Lesbók Morgunblaðsins - 17.03.1974, Blaðsíða 2
udags
maturinn
Klúbbur matreiðslumeistara
sér um þáttinn.
í þetta sinn: Sverrir Þorláksson
Tveir léttir smáréttir
PIPARSTEIK FYRIR
FJÓRA:
600 g uxalundir eða fillet,
100 g mulin piparkorn
(hvít).
Kjötið skorið í 150 g
sneiðar, barið létt og mótað
í falleg buff. Piparnum
stráð á kjötið og þrýst laus-
lega þannig, að hann tolli á
því. Steikt í smjörlíki báð-
um megin og salti stráð á.
Þegar kjötið er steikt eftir
u.þ.b. 3—5 mínútur, eftir
ósk hvers og eins, er það
tekið af pönnunni og sósan
löguð á henni.
6 dl spönsk sósa eða brún
kjötsósa,
2 dl rjómi,
8 cl cognac.
Sósan soðin upp, rjóma og
cognac bætt út í,
bragðbætt með kjötkrafti,
salti og muldum pipar þar
til hún er vel sterk.
Sósunni hellt yfir kjötið.
Framreitt vel heitt með
belgjabaunum og frönskum
kartöflum.
SVERRIR
ÞORLÁKSSON.
DJÚPSTEIKT,
MARINERUÐ FISKFLÖK
MEÐ KAVIARSÓSU.
600 g fiskflök
400 g kartöflur
4 dl kaviarsósa
Fiskimarinering
Orly-deig
sítrónubátar
steinselja.
Fiskflökin eru skorin í hæfi-
leg stykki, stráð salti og
marineruð í 2—3 klst.
Dyfið i Orly-deig og steikt í
djúpri feiti. Framreidd með
soðnum kartöflum, sitrónu-
bátum, kaviarsósu og djúp-
steiktri steinselju.
FISKIMARINERING.
Matarolía, sítrónusafi,
laukhringir, heill pipar
(hvitur) söxuð steinselja.
KAVÍARSÓSA
4 dl mayonnaise
100 g kaviar
25 g sýrðar agúrkur
25 g capers
25 g steinselja
25 g laukur
25 g kjörvel
franskt sinnep.
Grænmeti og kryddjurtir
saxað og blandao út i
mayonnaise ásamt kaviar
ogsinnepi.
ORLY-DEIG
250 g hveiti
1 egg
2 dl pilsner
1 dl vatn
1 /2 dl olía
salt
sykur
2 stífþeyttar eggjahvítur.
Að undanteknum
eggjahvítunum er öllu
blandað saman og látið
standa í kæliskáp i 1 klst.
Rétt fyrir notkun er stíf-
þeyttum eggjahvítum
blandað út í.
Á SUNNUDAGSKVÖLD
BORÐIÐ:
Tveir léttir smáréttir.
SKELFISKDISKUR.
50 g rækjur
30 g humar
1 ananashringur
strimlar af spönskum rauð
um pipar
salatblað
steinseljustilkar.
KJÚKLINGADISKUR.
400 g kjúklingar
30 g skinka
30 g ostur
1 seljurótarleggur
1 ólíva
salatblað
steinseljustilkur.
Hráefnin skorin í hæfi-
lega bita, sett á disk og
skreytt fallega. Borið fram
með krydduðu may-
onnaise.
KRYDDAÐ MAYONNAISE
Mayonnaise
þeyttur rjómi
sítrónusafi
ananassafi
cayennepipar
salt
pipar
laukduft
ensk sósa.
vega er þessi sérstaka teg-
und myndlistar mjög nærri
því, sem sjá má í vel gerð-
um auglýsingum. Litógrafía
er einmitt sú tækni, sem
nærtækt er að notfæra sér
til að ná þeirri skerpu og
hreinleika, sem einkennir
þessa listgrein. Um þessa
tegund myndlistar gildir
einnig það, að útkoman
getur verið abstrakt, enda
þótt í einstökum atriðum
myndanna megi kenna
ýmsa hluti og jafnvel fígúr-
ur.
Báðar myndirnar vinstra
megin eru eftir Klaus Heid-
er, sem fæddur er árið
1936 í Göppingen. Hann
býr og starfar í Vestur-
Þýzkalandi. Þessar myndir
gefa hugmynd um svefn og
draumfarir. Þær eru ekki
mynd af neinu, sem
áþreifanlegt getur kallazt
samt miðla þær mjög vel
hugmyndinni um ævintýra-
land draumsins.
Myndirnar hægra megin
eru eftir Fritz Genkinger,
sem fæddur er árið 1934 í
Tiibingen. Hann býr nú í
Stuttgart. Hér er í rauninni
um abstrakt myndir að
ræða, enda þótt sjá megi
ákveðna líkamshluta andlit
og hendur. Efri myndin er
með talsvert súrrealísku í-
vafi vegna augans, sem
þarna er slitið úr eðlilegu
samhengi og verður nánast
í miðju enni eins og á Óðni.
Neðri myndin gæti verið
táknræn. Venjulega táknar
krepptur hnefi vald eða
jafnvel uppreisn. Stóri
hnefinn sýnist auk þess
hafa rætur eins og tré og
getur hver og einn lagt ein-
hverja merkingu í það
atriði.
ÞÝZK
GRAFIK
Myndirnar hér á siðunni
eru eftir þýzka graflista-
menn og geta víst flokkazt
undir það, sem stundum er
nefnt plakatlist. Það er um-
deilanlegt, hvort myndlist-
in hafi orðið fyrir áhrifum af
auglýsingum, eða auglýs-
ingar af myndlistinni. Alla-
MYNDLIST