Lesbók Morgunblaðsins - 17.03.1974, Qupperneq 9
örn eru og húsmóðirin vinnur utan heimilisins?
miðjan daginn uppgötvaði hann
sér til skelfingar, að Anna var
búin að gera í buxurnar og frekar
heldur en að skipta á henni sjálf-
ur keyrði hann hana i loftköstum
heim til mömmu sinnar og lét
hana gera það.
— En ekki annarðu öllum hús-
verkunum og þjónustubrögðum,
þegar þú kemur heim eftir 8
stunda vinnudag?
— Nei, krakkarnir hjálpa mér.
Anna og Rúnar skipta uppvask-
inu á milli sin, en Jóhanna sér um
tiltektir.
Blaðamaður snýr sér að börnun-
um, sem sitja hjá foreldrum sin-
um, og spyr þau, hvernig þeim
finnist að hjálpa til Systrunum
verður heldur svarafátt, en Rúnar
segist hafa mjög gaman af heimil-
isstörfum, að uppþvotti undan-
skildum. — Eg hef verið í mat-
reiðslu, og mér finnst voða gaman
að baka og búa til mat. Ég baka
stundum fyrir mömmu og hef ein-
staka sinnum eldað.
Svo að þér finnst það ekki bara
vera fyrir konur?
— Nei, alls ekki. Okkur strák-
unum finnst yfirleitt öllum
skemmtilegt í matreiðslu, og það
er ekkert frekar fyrir stelpur.
— Flnnst ykkur börnin ekki
hafa gott af því að hjálpa dálítið
til?
— Jú, það er um að gera að láta
þau kynnast lífinu sem fyrst, —
segir Ólafur. — Með þessu móti
verða þau bæði sjálfstæðari og
duglegri að bjarga sér en ef þau
létu bara stjana í kringum sig.
Hins vegar má ekki leggja of mik-
ið á þau, og þau þurfa að hafa
tíma til að sinna skólanáminu. Við
erum ákveðin í að láta þau mennt-
ast ef tir því sem hæfileikar þeirra
segja til um, og við viljum, að þau
losni við það erfiði, sem við höf-
um þurft að leggja á okkur.
— En geta þau alveg bjargað
sér sjálf, þegar þið eruð að heim-
an?
— Já, þau hafa vanizt því frá
þvi að ég vann í frystihúsinu, —
svarar Ambjörg, — og við höfum
aldrei þurft að hafa áhyggjur af
þeim. Þau fá sér bita, þegar þau
eru svöng, þótt oft komi nú fyrir,
að beðið sé eftir mömmu. Eitt
sinn, þegar ég var að vinna eftir-
vinnu og kom heim um áttaleytið,
sat öll fjölskyldan og mændi sult-
araugum á sjónvarpið, en engum,
ekki einu sinni húsbóndanum,
hafði komið í hug að fá sér eitt-
hvert snarl.
— Þetta var áður en ég fór í
matreiðslu, — skýtur Rúnar inn i.
— Annars er ég nú vanur að
bjarga mér sjálfur, — segir Ólaf-
ur. Eg kem óreglulega í mat, og
þar sem könan er oft þreytt eftir
erfiðan vinnudag, kærir maður
sig ekki um að láta hana stjana
við sig.
— Ékki getur þú séð um hádeg-
ismat, Arnbjörg?
— Það getur nú varla heitið. Ég
tek til eitthvert snarl eða hita upp
afganga.
— En þið minntuzt áðan á upp-
eldi barnanna. Það gefur auga
leið, að þið hafið lítinn tíma til að
vera samvistum við þau, þegar
vinnudagurinn er svona langur.
— Já, það er nú aðalgallinn við
að vinna úti allan daginn, — svar-
ar Arnbjörg. — Aður fyrr reyndi
ég að fylgjast náið með námi
þeirra, en nú gefst lítill tími til
þess, en maður reynir svo sem að
nota þær stundir, sem gefast, til
að tala við þau og þroska þau á
ýmsan hátt.
— Myndir þú ef til vill kjósa að
vera heima allan daginn, ef að-
stæður leyfðu?
— Ætli mér leiddist það ekki?
Ég er orðin svo vön því að vinna
úti, að ég. myndi áreiðanlega
sakna þess að hafa ekki samneyti
við fólk á vinnustað. Hálfsdags
vinna væri bezt. Þá gæfist betri
tími til að sinna börnum og heim-
ilinu, þvf að eðlilega fer ýmislegt
úr skorðum, þegar maður er
svona mikið að heiman. Hér áður
fyrr saumaði ég flestallt til heim-
ilisins, en nú er varla um það að
ræða.
— Hvað um félags- og tóm-
stundastörf?
— Það er nú litið um þau að
segja, — svarar Ólafur. — Konan
er að vísu í kvenfélagi og ég í
trúnaðarmannaráði, annað ekki.
