Lesbók Morgunblaðsins - 24.02.1974, Blaðsíða 2

Lesbók Morgunblaðsins - 24.02.1974, Blaðsíða 2
Blá maddonna. Abbeseníu. Það er alkunna, að allt er á hverfanda hveli og flest breytingum undirorpið. Sumu hefur þó mátt treysta, t.d., að jólin eru í lok desem- ber ár hvert. Þess vegna þótti það góður brandari í Deliríum búbonis, er rætt var um að fresta jólunum! Og nú eru blessuð jólin afstaðin einu sinni enn, og þau koma til allra þeirra, er við þeim vilja taka, hvar sem þeir eru í heiminum. Þeir eru sannarlega margir, — en ekki allir vilja halda jólin í desember. Hér í Ethiophiu eru jólin 7. janúar og þeir telja, að ein- mitt þá hafi Jesú fæðst. Reyndar er hér annað tíma- tal. Það eru 13 mánuðir í árinu og þess vegna eru þeir ekki komnir lengra en til árs- ins 1966! Það er notalegt að yngjast skyndilega um 7 ár! Og nýja árið hér byrjar 11. september. Semsé — nú eru jólin af- staðin — og jól í vændum. Það vardálítið skrítin reynsla að halda sín fyrstu jól í sól, fjarri skammdegi, snjó og öðru því sem jólum tilheyrir heima. Skrítnara var þó að halda jól næstum því ein- angrað frá öðrum í samfé- laginu. Það var enginn ytri jólaundirbúningur í borginni, engar auglýsingar né skreyt- ingar, utan fáeinar verzlanir sem verzla helzt við útlend- Jólakort eftir listamann frá inga klístruðu bómullar- hnoðrum i gluggana — trú- lega jólasnjór! Við ókum heim frá aftan- söngnum á aðfangadags- kvöld, og sólin var að setjast. Jólasálmarnir ómuðu enn í huganum, en á götunum virt- ist enginn gera sér grein fyrir, að það voru jól — reyndar aðeins okkar jól. Síðan dimmdi og himinninn var dökkblár og stjörnubjartur, fólkið sem við mættum hafði sveipað um sig „gabi" skikkju sinni, það varð sval- ara og litlir múiansar komu töltandi með byrðar sínar. Á einum sat ung kona og mað- ur gekk við hlið henni. Þau voru auðsjáanlega vegmóð. Voru þetta María og Jósef? Var það ekki í nákvæmlega slíku umhverfi, sem fyrstu jólin áttu sér stað? Fátæk, vegmóð, þyrst leituðu þau náttstaðar eftir heitan dag og stjörnur lýstu. Var þetta „jólalegt" um- hverfi, fremur en snæviþakin grenitrén, hestasleðar og jólakarlar eins og einkenndi svo mjög jólakortin sem við fengum? Og ungu hjónin héldu leið- ar sinnar og vissu ekki, að þau eru kannski María og Jósef. Og við — erum við einmitt ekki líka María og Jósef — ef við tökum á móti jólunum, búum Jesúbarninu stað hjá okkur, þegar það kemur? Arni Óla • • Ornefna- sögur HUNANGS- HELLA Innan við Ósabotna í Höfnum á Reykjanesi, eða við suðausturhorn þeirra og rétt hjá gamla veginum milli Hafna og Keflavíkur, er hella ein mikil, er nefnist Hunangshel la. Örnefni þetta er einkenni- legt og munu nú gleymd tildrögin að því, að það var gefið upphaflega. En þjóð- sagan hefir þar hlaupið undir bagga, eins og oftar. Því að mönnum finnst að hvert örnefni verði að eiga sína sögu. Og nú er það þjóðsagan sem gefur ör- nefninu gildi, og er hún á þessa leið: —- Einu sinni lagðist finngálkn á sauðfé Hafna- manna og annarra þar nærlendis. Hélt það sig mest umhverfis Osana, sem svo eru kallaðir, og gerði mönnum mikið tjón. Reyndu menn á allan hátt að drepa finngálknið, en tókst ekki. Gekk svo lengi, þar til loksins maður einn, sem vissi jafnlangt nefi sínu, hitti upp á því, að hann makaði helluna við Ósabotna með hunangi. Vissi hann að finngálkn er mjög sólgið i sætindi, helzt hunang. Síðan lagðist maðurinn í leyni, skammt frá hellunni. Dýrið rann á hunangslyktina og fór að sleikja helluna. Skaut þá maðurinn dýrið og hafði silfurhnapp af bol sínum fyrir kúlu. Þótti öllum mjög vænt um verk þetta. Hér er örnefninu eigi aðeins gefin saga, heldur kemur hér fyrir í sögunni kynjadýr, finngálknið, sem flestum mun nú gleymt. Til skýringar á sögunni verður því að gera grein fyrir því hver þessi ófreskja var, og er þá bezt að fara eftir frásögn Hafnamanna sjálfra um uppruna þess og eðli. Þeir sögðu, að finngálkn væri afkvæmi fresskattar og tófu. Ér það grimmt mjög og öllum vargi skaðlegra fyrir sauðfé manna, og skotharðast allra dýra. Vinnur engin kúla á finngálkni, og verður það ekki skotið nema með silfurhnapp eða silfurkúlu. Það er og styggt mjög og ákaflega frátt á fæti (Þjóðs. J. Á.). í Njáls sögu er þess getið um Þorkel hák Þorgeirsson goða, að þá er hann var í víking í Austurvegi og þeir lágu fyrir austan Bala- garðssíðu, þá fór hann eitt kveld að sækja vatn. Þá mætti hann finngálkni og varðist þvi lengi, en svo lauk með þeim, að hann drap finngálknið. óvíst er, að hér sé átt við afkvæmi fress og tófu. Hitt er lík- legra, að átt sé við forna eðlutegund, sem kallast „brachiossaurus", því það hefði þótt sögulegra að kappinn hefði barizt við slíka ófreskju, heldur en kynblending kattar og tófu. Þess má þó geta um íslenzka finngálknið, að á því vann ekkert vopn, og ekki var einhlítt að skjóta á það silfurkúlu, nema því aðeins að krossað væri fyrir byssukjaftinn, áður en skotinu var hleypt af. Engar nánari lýsingar eru á þessu dýri, en þó hefir Jón Guðmundsson lærði gert mynd af þvi. Með nokkuð öðrum hætti var sú skepna, sem komin var af ref og læðu. Hún nefndist ýmist skoffín eða skuggabaldur. Það var annaðhvort af vangá' manna eða kærulevsi. ef slikar skepnur fengu náð fullorðinsaldri því að hæg voru heimatökin að lóga. þeim nýgotnum. Þó kom fyrir, að læður lögðust út og ólu afkvæmi sin ein- hvers staðar úti í móum og þá gátu þessi kvikindi komizt upp. Þessi var trú manna á fyrri öldum. Nú er annað- hvort, að þjóðtrúin hefir breytzt, eða þá að afkvæmi refs og læðu geta orðið með ýmsu móti. Á ofanverðri 19. öld

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.