Hilmars verði bætt.