En við förum nokkuð oft út að
dansa, við höfum bæði gaman af
því.
— Hafið þið nokkurn ^ima til að
giugga i bækur?
—- Maður las heil ósköp áður, en
nú getur varla heitið, að ég líti í
bók, — svarar Ólafur. — 1 þau fáu
skipti, sem ég reyni það, er ég
steinsofnaður um leið, — og Arn-
björg hefur sömu sögu að segja.
Þau eru sammála um að hægja
á ferðinni, þegar þau verða komin
vel á veg með að greiða íbúðina
niður. — Þetta verður líklega
okkar frambúðarhúsnæði, segir
Ambjörg. Fyrst leigðum við, en
til að eignast eitthvað keyptum
Framhald á bls. 10
Hér hjálpast allir að, en husbóndinn sér þó að mestu einsamall um húsbygginguna:
Ragnhildur Bjarnadóttir frá Selfossi og Ingi B. Ársælsson, skrifstofumaður, og börn þeirra.
BUNDIN AF
UPPELDIÞRÁ TT
FYRIR ALLT
Rœtt við Ragnhildi Bjarnadóttur
og Inga B. Arsœlsson
ÆTLA má, að ógsrningur sé fyrir
hjón með tvö kornung börn að
vinna bæði utan heimilis. Það er
þó ekki að skilja á þeim Inga B.
Arsælssyni fulltrúa í Ríkisendur-
skoðun og Ragnhildi Bjarnadótt-
ur kennsluleiðbeinanda, sem við
tókum hús á kvöld eitt á þorran-
um. A hinn böginn viðurkenna
þau, að starfsdagurinn sé oft
býsna langur og þátttaka i félags-
lifi og þess háttar komi vart til
greina við þeirra aðstæður. En að
mati þeirra er það grundvallar-
atriði, að bæði fái notið sín á þeim
starfsvettvangi, sem þau hafa
skapað sér, og það krefst ýmissa
fórna, auk þess sem það leggur
báðum aðilum á herðar svipaðar
skyldur á heimi linu.
Að vfsu er það Ragnhildur, sem
ber kaffi og með því, og blaða-
maður getur ekki stillt sig um að
gera ertnislega athygasemd, þeg-
ar Ingi minnir hana á, að eitthvað
hafi gleymzt. Það er hins vegar
hann, sem sprettur fram til að
sinna þeim yngsta i fjölskyldunni,
þegar hann lætur i sér heyra i
miðju samtali.
— Við höfum smám saman tek-
ið upp ákveðna verkaskiptingu
hér á heimilinu, — segir Ragn-
hildur, — og þótt við teljum okk-
ur mjög nútímaleg og framsýn,
fer ekki lijá þvi að við séum tals
vert bundin af uppeldinu. Þar eð
ég hafði meira stússað í matseld
og öðrum eldhússtörfum, kom það
eiginlega af sjálfu sér, að þau
féllu í minn hlut. Ingi getur að
vísu gripið inn i, ef svo ber undir,
en það er ekkert sérlega vinsælt,
og hann hefur tileinkað sér ýmsa
aðra þætti heimilisverkanna, m.a.
flest tæknileg atriði, sem mér
finnst einhvern veginn eðlilegt,
að hann sjái um, sennilega vegna
rótgróinna fordóma um hlut-
verkaskiptingu kynjanna. En
aðalstarf hans er umönnum barn-
anna, og hann sér yfirleitt um að
mata þau, baða og koma þeim í
háttinn.
Og Ingi þvertekur fyrir að hafa
andúð á heimilisstörfum. Það er
reyndar konunnar að dæma um
frammistöðuna, — segir hann, en
ég tel mig nú alls ekki svo afleit-
an. Til dæmis ryksuga ég yfirleitt
og sé um þvotta, og enda þótt
börnin séu næm á mildi móður-
handarinnar og leiti sennilega
oftar til Ragnhildar ef eitthvað
bjátar á, þá reyni ég að sinna
þeim til jafns við hana, eftir því
sem tími gefst til.
— Daglegur vinnutimi Inga er
frá kl. 9—17, en starfsdagur
Ragnhildar er ósamfelldari og
nemur að jafnaði 2/3 af því, sem
almennt gerist. Auk þessa standa
hjónin i húsbyggingu og fylgja
því ýmsir snúningar og störf, sem
falla í hlut Inga, og hér gefst
blaðamanni tækifæri til að stríða
Ragnhildi örlitið á því, að henni
finnist sjálfsagt að vera laus und-
an slikri erfiðisvinnu.
— Ætli Ingi sé ekki betur til
hennar fallinn en ég, — segir
hpn, — en þessar byggingafram-
kvæmdir gera það auðvitað að
Framhald á næstu sfðu